Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Blaðsíða 46

Morgunn - 01.12.1982, Blaðsíða 46
148 MORGUNN Skiptar skoðanir eru á hvernig á þessu fyrirbrigði stend- ur. Sjálfur hefur H.O. ekki látið upp sínar skoðanir á því, en ýmsir aðrir hafa talið að þarna hafi e.t.v. birst svokall- aður ,,ether“-líkami blaðhlutans, er afskorinn var. Það er margra álit, að hann sé samstæður og eitt með hinum jarðneska líkama — einskonar tvífari hans — en skiljist frá hinum jarðnesku líkamsleifum við dauðann. Svo og að t.d. sjúklegt ástand efnislíkamans sé nánast afleiðing sjúk- leika „ether“-líkamans. H. Oldfield heldur því fram að til þess að uppgötvun hafi vísindalegt gildi, þurfi að vera hægt að endurtaka hana á sama hátt oftar en einu sinni. Þetta hefur honum tekist og þar með uppfyllt vísindalega kröfu sovéska vísinda- mannsins Victor Inyushins, er fékkst við líkar rannsóknir. H. Oldfield hefur nú um nokkurt skeið unnið ásamt dr. Glen Rein frá Lundúnaháskóla að rannsóknum á áhrif- um „electromagnetic fields“ eða rafsegulsviða að því er varðar áhrif þess á efnafræðilegar breytingar á lífrænt samband. Þeir segja frá mismuni þeim er væri á geisla- baug þeim er umlyki heilbrigða hendi annarsvegar og hins- vegar hönd krabbameinssjúkrar konu. 1 síðara tilfellinu væri þessi geislabaugur breiðari og óreglulegri en hjá þeirri, er fullfrísk væri. Þetta staðfestir það sem dr. Fritz A. Popp, vísindamaöur frá háskólanum í Marburg í Vestur-Þýskalandi fullyrðir um útgeislun heilbrigðs og sýkts vefs. Síðar gat H.O. staðfest ályktun dr. L. W. Konikiewicz, amerísks vísindamanns, að væri hönd heilbrigðs manns þvegin og þurrkuð rétt fyrir Kirlianmyndaöku, þá leiddi slíkt til þess að tímabundin minnkun yrði á sýnilegri út- geislun á myndinni. En væri slíkt hið sama viðhaft með hönd krabbameinssýktu konunnar, þá kæmi engin slík fram. Það sama kom í ljós við frekari athuganir H.O. og dr. Reins, svo og skurðlæknis eins, á ýmsum vefjasýnum. Geislabaugurinn var minni og reglubundnari á heilbrigð- um vef, en stærri og óreglulegri á sjúkum vef.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.