Morgunn - 01.06.1988, Síða 62
HEIMSÓKN MIÐILSINS GLADYS . . .
MORGUNN
fyrir það reyndust allir þeir sem í gegn komu einmitt vera
tengdir þeirri manneskju, sem fyrir valinu varð svo hverju
sinni. Komu þannig í gegn 16 aðilar, sem allir þekktust ör-
ugglega og þau atriði sem nefnd voru í tengslum við þá. Þar
af var í einu tilfelli nefnt nafn sem var staðfest sem rétt.
Verður þetta því að teljast aldeilis frábær árangur.
Laugardaginn 14. maí var Gladys svo með fræðslufund á
vegum félagsins og var hann, sem hinir fundir hennar vel
sóttur. Var þessi dagur þó einn sá hlýjasti og bjartasti sem
komið hafði á íslandi í maí-mánuði, allt frá síðustu alda-
mótum. Hefði því etv. mátt búast við að veðurblíðan freist-
aði fólks frekar til útivistar en ella. Virtist það þó ekki hafa
nein veruleg áhrif á fundarsóknina. Á þessum fundi las Gla-
dys í blóm, sem nokkrir fundargesta höfðu verið beðnir um
fyrir fundinn, að velja sér úr blómvendi, með því að annað
hvort benda á það blóm sem þeir völdu eða snerta það lítil-
lega. Reyndist það enda vera nægilegt til þess að Gladys
gæti lesið úr þeim, síðar á fundinum, persónulcika viðkom-
andi fólks og framgang þess í lífinu. Voru öll þau atriði er
hún nefndi staðfest sem rétt, af þeim er lýsingin átti við.
Blómin höfðu verið númeruð og hafði Gladys ekki hug-
mynd um hverjum hún var að lýsa hverju sinni, fyrr en eftir
á.
Að þessu loknu var fólk úr salnum fengið til þess að
þrýsta höndum sínum ofan í sand svo eftir yrðu för þeirra.
Fór Gladys út úr salnum á meðan þetta var gert svo hún sæi
ekki hver var að verki hverju sinni. Kom hún síðan inn og
hóf að lesa persónugerð viðkomandi fólks úr handarförum
þess í sandinum. Virtist hún fara létt með það þó hún hefði
lýst því yfir áður á fundinum að hún væri ekki ýkja vön slík-
um lestri.
Fór svo líka í þessari tilraun að öll atriðin sem hún nefndi
um viðkomandi manneskju voru staðfest af þeim sem hár-
rétt.
En áður en Gladys hóf þessar tilraunir þá ræddi hún lítil-
lega um áruna, liti hennar og fleira.
Kvað hún kunnan breskan miðil eitt sinn hafa lýst árunni
60