Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Page 44

Morgunn - 01.12.1990, Page 44
Skuggabaldrar MORGUNN þreytast auðveldlega og mjög mikið, líkt og allur lífskraftur hefði verið úr mér dreginn. Eg vissi að einhvers staðar í undirvitundinni var falin minning um hræðilega reynslu og ég vogaði mér ekki að hugsa um hana, því ef ég gerði það, þá myndi áfallið og álagið verða svo ákaft að hugur minn gæfist endanlega upp. Eina huggun mín var gömul skólareikningsbók og ég var vön að eyða klukkustund eftir klukkustund í að reikna einföld dærni til þess að forða huga mínum frá að tæta sjálfan sigí tætlur, við það að velta fyrir sér hvað hefði verið gert við mig, nálgast minninguna og hrökklast síðan frá henni eins og fælinn hestur. Loks öðlaðist ég nokkra sálarró með því að komast að þeirri niðurstöðu að ég hefði einfald- lega fengið taugaáfall vegna of niikilJar vinnu og að öll þessi slcrýtna atburðarás væri einungis ímyndun ein. En samt var einhver flöktandi tilfinning yfir því að hún væri raunveru- leg og að þessi tilfinning myndi eldci láta mig í friði. Um það bil ári eftir atburðinn fór ég, enn mjög léleg til heilsunnar, upp í sveit mér til hressingar og þar hitti ég vin minn sem hafði verð viðstaddur þegar ég brotnaði niður. Það hafði greinilega valdið rrdlclu umtali og ég fann hér aðila sem elcld reyndi að slcýra reynslu mína heldur spurði við- eigandi spurninga. Annar nýr kunningi fékk áhuga á mál- inu og fór með mig til fjölslcyldulækrdsins, sem einfaldlega kvað það skoðun sína að ég hefði verið dáleidd. Þetta var fyrir daga sálgreininga og hans hjálp við sjúkan huga tak- markaðist við lclapp á baldð og skammt af styrkjandi og bromide svefnlyfi. Styrkjandi töflurnar komu að gagni en svefnlyfið eldd, því það dró úr viðnámsþrótti mínum, og ég var fljót að fleygja því, ég vildi heldur lifa við óþægindin heldur en að gera mig algerlega varnarlausa. Því allan tím- ann var ég helteldn þeim ótta að þessi ókunni lcraftur, sem hafði verið komið á mig með svona góðum árangri, yrði endurnýjaður. En þrátt fyrir að ég óttaðist þetta dularfulla afl, sem ég nú gerði mér grein fyrir að var elcki af þessum heirrd, þá get ég eldd lýst þeim létti sem það var fyrir mig að finna að öll þessi atburðarás var ekJd skýnvilla heldur stað- reynd, sem hægt væri að rísa upp gegn og fást við. 42

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.