Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Side 66

Morgunn - 01.12.1990, Side 66
MORGUNN Spíritismi og dultrúarhreyfingar á Islandi Sv. P.P.: Þekktasti dulsálarfræðingur íslendinga, Erlendur Haraldsson, hefur sinnt þessu mikið og beitt vísindalegri tölfræði í rannsóknum sínum. Hann hefur rannsakað ís- lenska miðla og miðla á Indlandi og víðar. Rannsakað dul- sýnir á dánarbeði. 3. fsp.: Er félagið að takast á við gömlu dulfræðina og ekki að sinna vísindarannsóknum og hefur það þá ekki fylgst nægilega vel með hinni vísindalegu afstöðu? Sv. Ö.G.: Vísindarannsóknir í parasálfræði þurfa dýr tæki og sérfræðiþekkingu til að hægt sé að sinna þeim. Slíkt verður vinna sérfræðinga. Það þýðir ekki fyrir hvern sem er að byrja vísindarannsóknir, hvorki á þessu né öðru, án mikils undirbúnings. Það fólk sem stendur að Sálarrann- sóknafélaginu er allt í fullu starfi annars staðar og því ekki um það að ræða að það geti sinnt þessu eins og vísindin krefjast. En við fylgjumst samt með og félagið hefur stutt þessar rannsóknir. Beinar vísindarannsóknir eru ekki á færi nema sérfræðinga einsog þær eru í dag. 4. fsp.: Til er spíritistakirkja í Englandi. Hvað er það, er hún sértrúarsöfnuður eða er kristninni þar beint í átt að spírit- isma? Sv. P.P.: Þar hefur þetta þróast í átt að sálarrannsókna- og fræðslufélögum, svipuðum Sálarrannsóknafélagi Islands. Einnig eru til sérstök trúfélög, sbr. Fríkirkjan hér. Þar er miðillinn prestur og andar predika í gegn um hann. Boð- skapurinn kemur frá miðlinum og er með kristnu ívafi. Vísindamenn taka afstöðu gegn svona sértrúarsöfnuðum. Við höfum sérstöðu hvað þetta varðar í því hvað þetta hefur verið opið. Það finnast engir slíkir sértrúarsöfnuðir á Is- landi. Miðlar í slíkum sértrúarsöfnuðum geta fengið prests- réttindi. 5. fsp.: Hvernig líta vísindamenn á spíritisma ef hann er "reformation" við öll trúarbrögð og kemur með nýjar hug- myndir um lífið, t.d. að þú uppskerir eins og þú sáir. Hvernig flokka vísindamenn hann sem hreyfingu? Sv. P.P.: Nútíma spíritisma má rekja til svíans Svedenborgs sem var uppi á 18. öld og til Mercher segulmagnslæknis. 64

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.