Morgunn - 01.12.1990, Qupperneq 62
MORGUNN
Spíritismi og dultrúarhreyfingar á fslandi
sem spíritsminn gat uppfyllt? Kirkjan hafði um árabil verið
stöðnuð guðfræðilega. Öllu nýju var vísað frá, sjálfstæðis-
baráttan gekk fyrir. Menn höfðu passíusálmana og postill-
una sem höfðu reynst vel. I Lútherstrúnni er umfjöllun um
lífið eftir dauðann loðin. Fólk fær ekki huggun og styrk úr
henni þegar dauðann ber að garði. Skv. siðakerfi lúthers-
kunnar var sambandið á rnilli hins almenna verkamanns og
náðar guðs framandi fyrir fólk. Kirkjan gat selt syndaaf-
lausnir. Síðan kemur ný öld með efnishyggjunni og veitist
að trúnni sem gufaði upp hjá mörgum því haldreipin vant-
aði. Spíritisminn hafði réttlátan boðskap um að menn upp-
skæru afleiðingar gerða sinna, og forráðamenn hans um
aldamótin boðuðu þetta, er þeir boðuðu spíritisma um land-
ið.
Hvert var hlutverk spíritismans fyrir trúarlíf almennings?
Ótti við hið yfirnáttúrlega var ríkjandi en spíritisminn gekk
af djöflinum dauðum ef svo má segja þó að um það megi
e.t.v. deiia. Einmitt þetta á ekki svo lítinn þátt í því að
Islendingum finnst þeir vera hamingjusamasta þjóð í heimi.
Þeir hafa misst trúna á helvíti.
I könnun sem félagsvísindadeild Háskóla Islands tók þátt
í um þessi efni kom fram að menn eru trúhneigðastir í
Bandaríkjunum, Island var í öðru sæti, og var mikill mis-
rnunur á milli hvað þetta varðar, íslands annars vegar og
Svíþjóðar, Finnlands og Noregs hins vegar. Þegar spurt var
um trú á tilvist guðs kom í ljós sama mynstur. íslendingar
skera sig úr hinum Norðurlöndunum, og Bandaríkjamenn
eru sem áður trúaðastir. Hvað varðar spurninguna um
trúarhugmyndir, þá sýnir sig að Islendingar voru ekki trú-
aðir á guð sem persónu. Hugsanlegt er þó að spurningin
hafi misskilist, og menn talið að spurt væri um hvort menn
sæju guð sem gamla góða manninn með skeggið á himnin-
um. Flestir eða 58% telja guð alheimskraft. Þarna koma fram
áhrif spíritismans á trú Islendinga. Hvað varðar aðra dul-
ræna reynslu, þá skera íslendingar sig ekki sérstaklega úr.
Þá vaknar spurningin hvers vegna komast aðrar þjóðir svo
hátt í þeim efnum? Sálfræðingar hafa ekki áhuga á að kanna
60