Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Side 65

Morgunn - 01.12.1982, Side 65
167 ,,ÚR HEIMI VÍSINDANNA1' í aðra hluta líkamans. Einhver ,,leki“ á sér stað milli heilahelminga þrátt fyrir allt og eru jafnvel dæmi þess, að annar geti í sumu hlaupið í skarðið, ef hinn skaddast. Er þetta mikið rannsóknarefni hjá heilafræðingum. Nóg um það. Herdeildir í heilanum Eitt skal að lokum nefnt frómum lesanda til íhugunar: Imyndaðu þér háa tölu — t.d. mannfjöldann í heiminum. Hugsaðu þér alla mennina, morandi kös hér og þar um jörðina, fjögur þúsund milljónir talsins eða eitthvað þar um bil. Ef þér tekst vel í þeirri ímyndunarinnlifun, þá geturðu gert þér í hugarlund fjölda taugafrumanna sem er í hægra heilahelmingi þínum— og annað eins er vinstra megin í höfuðkúpunni. Taugafrumurnar inní skelinni á þér eru sem sagt sagðar tvöfalt fleiri en mennirnir. Sumir segðu 20 sinnum fleiri. Alla vega er hér um talsvert lið að ræða er það ekki, — sem þú hefur yfir að ráða til að hjálpa þér að skynja, hreyfast, hugsa — og nöldra. P.S. í rauninni hef ég ekki komið mér að efninu enn. Síðast hótaði ég víst að lýsa kenningu um smíðagalla á heila mannsins og þar af leiðandi geðveiki. Það lítur út fyrir að útbólginn heili mannsins hafi hlaðist heldur ólögu- lega ofan á það sem fyrir var frá örófi alda og segja fróðir menn að tengingin hafi heppnast heldur illa. Hinn snjalli rithöfundur Arthur Koestler, sem skrifað hefur margar athyglisverðar bækur um sögu vísindanna, hefur fjallað um kenningu þessa í bókum sínum. Krókódíllinn er vel af guði gerður og hesturinn líka, en það kann ekki góðri lukku að stýra, þegar heilinn úr þeim er tekinn og báðum smeygt undir snargáfaða viðbótarkássu frá síðustu ára- milljón þróunarinnar, — og allt er illa tengt enda gert í flýti að því er virðist. Þrátt fyrir allar gáfurnar, er ekkert

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.