Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Síða 20

Morgunn - 01.12.1990, Síða 20
MORGUNN Afl hafa liuRrckki til að syr^ja að ef hann væri aðeins að lifa fyrir mig, þá vildi ég að hann vissi að það yrði allt í lagi með mig. Eg vildi ekki missa hann en það yrði allt í lagi með mig. Faðir minn lést þreni dögum síðar. SR: Hvaða áhrif hafði petta á starf þitt? JT: Allt í einu átti ég enga fjölskyldu og stóð frammi fyrir algjörlega nýju lífi - lífi án foreldra minna. Til þess að hafa tök á sjálfri mér þennan tíma, þá byrjaði ég að skrifa, því að skrifa er það skemmtilegasta sem ég geri - það læknar og hreinsar. I nýju bókinni minni „Þú þarft ekki að þjást," er reynt að sýna fram á að við eigum nokkra valkosti varðandi hve mikið við syrgjum eða þjáumst vegna ýmissa atburða í lífinu... að við getum ráðið yfir tilfinningalegum upplifun- um okkar í stað þess að vera fórnarlömb þeirra. Það er ljóst að líf mitt hefur verið erfitt í þeim skilningi að ég hef orðið fyrir miklum missi. Hvernig á að komast hjá því að verða fórnarlamb slíkrar reynslu og taka lífinu sem áskorun í stað vandamáls, það er takmark mitt núna. Eg er hætt persónu- legri ráðgjöf og ég ferðast um landið og flyt fyrirlestra til þess að koma þessum boðum til skila. SR: / stuttu máli, hver myndi þá vera mikilvægasta iexían sem þú hefur verið að reyna að kenna fólki? JT: T.d. það að við getum náð okkur af öllu sem á okkur dynur. Þjáning er í raun framlenging á sársauka okkar. Bara ef viðhefðum veriðalin upp við þaðað vita aðsársauki er eðlilegur. Þá myndu sársaukar lífsins ekki verða svona sárir og við næðum okkur aftur á auðveldari hátt. Við væruni ekki svona hrædd við að lifa og elska. Við segjum oft þegar við horfumst í augu við kreppu að við munum aldrei komast yfir hana og slík yfirlýsing getur orðið að sannfærandi spádómi. Ég held að við þurfum að læra að segja: „Ég mun komast yfir þetta" og sanna það í lífi okkar. Ég lofaði föður mínum að það yrði allt í lagi með mig þegar hann dæi, það var loforð sem ég gaf án nokkurrar vissu. Ég 18

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.