Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Page 52

Morgunn - 01.12.1990, Page 52
Hátíðir fyrir handan MORGUNN krafti þeirra, ráðgast við þá spökustu af öllum spökum, kynnast því hvað við höfum þroskast og hvar okkur hefur mistekist, að heyra þær áætlanir sem lagðar hafa verið varðandi hina miklu og eilífu baráttu - baráttuna á milli góðs og ills. Við förum til þess að öðlast hugrekki, til að hitta þá aðra sem starfa nálægt sviðum efnisins og koma síðan aftur svo við megum, upptendraðir af gleði þjónustunnar, starfa með ykkur öllum og færa kraft andans inn á meðal ykkar. Eg vildi að ég gæti tekið ykkur með mér til að horfa á andlit þeirra sem þjóna ykkur, svo þið gætuð séð skin ljóssins sem lýsir þá, svo að þið gætuð gert ykkur grein fyrir hverjir það eru sem hinn mikli andi hefur látið í té, sem leiðbeinendur ykkar. En svo gæti farið að þið yrðuð einungis óttaslegin. Það er betra að þið þekkið okkur, ekki eftir nöfnum okkar, heldur af þeim verkum sem við leitumst við að inna af hendi á meðal ykkar. En helst af öllu vildi ég óska að ég gæti farið með ykkur í hinn geysistóra ráðstefnusal, þar sem við hitt- umst öll til þess að læra um hvernig okkur hefur farnast á meðal ykkar. Þýö.: G.B. 50

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.