Morgunn - 01.12.1990, Side 56
MORGUNN
ÓvenjulcK flugfcrð
af hverju er þessi flugstöð svona frábrugðin öðrum. Hvar
er ég, af hverju þessi skýrsla og síðast en ekki síst, hver ert
þú?"
Jóhannes brosti afsakandi og sagði svo: „Eins og ég sagði
þér í upphafi heiti ég Jóhannes Arnason. Það er að vísu ekki
mitt rétt nafn, en lá ttu þér það nægja að sinni. Astæðan fyrir
því að ég tala íslensku er sú að ég „var " íslenskur og þar sem
þú „varst" það líka, var ég valinn til þess að tala við þig. Það
er einnig rétt til getið hjá þér að það skeði „eitthvað" 13
mínútum eftir flugtak frá Glasgow og þetta „eitthvað" var
það að hægri vængurinn brotnaði af og vélin hrapaði niður
í skóglendi."
Eg velti þessu fyrir mér smá stund og fullyrti svo hálf
hikandi:
„Ég er sem sagt dáinn." Jóhannes horfði á mig samúðar-
fullur og sagði svo hlýlega. „Já, góði minn, svo langt sem
það nær."
„En," spurði ég eftir langa þögn, „hvað varð af farþegun-
um fimm?"
„Þeim var ætlað lengra jarðlíf og þeir komust lífs af."
„En hvaðan kom flugfreyjan?"
„Jú, sjáðu til. Eftir að vélin skall niður byggðist upp fyrir
ofan flakið eftirmynd af þotunni eins og hún leit út eftir
slysið. Þetta er venja undir þessum kringumstæðum. Þegar
því verki lauk voru hinir andlegu líkamar sem þá stundina
voru í dái, fluttir upp í hina endurgerðu þotu, þeim komið
fyrir á sömu stöðum og í hinni. Þá loks voru hinir nýju
líkamar ykkar vaktir upp og þar kemur þessi flugfreyja inn
í myndina. Yfirflugfreyjan var vakin upp fyrst, hún sett inn
í rnálið og látin samþykkja að hverfa sýnum og halda sig inn
í eldhúsinu það sem eftir væri ferðarinnar, en þessi flug-
freyja sem þú spurðir um, tók á sig útlit hennar svo enginn
yrði breytinga var. En af einhverjum ástæðum sást þú henn-
ar rétta andlit. I sínu jarðlífi var hún flugfreyja, en hún fórst
ung við vinnu sína fyrir 20 árum. Hennar starf á þessu sviði
er að aðstoða eftir flugslys þar sem manntjón verður. Nú
þegar þú ert búinn að fá allar þessar upplýsingar ættirðu að
skilja hvernig stóð á hinni breyttu flugáætlun.
54