Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Síða 27

Morgunn - 01.12.1982, Síða 27
VÍSINDIN, LÍFEÐLISFRÆÐIN, VITUNDIN 129 gerlega ófær um að fást við þetta vandamál. Við erum öll önnum kafin við að skýra lífið með hugtökum eðlis- og efnafræði, en þegar skýra á þessa staðreynd lifsins, vitundina, hafa hvorki eðlis- né efnafræði þau hugtök sem við þörfnumst. Að þvi leyti erum við hjálparvana, en ger- um okkur ekki grein fyrir því, vegna þess að við vinnum enn að miklu einfaldari vandamálum. GS: Þetta yrði ekki ósvipað byltingunni í eðlisfræði, þvi það krefðist nýrra hugtaka og hugarfars. Það er ekki aðeins tækni okkar og rannsóknaaðferðir sem setja okkur takmörk, heldur það hvernig við hugsum. AH: Mér virðist sem vandamál tengd vitundinni séu það langt utan ramma vísindanna í dag að menn finni alls ekki fyrir þeim á annan hátt og t.d. eðlisfræðingar urðu að takast á við vanda sinnar greinar fyrir daga skammta- kenningarinnar. GS: En teljið þið hugsanlegt að með tilraunum megi varpa ljósi á vandamál af þessu tagi? TW: Það hygg ég. Ég held, að heilinn eigi eftir að koma okkur oft á óvart áður en yfir lýkur. AH: Ég held til dæmis að ekki verði hægt að afskrifa dulræna hæfileika á sama hátt og gert hefur verið til skamms tíma. Ég hef að vísu ekki fylgst með nýjustu rannsóknum á þessu sviði, en ég hygg að menn muni taka það alvarlegar en áður. TW: Breti einn hefur verið að skrá boð frá einstökum frumum í heila rottunnar og fundið frumur sem virðast hafa með staðsetningu dýrsins að gera. Hann setur dýrin í klefa sem margir gangar liggja út frá og dýrið getur valið um. Hvaða fruma svarar í heila dýrsins, fer eftir því hvaða gang það velur, og fruman svarar ekki í fyrsta sinn sem það fer inn þennan gang, hún er háð þvi að það hafi gerst áður. Hún svarar aðeins, þegar dýrið fer inn þennan ákveðna gang, í þessa ákveðnu átt. Þetta virðist ekkert hafa með lykt að gera, heldur aðeins staðsetningu. Það má kannski deila um aðferðina í þessum tilraunum, 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.