Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Side 6

Morgunn - 01.12.1990, Side 6
MORGUNN RITSTIÓRARABB líkamlega návist hans, fáum enga svörun. Þetta hygg ég að sé og verði skoðun a.m.k. flestra okkar þegar sorg vegna andláts hittir okkur. En er þétta svo? „Nei,” segjum við spíritistar. Þó látinn ættingi eða vinur okkar sé horfinn okkur í efninu, þá er hann nálægur í andanum. Og oft á tíðum nánari okkur heldur en hann eða hún kannski var hér á jörðinni. Já, segja nú kannski sumir, það er ósköp auðvelt að segja þetta en hvað gagnar það þegar sá sem eftir er hérna megin finnur ekkert né sér sem getur fært honum heim sönnun eða huggun varðandi þessi atriði. Jú, hér kemur inn í mynd- ina starfsemi eins og spíritistar um allan heim og hér á Islandi undir nafni Sálarrannsóknafélags Islands vinna að, þ.e. að skapa fólki aðstöðu og tækifæri til þess að hafa samband við „látinn" ættingja sinn eða vin í gegnum miðil og sannfærast þannig af eigin raun um áframhaldandi til- vist hans. Miðlar líkja sjálfum sér oft við símtæki eða loftnet sem geri þeim fyrir handan kleift að ná efnislegu sambandi við okkur. Stundum koma til okkar hjá Sálarrannsóknafélaginu s.k. transmiðlar, þar sem fólkið fyrir handan getur beinlínis talað við okkur sjálft og jafnvel andlit miðilsins tekur svip af þeim sem talar hverju sinni. En svo er vissulega líka til margt fólk, og ég hygg fleiri heldur en við kannski gerum okkur alveg grein fyrir, sem beinlínis verður vart við fólkið sitt fyrir handan og þarf þess vegna út af fyrir sig ekki neina sérstaka sönnun þjálfaðra miðla. Og einmitt þannig tel ég að margar bestu sannan- irnar fyrir einstaklinginn sjálfan geti komið fram. Beint og milliliðalaust. Og hvers vegna? Vegna þess að við sjálf þekkjum oftast nær best þann aðila sem við syrgjum og þau atriði og persónuleika sem honum eða henni er eiginlegur og líklegt er að birtist í sambandsviðleitni viðkomandi. Og varðandi þetta vil ég vísa á aðra grein í þessu hefti Morguns, þ.e. greinina um Rósu, sem einmitt fjallar um þess konar samband. Það er ekki síður eitt af megin verkefnum félags eins og Sálarrannsóknafélags íslands að vekja fólk til umhugsunar 4

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.