Morgunblaðið - 29.11.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 29.11.2008, Qupperneq 22
22 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÞAÐ má með sanni segja að dramatísk þingvika sé nú að baki. Hún hófst með umræðum um van- trauststillögu stjórnarandstöðunnar sem var felld af meirihlutanum auk eins þingmanns Frjálslynda flokks- ins, Kristins H. Gunnarssonar. Nú má að vísu velta því upp hversu mikið lengur Kristinn verður þing- maður þess flokks en þingflokks- formaðurinn notar hvert tækifæri til að hnýta í hann opinberlega og Kristinn sjálfur virðist ekkert sér- staklega samvinnuþýður. Krafan nær til allra Stjórnarandstaðan renndi kannski óþarflega blint í sjóinn með sína tillögu sem gerði ráð fyrir kosningum strax upp úr áramótum. Eins og Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir benti á í umræðunum myndi lítið rúm skapast fyrir ný framboð færu kosningar fram með svo skömmum fyrirvara. Að sama skapi gæfist lít- ið ráðrúm til prófkjara eða lýðræð- islegrar umræðu um uppstillingu á framboðslistum flokkanna. Líklega yrðu þá boðnir fram nánast sömu listarnir og í síðustu kosningum, sem kemur varla til móts við þær kröfur sem nú eru uppi í samfélag- inu um endurnýjun. Sú krafa nær nefnilega bæði til meirihlutaflokk- anna og til stjórnarandstöðunnar. En rök ráðherranna í umræðun- um voru líka misgóð. Þeir töluðu eins og allt færi á hliðina ef boðað yrði til kosninga og að samningar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn gætu verið í hættu. Ekkert myndi gerast enda væru allir á fullu í kosninga- baráttu. Af þeim orðum má því skilja að ríkisstjórnin sé eiginlega óstarfhæf þegar kosningar eru á næsta leiti. En ráðherrar hafa nú sjaldnast setið aðgerðalausir í að- draganda kosninga, og myndu varla gera það í þetta sinnið. Beðið eftir næturfundi Eftir vantraustsmánudaginn kom stuttur og viðburðalítill þriðjudagur en á miðvikudag fór aftur að draga til tíðinda. Að hefðbundnum fyr- irspurnum loknum var fundi frestað meðan þingflokkar funduðu. Ekki voru fleiri mál á dagskrá og þess vegna mátti búast við einhverju stóru frumvarpi eða tillögu sem þyrfti að dreifa. Stjórnarandstaðan stóð í þeirri meiningu að funda ætti fram á kvöld, jafnvel nótt, til að af- greiða lög sem óljóst var um hvað fjölluðu. En málið stoppaði í þing- flokki Samfylkingarinnar og þing- menn voru sendir heim með nýja hvítbókarnefndarfrumvarpið í höndunum. Á fimmtudag var það frumvarp rætt í samstöðu allra flokka og svo tók við löng umræða um hvort rík- isstjórninni skyldi falið að leiða Ice- save-deiluna til lykta. Stjórnarand- staðan og Pétur H. Blöndal höfðu sínar efasemdir um það og m.a. voru uppi áhyggjur af því að þetta væri opin heimild fyrir ríkisstjórn- ina. Í athugasemdum með tillög- unni kemur þó skýrt fram að samn- ingurinn verði lagður aftur fyrir Alþingi og þá aflað viðeigandi fjár- heimilda. Annað væri enda óeðlilegt því að Alþingi fer jú með fjárveit- ingarvaldið. Fimmtudeginum var ekki lokið. Klukkan 18 var boðað til þing- flokksfunda og í framhaldinu lagt fram frumvarp um gjaldeyrishöft. Og þá var komið að næturfund- inum. Frumvarpið skyldi verða að lögum áður en bankar og fjár- málastofnanir yrðu opnaðar svo að markaðurinn myndi ekki bregðast við meðan málið væri í vinnslu. Vandinn er hins vegar auðvitað sá að þingmenn höfðu fyrir vikið lítinn tíma til að skoða málið almennilega og þá sérstaklega stjórnarand- stöðuþingmenn. Frumvarpið var samþykkt með 32 atkvæðum, sem hlýtur að teljast mjög tæpt. Þeir níu stjórnarand- stöðuþingmenn sem voru viðstaddir sátu hjá. Annað sem vekur athygli er að um málið ræddu eingöngu karlar. Engin kona tók til máls í öllum umræðunum. Hvað svo? Ein vika liðin. Ríkisstjórninni er ekki vantreyst. Hún mun að lík- indum fá umboð til að leiða Ice- save-deiluna til lykta og nú hafa víðtæk gjaldeyrishöft verið inn- leidd. Sjáum hvað næsta vika ber í skauti sér. Dramtískri þingviku lauk með fundi fram á morgun Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÞAÐ er ekkert nýtt að deilt sé um þýðingu Bibl- íunnar. Þannig urðu harðar deilur um Biblíuna sem lokið var við þýðingu á 1908 og sem nýja Bibl- ían byggist að stórum hlut á. Sú Biblía var að stórum hlut þýdd af Haraldi Níelssyni, sem síðar varð guðfræðiprófessor og loks rektor við Há- skóla Íslands. 140 ár eru um þessar mundir liðin frá fæðingu Haraldar og öld frá þýðingu fyrrnefndrar Biblíu. Verður af því tilefni haldin guðsþjónusta í minn- ingu Haraldar nú á sunnudag, auk þess sem efnt er til málþings og opnuð sýning í Þjóðar- bókhlöðunni. Meðal þeirra sem þar taka til máls eru Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri og son- ur Haraldar. „Ég var ekki nema átta ára gamall þegar hann dó og man því í raun bara vel tvö síðustu æviár hans,“ segir Jónas. „Þær minningar eru mikið til bundnar flutningum okkar úr Grjótaþorpinu og í ráðsmannsíbúðina við Lauganesspítala sem að þar stóð auð, en faðir minn var prestur við holds- veikraspítalann.“ Jónas segir flutninginn hafa verið mikið ævin- týri í augum þeirra feðga. „Þá komumst við úr þrengslunum og rótinu í miðbænum og út í nátt- úruna, frelsið og víðáttuna í Laugarnesinu. Út- sýnið þar var stórkostlegt og faðir minn, sem var mikill náttúruunnandi, þreyttist aldrei á að vekja athygli okkar á náttúrufegurðinni. Til dæmis þeg- ar sólin var að setjast bak við Snæfellsjökul á sumrin.“ Deilur um 1909 útgáfu Biblíunnar voru að miklu leyti tengdar deilum um spíritisma og hinni svo kölluðu nýju guðfræði. „Ég man vel eftir þessu umtali og hvað þessar trúardeilur gátu orðið heit- ar.“ Ekki hafi allir verið á eitt sáttir um þær hug- myndir sem Haraldur og menn á borð við séra Jón Helgason, síðar biskup, fluttu með sér heim frá Kaupmannahöfn. „Þessum ungu guðfræð- ingum brann í brjósti að taka hér upp baráttu fyr- ir eilífum sannindum kristinnar trúar og það held ég að faðir minn hafi gert með þýðingu sinni á Biblíunni.“ Þeirra áhrifa gæti enn þar sem mikið lifi af þýðingu Haraldar í nýju Biblíunni. Áhrifa hans hafi líka gætt í gegnum predikanirnar sem hann hélt reglulega í Fríkirkjunni. „Þær predik- anir hafa margar hverjar haldið fullu gildi og eru framúrskarandi ræður. Því að það sem skiptir máli er ekki það sem að deilt var um, heldur grunngildin sem enn standa.“ Grunngildin standa enn 100 ár liðin frá þýðingu Haraldar Níelssonar á Gamla testamentinu Morgunblaðið/Kristinn Í fótspor langafa Haraldur Níelsson hefur haft mikil áhrif á Maríu Ellingsen. Hún velti fyrir sér preststarfinu og aðstoðar nú við barnastarf í Dómkirkjunni, þar sem Haraldur var um tíma prestur. „Langafi varð mér strax mjög náinn,“ segir María Ellingsen langafabarn Haraldar Níels- sonar. „Hann var að vísu löngu dáinn þegar ég fæddist, en það var mynd af honum uppi á vegg heima og pabbi minn var skírður í höfuðið á hon- um. Þess vegna var eins og andi hans svifi yfir vötnum og mér fannst oft eins og góðleg augu hans fylgdu mér þegar ég gekk um herbergið.“ María segir að sér hafi raunar líka alltaf fund- ist sem Haraldur hafi fylgt sér í lífinu. Er hún óx úr grasi eignaðist hún sjálf sína út- gáfu af myndinni af langafa. „Hún hefur fylgt mér um allan heiminn, fer með hvert sem ég fer og er núna á skrifborðinu mínu heima.“ Biblía Haraldar frá útgáfunni 1909, sem er á sýningunni í Þjóðarbókhlöðunni, er þá einnig í eigu Maríu. „Þegar ég fermdist var ég svo alvarleg ung kona að ég vildi alls ekki halda neina stóra veislu sem snerist um gjafir. Þess vegna, þegar mamma og pabbi spurðu mig hvað ég vildi fá í fermingargjöf, bað ég um að fá að eignast ætt- ardýrgripinn – sem var hans eigið eintak af Biblíunni.“ „Mér hefur alltaf fundist hann fylgja mér í lífinu“ HEIMSSÝN, hreyfing sjálf- stæðissinna í Evrópumálum, býður alla vel- komna á 90 ára afmæl- ishátíð full- veldis Íslands sem haldið verður hinn 1. desember næstkom- andi í Salnum í Kópavogi frá kl. 17- 18.30. Diddú syngur valin ættjarðarlög við undirspil Jónasar Ingimund- arsonar. Eydís Fransdóttir óbóleik- ari flytur Egófóníu III eftir Svein Lúðvík Björnsson. Þórarinn Eld- járn fer með ljóð og Kári Stef- ánsson, Styrmir Gunnarsson og Katrín Jakobsdóttir flytja erindi. Halda upp á fullveldið STUTT LJÓSIN verða tendruð í dag á jóla- trénu sem komið hefur verið fyrir á Ráðhústorginu á Akureyri. Tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyr- ar í Danmörku. Dagskráin á torginu hefst kl. 15.45 með ýmsum skemmtiatriðum. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj- arstjóri heldur svo stutta tölu og Lasse Reimann sendiherra Dana á Íslandi gefur Akureyringum jóla- tréð. Isak Godsk Rögnvaldsson tendrar ljósin og síðan halda marg- vísleg skemmtiatriði áfram. Ljósin kveikt á Akureyri UTANDAGSKRÁRUMRÆÐA um aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum bönkum og ummæli breskra stjórnvalda í fjölmiðlum í kjölfar neyðarlaga sem sett voru á Íslandi 6. október sl. fór fram á stjórnarnefndarfundi Evrópuráðs- þingsins í dag. Beiðni um utan- dagskrárumræðu setti Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins fram en frum- mælandi á fundinum var Stein- grímur J. Sigfússon, þingmaður VG. Í máli sínu vék hann einkum að beitingu hryðjuverkalöggjafar Bret- lands í tilviki Landsbankans og að- gerðum breskra stjórnvalda gagn- vart Kaupþingi auk ummæla breskra stjórnvalda í ljósi sam- anlagðra afleiðinga fyrir íslenska fjármálakerfið, fyrirtæki og hag- kerfið í heild sem og orðspor Íslands almennt. Þá vakti hann athygli á hugsanlegri misbeitingu breskra stjórnvalda á hryðjuverkalöggjöf sinni og því slæma fordæmisgildi sem af beitingu slíkra laga getur hlotist þegar gripið er til þeirra í öðrum tilvikum en þeim þar sem raunverulega er um að ræða baráttu gegn hryðjuverkum. Að því er fram kemur í tilkynning- unni þótti þátttakendum í umræðum að framsögum loknum almennt mið- ur að bresk stjórnvöld skyldu beita sér gegn Íslandi með þeim hætti sem þau gerðu. Beiting hryðju- verkalaganna Morgunblaðið/Ómar London Big ben er þar kennimerki. Rætt á stjórn- arnefndarfundi Evrópuráðsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.