Morgunn - 01.12.1982, Síða 58
160
MORGUNN
inga — eftir frekari mælingar — er hér um stórkostlega
staði’eynd að ræða: Þá öðlast menn vissu um sólkerfi tii
viðbótar við okkar eigið sólkerfi. Barnardstjarna virðist
því vera sól í sólkerfi — um hana hringsóla tveir kaldir
hnettir miklu minni en hún, annar sem sagt um það bil
helmingi léttari en Júpíter, en hinn um % af þyngd Júpíters.
Uppgötvun þessi er mikilvæg ein sér og þyrfti ekki við
að bæta. Hins vegar telja menn sig ekki fara villir vega
að álykta af henni, að þriðja sólkerfið hljóti að leynast
í geimnum, og hið fjórða, fimta, já, vissa fengist um óend-
anlega mörg sólkerfi í alheiminum.
En yrði það ekki óðs manns æði að hugsa til þess, hversu
líklegt það er, að lífiö hafi skotið þar rótum eins og hér,
og þrifist. Það er of heitt á sjálfum stjörnunum, sóiunum.
Eina vonin um líf er sú, að til séu svalari staðir eins og
jarðhnettir í hæfilegri fjarlægð frá sól — sólkerfi.
Með vissunni um tilvist sólkerfa aukast líkur á því þús-
undfalt að líf leynist „úti“ í alheiminum — iðandi líf —,
þótt langt sé að vísu milli bæja.
Steinslceyti úr geimnum: líf?
Raunar hafa líkur á lífi í alheiminum einnig aukist við
aðra nýja uppgötvun, sem hér skal að lokum getið. Banda-
rískur lífefnafræðingur með því hljómfagra nafni Ponnam-
peruma rannsakaði nýlega loftstein sem fannst á Suður-
heimskautinu. 1 og á loftsteininum reyndust vera amínó-
sýrur og voru þær blendingur efna sem einungis geta verið
upprunnar utan jarðar og svo samskonar efna og finnast
í líffræðikerfum hér á jörðu niðri. Þarna var á ferðinni
sending af himnum sem eykur líkurnar á því, að lífræn
efni séu víðar en á jörðinni.
Ef til vill líður að þeim áramótum er Móðir Jörð verður
að afsala sér einkarétti á lífinu: líf er í geimnum viðar en
hér. 1 stað þess að gruna það munu menn vita það.
18. desember 1981.