Morgunblaðið - 29.11.2008, Page 52

Morgunblaðið - 29.11.2008, Page 52
52 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 ✝ Þóra Helga-dóttir fæddist í Merkigarði 11. apr- íl 1924. Hún and- aðist 16. nóvember síðastliðinn. Hún ólst upp hjá for- eldrum sínum, Helga Jónssyni, f. á Þröm 31. janúar 1877, d. 28. apríl 1954 og Ingigerði Halldórsdóttur, f. 14. nóvember 1891, d. 24. apríl 1938. Þóra átti einn al- bróður sem lést ungur og 9 hálf- systkini samfeðra, sem öll eru látin en hún var yngst. Þóra var 14 ára þegar móðir hennar dó, hún tók þá fljótlega við heimilishaldi í Merkigarði og sá um heimilið fyrst fyrir föður sinn og síðan fyrir Arnljót bróður sinn. Þóra fór í Húsmæðraskólann á Blönduósi um tví- tugt og var þar í einn vetur. Þóra eignaðist einn son, Sigurð Helga Þor- steinsson, raf- virkjameistara í Skagafirði, f. 19. apríl 1950, d. 15. september 1997 eft- ir erfið veikindi. Árið 1991 flutti Þóra á Sauð- árkrók og hélt heimili fyrir Sig- urð son sinn þar til hann and- aðist. Þóra verður jarðsungin frá Reykjakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Mig langar að minnast í fáum orð- um elskulegrar frænku minnar. Það er svo margt sem kemur upp í hug- ann. Það var alltaf gaman að koma í Merkigarð til Þóru og Arnljóts, það var tekið á móti manni með kostum og kynjum eins og þeirra var siður. Ef heppnin var með okkur sáum við Sigga líka en hann var sjaldan heima, því hann hafði alltaf mikið að gera út um allar sveitir. Síðan kom að því að þau Þóra og Siggi ákváðu að selja Merkigarð og flytja í Krókinn 1991 og keyptu sér stórt og mikið einbýlishús, þar sem þau bjuggu sér fallegt heimili af mikl- um myndarskap, fengu sér falleg húsgögn sem voru ekki af verri end- anum, og Siggi var alltaf að bæta við enda var hann mikill safnari. Þóra aftur á móti heklaði fína dúka, saum- aði alls kyns myndir, perlaði, prjónaði og allt lék í höndum hennar að ógleymdum myndarskap hennar í matargerð og bakstri þar sem alltaf var nóg til. Þegar hún var ung fór hún á húsmæðraskóla og það var skemmtilegur tími, sagði hún mér. Enda var talið sjálfsagt á þeim árum að ungar stúlkur gerðu það. Þóra var víðlesin og las alltaf mikið og var ótrúlega fróð, það var eigin- lega sama um hvað maður spurði um, hún hugsaði sig um flautaði smá, svo brosti hún og svarið kom. Hún var mjög létt í lund og hafði húmorinn í góðu lagi, tók öllu með miklu jafn- aðargeði, þetta kom vel í ljós þegar Siggi veiktist af krabbameini aðeins 44 ára gamall, þá var hún ótrúlega dugleg og barðist með honum þau þrjú ár sem sjúkdómurinn var að leggja hann að velli. Hún hélt svo sínu lífi áfram af miklum dugnaði og elju- semi, en það leið aðeins tæpt ár þar til hún þurfti sjálf að glíma við sama sjúkdóm, en öllu var tekið með jafn- aðargeði og aldrei var djúpt á gam- anseminni og glettni á hverju sem gekk. Hún þurfti oft að koma suður í skoðun út af krabbameininu. Þá stoppaði hún oft í eina til tvær vikur. Þá dvaldi hún stundum hjá mér og var það alltaf skemmtilegur tími og margt sér til gamans gert. Í maí flutti Þóra úr Lerkihlíðinni í Sauðármýri þar sem hún fékk sér fallega íbúð og var búin að koma sér vel fyrir þar, en því miður naut hún þess allt of stutt því meinið hennar versnaði svo fljótt og þrekið þvarr og þá er hvíldin langa góð. Elsku frænka, hafðu þökk fyrir allt og allt, hvíl í friði og við munum alltaf sakna þín. Elín og fjölskylda. Ég á góðar minningar um þig, Þóra mín. Fyrstu minningarnar tengjast heimsóknum sem við fjölskyldan fór- um til þín, Sigga og systkina þinna í Merkigarði á ferðum okkar um Skagafjörðinn. Alltaf var gott að koma í Merkigarð þar sem þú tókst vel á móti okkur með afbragðsveit- ingum. Það var yndislegt að vera hjá þér sumarið 2005 þegar ég og Sigurður Óli, sem þá var á fyrsta aldursári, sóttum þig heim og dvöldum hjá þér um tíma. Þú tókst afar vel á móti okk- ur og vegna þinnar góðu nærveru var þetta eftirminnilegur tími. Það var notalegt að vera í kringum þig, alltaf stutt í brosið og mildan hlátur. Fram- koma þín einkenndist af yfirvegun, með glaðværð og kímni. Þú lést þig þjóðfélagsmál varða ásamt því að vera vel lesin og ánægjulegt var að sitja á spjalli við þig. Þú ólst upp við reglu- og nægjusemi sem fylgdi þér allt þitt líf. Í því hraðasamfélagi sem ég hef alist upp í var dýrmætt að kynnast reynslu þinni og þeirri bar- áttu sem fólk háði á fyrri tímum. Þú varst barngóð og fékk Sigurður Óli að njóta góðs af því og þegar ég sagði honum að þú værir farin frá okkur sagði hann: „Mamma, mér þykir svo vænt um hana.“ Við vorum svo heppin að fá að njóta nærveru þinnar á jólunum og ynd- islegt að hafa þig hjá okkur og mun- um við sakna nærveru þinnar nú um jólin. Guð blessi þig og minningu þína. Það er huggun að vita til þess að nú séuð þið Siggi sameinuð á ný. Þín frænka, Íris Eik Ólafsdóttir. Þóra Helgadóttir Heimilistæki 70 cm keramik gashelluborð Til sölu nánast nýtt, mjög fallegt 70 cm keramik gashelluborð með rofum. Kostar nýtt 80.000 en fæst á aðeins 45.000. Upplýsingar í síma 694-5853 eftir kl. 13:00. Öðruvísi jólagjafir! Ýmislegt nýtt og spennandi í Maddömunum á Selfossi! Langir laugardagar í desember. www.maddomurnar.com Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI –Spámiðill Spái í spil og kristalkúlu Fyrirbænir Sími 618 3525 www.engill.is Dýrahald Doberman Þetta er síðasta tíkin úr gotinu, 11 vikna hreinræktuð. Verð aðeins 99.000. Visa/Euro. Uppl. 896-0676. Fatnaður Leggings - hettupeysur - ullarslár - kjólar Bjóðum upp á mikið úrval af leggings, hettupeysum, kjólum, ullarslám og fl. Komið og skoðið úrvalið. Saumagallery Chaemsri, Laugavegi 70, s. 552-1212. Opið til 18:00. Ferðalög Íbúðir til leigu í Barcelona á Spáni, hagstætt verð, Costa Brava Playa de Aro, Baliares- eyjan,MenorcaMahon,101Reykjavík, www.helenjonsson.ws og starplus.info. Sími 899 5863. S T Y K K I S H Ó L M U R Stresslosandi gæðagisting með heit- um pottum. Helgar- og/eða vikuleiga. orlofsibudir.is gsm: 861 3123. Heilsa Herbergi til leigu Erum með herbergi til leigu í nýrri heilsulind að Smiðjuvegi 4 fyrir heilsutengdar meðferðir. Upplýsingar í síma 618 3520, 865 4820, 691 4045. Antík Húsgögn Stórt kirsuberjalitað skrifborð í L Er með stórt L-laga en rúnnað skrif- borð til sölu en það var keypt í Hirzl- unni. Verð er 40.000 kr. og með fylgja skúffur á hjólum undir 2 stk. með borðinu. Sími: 860-7929. Þarf að losna við sem fyrst v/flutninga. Húsnæði í boði Íbúð - Arnarnesi, Garðabæ Falleg 3ja herb. íbúð ca.100 fm við sjávarsíðuna. Sérinngangur og bíla- stæði. Húsb., rafm., tv og hiti innif. Leigist rólegum og reykl. einstakl. eða pari (barnlausu). Gæludýr bönnuð. Laus strax. Verð 139 þús. S: 554 5545 og 867 4822. Ég á til leigu herbergi, stúdíó og íbúð. Verð frá 25 - 85 þús. Laust strax. Uppl. í síma 770 5500. Til leigu við Elliðavatn 76 fm stórglæsileg glæný íbúð við Akurhvarf 1, innifalið þvottav. /þurrkari/uppþottavél, hússjóður, frábært útsýni, suðursvalir. Leiga pr. mánuð 110. Upplýsingar á tölvupósti:. thorao@mbl.is og s.896 3362. Til leigu Lítið einbýlishús til leigu í miðbæ Hafnarfjarðar. 120 þús. á mánuði með hita og rafmagni. Laus strax. Uppl. í síma 822-3849 eða 821-2529. Hellisbraut 21, Hellissandi er til sölu Gamli sjarminn á sjávarbakkanum. Frábært útsýni. Á efri hæð, sem er 60 fm, er eldhús, baðherbergi, stofa, borðstofa, 1 svefnherbergi og forstofa. Á forstofu og svefnherbergi er plastparket, á stofu og borðstofu eru gömlu gólfborðin, á baðherbergi og eldhúsi eru korkflísar. Neðrihæðin er 38,8 fm, þar er for- stofa, geymslur og 1 svefnherbergi. Gólfefni vantar. Hitað er upp með hitatúpu og vatnsofnum. Húsið er mikið endurnýjað, en ekki að fullu. Möguleiki er á einu herbergi til viðbótar uppi og öðru niðri, sama sem 4 svefnherbergi. Verð 13. millj. Áhvílandi mjög góð lán frá Íbl.sjóði ca. 11,3 millj. Sjá mbl.is fasteignir. Upplýsingar í síma 861 7888. 4ra herb. í hverfi 104 Til leigu falleg 4ra herb. íbúð í lyftuhúsi við Ljósheima. Leiga 120 þús. pr. mán. Upplýsingar í síma 892 7798. Húsnæði óskast Óska eftir 4ra til 6 herb. íbúð á stór- Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í síma 848 0146. 3 - 4ra herbergja íbúð óskast Traustir, reyklausir og reglusamir leigjendur óska eftir 3-4 herbergja íbúð á Reykjavíkursvæðinu. Húsgögn og tæki æskileg en ekki skilyrði. Upplýsingar og verðhugmyndir send- ist á: ibudoskast1@gmail.com Atvinnuhúsnæði Skrifstofurými Mismunandi stærðir með eða án húsgögnum og aðstöðu til leigu. Uppl. í síma 824 5066. Skrifstofuaðstaða í Borgartúni Til leigu skrifstofuaðstaða eða vinnu- básar. Húsnæðið er nýinnréttað og glæsilegt, mikil lofthæð og norður- gluggar. Fundarherb., kaffiaðstaða og tölvulagnir. Uppl. í 698 5665 eða gunnarpall@internet.is Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Límtré Stigaefni heilstafa furulímtré 42 x 1200 x 5000 mm. Einnig hnotu, eikar og beyki límtré. Spónasalan ehf. Smiðjuvegi 40, gul gata, s. 567 5550. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Námskeið Flottar músamottur með dagatali Sendum um land allt. Skoðið úrvalið. www.ljosmyndari.is Sími 898 3911. Námskeið að verðmæti 50 þús. gefins í dag Kíktu á www.netvidskipti.is til að fá kennslu að verðmæti 50 þús. gefins! Þetta er okkar framlag til íslensku þjóðarinnar. Njóttu vel! Nú hefur hann Ási gamli kvatt okkur og af því tilefni langar okkur systkinin að minnast í nokkrum orðum hjónanna Ása og Guðrúnar. Ási og Guðrún bjuggu á neðri hæðinni í Bryggjuhúsinu en við systkinin á þeirri efri ásamt foreldrum okkar. Það má segja að þau hjónin hafi verið fastur þáttur í tilverunni öll okkar uppvaxtarár og eru margar minningar frá barnæskunni tengd- ar þeim. Ási og Guðrún voru okkur alltaf góð, þessum ólátabelgjum á efri hæðinni og sýndu okkur mikla hlýju þrátt fyrir að eflaust hafi þeim stundum þótt nóg um skark- alann sem okkur fylgdi. Ási var oft á rölti í kringum húsið þar sem við vorum að leik og gætti þess gjarn- an að við færum okkur ekki að voða. Það gat verið mikil spenna fólgin í því hvort hægt væri að komast undan vökulum augum Ása yfir Drottningarbrautina og niður á bryggju. Ási hafði húðflúr á hand- leggnum sem hann sýndi okkur stundum og sagði að væri gert með nál og vakti það bæði hrifningu okkar og hrylling. Það var hægt að leita til Guð- rúnar og Ása með ýmis erindi. Í eitt skipti kom lítil snúlla niður til þeirra og bar fram áhyggjur af barnleysinu hjá þeim. Hún hafði ✝ Ásmundur Jó-hannes Að- alsteinsson fæddist á Þinghóli í Glæsi- bæjarhreppi 20. des. 1921. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 14. nóvember síðastlið- inn og var jarðsung- inn 24. nóvember. lausina á reiðum höndum og bauð þeim með glöðu geði grenj- andi smábarnið á efri hæðinni. Barnið þáðu þau ekki en sú yngsta fékk þó oft að kúra í fanginu hjá Ása. Oft var líka hægt að fá að fela sig undir borði hjá þeim þegar eitt- hvað óþægilegt var í aðsigi á efri hæðinni. Þau leyfðu okkur jafnvel að koma niður á laugardagsmorgn- um til að horfa á barnatímann á Stöð 2 og höfum við grun um að foreldrar okkar hafi verið þeim æv- inlega þakklátir fyrir það. Oftast bönkuðum við þó upp á til að kanna upptök grunsamlegs bakstursilms og var okkur þá jafn- an vel tekið. Hún Guðrún var ein- staklega ljúf og rólyndisleg kona en við systkinin lærðum fljótt hvað það var sem helst gat komið henni úr jafnvægi. Það var reyndar elsti bróðirinn sem fyrstur gerði þá upp- götvun þegar hann jarðaði dauða mús í rabarbarabeðinu hennar. Það fór því aldrei framhjá okkur þegar músagangur var í húsinu. Þegar við hugsum til barnæsk- unnar í Bryggjuhúsinu birtast gjarna myndir af Guðrúnu að hlúa að blómunum í garðinum á hlýjum sumardegi og Ása sitjandi hjá á plaststólunum að spjalla um daginn og veginn. Það var yndislegt að fá að njóta samvista við þetta góða fólk og við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þeim. Við vottum ástvinum Ása samúð okkar og þá sérstaklega barna- börnunum sem eiga eflaust eftir að sakna góðs afa og vinar. Tryggvi Már, Sigrún Ella og Fanný Rut Meldal. Ásmundur Aðalsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.