Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 NICOTINELL Fæst nú hjá okkur! ® Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins J ó l a s ö f n u n Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Oft var þörf en nú er nauðsyn Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b. Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „VIÐ erum þjáningarbræður. Við grátum saman nótt eftir nótt yfir þeim hlutum sem við höfum gert.“ Þannig lýsir Sverrir Ólafsson mynd- höggvari vináttu sinni og mannsins sem farið hefur með honum í gegn- um súrt og sætt, þó aðallega súrt að eigin sögn, Svans Elís Elíassonar. Þeir félagar hafa nú komið sér fyrir á ólíklegum stað við ysta haf, því þeir búa hvor í sínum húsbílnum við brimvarnargarðinn undir vit- anum á Garðskagatá. Mörgum þykir eflaust sérkennilegt að velja sér slíka búsetu, en aðstæður Sverris og Svans bera með sér að þeir hafi að nokkru fyrirgert sér frjálsu vali. „Ég er nú gamall sjómaður en ég verð sjóveikur af því að liggja hérna. Það er ekki stætt í bílnum,“ segir Sverrir og vísar til norðanáttarinnar sem stendur beint af hafi og lemur húsbílinn að utan svo hann nötrar og virðist stundum ætla á hliðina. Svanur á sér langa ógæfusögu, en síga tók á ógæfuhliðina hjá Sverri fyrir um áratug eftir erfiðan skilnað. Þar til fyrir stuttu átti hann land- námsjörðina Esjuberg á Kjalarnesi þar sem hann hafði hugsað sér að reisa menningarmiðstöð, svipaða listamiðstöðinni í Straumi sem hann rak lengi. Jörðina missti hann frá sér og keypti þá hús á Hellu, en missti það einnig í byrjun sept- ember. „Þetta er bara ömurlegt, ég er búinn að tapa öllu,“ segir Sverrir sem í kjölfarið bjó um sig í hús- bílnum og segist litla vonarglætu sjá um framtíðina. „Mig langar bara að deyja nógu helvíti hratt, bara drep- ast hratt, það er mín eina ósk í dag.“ Framan af hausti héldu þeir til á tjaldstæðinu í Hafnarfirði, þar til lokað var á rafmagnið í byrjun nóv- ember. „Það var alls staðar lokað á okkur en hér í Garði er okkur tekið vel af góðu fólki,“ segir Svanur. Sverrir bætir við að lögreglan á Suð- urnesjum hafi verið ekkert nema elskulegheitin. „Við erum allavega með rafmagn en við höfum nátt- úrlega ekki mat og ekki peninga.“ Vonast eftir plássi á Vogi Húsbílana fá þeir tengda við úti- hús undir Garðskagavita og þar komast þeir líka á klósett. Með hjálp rafmagnsins geta þeir yljað sér við hitablásara en þegar frostið bítur dugir hann skammt og Sverrir sefur í skónum undir teppi til að halda á sér hita. „Þegar mér er orðið ægi- lega kalt þá hringi ég í tuktarana. Þeir eru svo yndislegir, þeir sóttu mig um daginn og leyfðu mér að sofa inni því ég var bara að frjósa í hel.“ Báðir eygja Svanur og Sverrir möguleika á að komast að á Vogi og reyna að snúa við blaðinu með hjálp góðra manna. „Það er eina glætan í lífinu hjá okkur,“ segir Sverrir. „Mig langar að vinna eitthvað, ég nenni ekki svona örlagabulli þar sem mað- ur sér bókstaflega ekkert ljós.“ Morgunblaðið/Ómar Ljósið „Við erum báðir guðhræddir menn og tölum við almættið eftir hentugleikum,“ segja þeir Svanur Elíasson og Sverrir Ólafsson undir Garðskagavita. „Mig langar bara að deyja nógu helvíti hratt, það er mín eina ósk“ Þjáningarbræður á ystu nöf samfélagsins „Einstakir aðilar hafa hlúð að þeim og látið sig varða hag þeirra en ég er óskaplega óánægður með að þeir hafi ekki komist í öruggt skjól,“ segir séra Gunnþór Inga- son, sóknarprestur í Hafnarfjarð- arkirkju sem hefur liðsinnt þeim Sverri og Svani á eigin vegum. „Þetta ástand hefur varað alveg frá byrjun september og raunveru- lega hefur Svanur verið lengur á flandri. Það sem strandar á er að þeir hafa ekki fengið raunveruleg meðferðarúrræði.“ Hann segir að um tíma hafi stefnt í að þeir kæm- ust í endurhæfingu á Krossgötum, en þar er gerð krafa um að lækn- isfræðilegri meðferð sé lokið. „Það er flöskuhálsinn því sjúk- lingar virðast geta skráð sig úr afeitrun þegar þeim sýnist. Þegar líkamlega og andlega uppgjörið á sér stað, eftir 8-9 daga, springa þeir margir hverjir því áfengis- sýkin hefur svo sterk tök á þeim. Þeir hafa gert sig seka um þetta en ég tel að kerfinu sé sjálfu um kenna, til að afeitrun beri árangur þyrfti að skuldbinda menn til að vera þarna a.m.k. í 6 vikur.“ Ágalli á meðferðarkerfinu HRAFNISTA í Reykjavík átti lægsta tilboðið í rekstur skammtíma hjúkrunarrýma, en tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum í gær. Alls bárust þrjú tilboð. Ríkiskaup auglýstu eftir rekstr- araðila fyrir hönd heilbrigðisráðu- neytisins til að reka allt að 35 skammatíma hjúkrunarrými og 30 dagdeildarrými. Hrafnista bauðst til að reka skammtíma innlagnir fyrir 25.545 króna daggjald fyrir hvert rými. Þá baust Hrafnista til að reka dagdeild fyrir 13.230 krónur fyrir hvert rými. Nesvellir ehf. bauðst til að reka skammtíma innlögn fyrir krónur 26.200 fyrir hvert rými. Fyr- irtækið bauð hins vegar ekki í dag- deildina. Dagmar Jónsdóttir bauðst til að reka skammtíma innlagnir fyr- ir krónur 30 þúsund fyrir hvert rými. Hún bauð heldur ekki í dag- deildina. Gert er ráð fyrir því að rekstur hefjist 1. febrúar 2009 en æskilegt er talið að hann geti hafist fyrr. sisi@mbl.is Hrafnista átti lægsta tilboðið Hjúkrunarrými auglýst í útboði NÁNAST engar ákvarðanir um stórar gjörðir, til dæmis sölu eða nið- urfellingu skulda, hafa verið teknar síðan nýju bankarnir voru stofnaðir og því koma verklagsreglur um við- skiptin ekki of seint. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra. Stóru verkefnin séu framundan og skoða verði í hverju tilviki fyrir sig hvort stórar sölur eigi erindi inn á borð ríkisstjórnarinnar. Björgvin fundaði um verklag með forsvarsmönnum skilanefnda bank- anna, bankaráða, FME, Samkeppn- iseftirlits, viðskipta- og fjár- málaráðuneytisins í gær. Þar var einnig rætt að miklu máli skipti fyrir framtíð bankanna og samkeppni á bankamarkaði að fá erlenda kröfu- hafa að rekstri bankanna. Björgvin segir stóru verkefnin innan bankanna framundan. Spurður hvað honum finnist um þá skoðun hagfræðingsins Jóns Steinssonar að ráðherrar eigi ekki að fela sig á bak við undirmenn sína í bönkunum og „viðskiptalegar for- sendur“ þeirra þar sem fyrirtæki eins og TM, sem Kaldbakur vildi með því að yfirtaka 42 milljarða skuld Stoða við Landsbankann, sé ígildi ríkiseigna, svarar Björgvin. „Þá verða að vera skýr skil á milli hvenær forsendur eru viðskipta- legar og hvenær pólitískar.“ gag@mbl.is Meta þarf hvort ríkið komi að sölu ÖLLUM fastráðnum starfsmönnum sem starfa fyrir Knattspyrnu- félagið Val – á skrifstofu og í hús- vörslu – hefur verið sagt upp, eða níu manns. Að sögn Stefáns Karls- sonar, fjármála- og markaðsstjóra félagins, er stefnt að því að end- urráða hluta starfsmannanna í næstu viku. Þetta sé hluti af al- mennu aðhaldi í því árferði sem nú ríki í efnahagsmálum. Hann bendir á að einnig hafi verið gripið til ráð- stafana hjá afreksflokkum félags- ins. Þar hafi fólk tekið á sig launa- skerðingu auk þess sem útrunnir samningar við erlenda knatt- spyrnumenn hafi ekki verið end- urnýjaðir. Starfsmönn- um hjá Val sagt upp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.