Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 59

Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 59
Velvakandi 59 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞETTA ERU ANSI MARGAR PYLSUR ÉG VIL GETA RATAÐ AFTUR TIL SLÁTRARANS MIKIÐ ER ÞETTA SKEMMTILEGT... ÞAU BYRJA ALLTAF FUNDINA Á SÖNG! ÉG ÞARF AÐ SPILA HAFNABOLTA Í SKÓLANUM Á MORGUN. ÉG ÞOLI EKKI HAFNABOLTA MÉR FINNST GAMAN AÐ SPILA HAFNABOLTA MEÐ ÞÉR, EN ÞÁ FÁUM VIÐ BÁÐIR AÐ KASTA, SLÁ OG GRÍPA! VIÐ GETUM GERT ALLT SJÁLFIR! MÉR FINNST LANG SKEMMTI- LEGAST AÐ BÚA TIL REGLURNAR! Á MORGUN VERÐA LIÐ OG ALLIR ÞURFA AÐ SPILA SÍNA STÖÐU! ÞAÐ ER LEIÐINLEGT AÐ SPILA ÞANNIG! KANNTU ALVÖRU REGLURNAR ? ÞAÐ ER VANDAMÁLIÐ! EF ÉG VERÐ LÍNUMAÐUR Á MORGUN, MÁ ÉG ÞÁ TÆKLA ANDSTÆÐ- INGANA EÐA EKKI? HVAÐ VILTU FÁ AÐ BORÐA Í KVÖLD, HRÓLFUR? VILTU EKKI BARA KOMA OKKUR Á ÓVART? VILTU EKKI BARA KOMA MÉR Á ÓVART? HVAÐ MÁ BJÓÐA YKKUR Í KVÖLD? MJALLHVÍT KEMST EKKI... HÚN FÉKK EKKI PÖSSUN KRAKKAR, VIÐ FÓRUM EKKI Á TÓNLISTARHÁTÍÐ TIL AÐ ÞIÐ GÆTUÐ SITIÐ INNI Í TJALDI OG SPILAÐ TÖLVULEIKI! EN MAMMA! EKKERT „EN MAMMA“ NEITT! ÞAÐ ER HELLINGUR AF HLUTUM SEM ÞIÐ GETIÐ GERT HÉRNA. LEGGIÐ NIÐUR TÖLVURNAR OG GERIÐ EITTHVAÐ SKEMMTILEGT ÞAÐ ER EITT- HVAÐ AÐ ÞESSARI KYNSLÓÐ BAA! ER ÞETTA VIRKILEGA KÓNGULÓAR- MAÐURINN? SÁ EINI SANNI! MIG LANGAR AÐ TAKA BOÐI ÞÍNUM UM AÐ KOMA Í ÞÁTTINN Á MORGUN HVERNIG VEIT ÉG AÐ ÞÚ ERT SÁ SEM ÞÚ SEGIST VERA? HVER ANNAR GETUR SVEIFLAÐ SÉR TIL ÞÍN? MARÍA LOPEZ FÆR ÓVÆNT SÍMTAL Í MIÐJU AUGLÝSINGAHLÉI... ÞAÐ getur verið þægilegt að vera á hjóli þegar mestu umferðarhnútarnir eru síðari part dags og hjóla bara sína leið áhyggjulaus án hindrana. Morgunblaðið/Golli Hjólað yfir umferðina Skólinn í skammdeginu SKYLDI einhver vera þarna úti sem hugsar eins og ég? Mikið væri gott ef skólarnir byrj- uðu hálf níu í stað átta á morgnana? Það myndi muna svo miklu í skammdeginu. Börn og unglingar þurfa mikinn svefn og meiri í skamm- deginu. Þetta er alveg hreint með ólíkindum hvað margir skólar og kennarar eru ein- strengislegir og fastir í gömlum vana. Það er svo sannarlega kominn tími til að gera breytingar í mörgum skólum borgarinnar. Hlustið líka á nemend- urna og leyfið þeim að tjá skoðanir sínar. Í lokin langar mig að koma með ábendingu: Hvernig væri að nota minna orðið kreppa? Foreldri. Undrandi á Davíð ÉG verð nú bara segja það að mér finnst lélegt af herra Davíð Oddssyni að skemma friðhelgi forsetahjónanna herra Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Musaef. Hvers vegna í ósköp- unum þarf að vera hatur á milli fólks? Í Fréttablaðinu kom grein um hjóna- vígslu þeirra hjóna, að hún væri ekki gild. Ég var orðlaus og fjúkandi ill þegar ég las þessa frétt. Af hverju er það svo að þegar um forsetahjón eða frægt fólk er að ræða þá þarf að hnýsast í það til að fá upplýsingar? Um daginn var grein eftir konu varð- andi bankamálin. Þar var sagt að Davíð væri drengur góður. Ég er því ekki sammála. Gott fólk gerir ekki svona og hann ætti að skammast sín. Forsetahjónin eru flott hjón og eiga þetta ekki skilið. Það á að bera virð- ingu fyrir þeim. Lesandi. Undri undursamlegi UNDRI er blettahreinsir og um dag- inn var ég með dúk sem í var stór ljót- ur blettur og ég var búin að fara með hann í hreinsun og blettahreinsun. En svo þegar ég stóð frammi fyrir því að þurfa að kaupa mér nýjan dúk þá var mér bent á þetta efni, Undra, sem er í vökvaformi í flösku með íslenskum leiðbein- ingum. Langaði bara að benda á þetta fyrir þá sem standa frammi fyr- ir erfiðum blettum. Þetta er líka nátt- úruvænt efni. Elsa Pétursdóttir. Gullhringur tapaðist GULLHRINGUR tap- aðist í World Class í Laugum fimmtud. 27. nóv. Hringurinn er frekar breiður, tvískiptur með bláum steini og fjórum litlum hvítum. Hann hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eig- andann sem vonast eftir hringingu í 865-1852 með góðar fréttir af hringn- um og heitir fundarlaunum. Teskeiðahengi Á meðfylgjandi mynd er einskonar hilla eða „statíf“ til að hengja upp te- skeiðar sem maður kaupir á ferðum erlendis sem minjagripi. Þessar hillur fengust í Garðshorni í Reykjavík. Ef einhver gæti vísað mér á svona hillur eða sambærilegar vona ég að hann hringi til mín í síma 896-3918. Hjördís. Orðsending til Íslendinga NORÐMENN og Íslendingar eiga sameiginlega hagsmuna að gæta í norðurhafi. Þess vegna ættu Íslend- ingar að kanna möguleika á að taka upp norska krónu. Í staðinn fyrir að fórna sjálfstæðinu fyrir evruna. Eldri borgari.             Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | Jólafagnaður verður fimmtud. 4. des. kl. 17. Jólahugvekju flytur sr. Hans Markús. Hátíðarsöngvar Bergþór Pálsson, Jónas Þórir leikur á píanó. Lúsíur syngja. Tinna K. Victorsd 10 ára les jóla- sögu, jólahlaðborð frá Lárusi Loftssyni matreiðslumeistara. Skráning í s. 535- 2760 f. þriðd. 2.des. Breiðfirðingabúð | Jólafundur kl. 19, mánudaginn 1. desember. Félag eldri borgara, Reykjavík | Aðventuhátíð föstudaginn 5. des kl. 20. Hugvekju flytur sr. Anna Sigríður Páls- dóttir, aðventusaga, Jóhanna Þórodds- dóttir, Kreppusöngur, Helgi Seljan Frásögn af forsetaheimsókn, Kórsöngur Kór félags eldri borgara, danssýning, kaffiveitingar. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Árlegur laufabrauðsdagur hefst kl. 13 og aðventumarkaður verður á sama tína. Samkór Kópavogs syngur aðventulög kl. 14.30, Karlakór Kópavogs kemur með söng kl. 15.30 og Skólahljómsveit Kópa- vogs flytur nokkur lög kl. 16.15. Jólagóð- gæti á boðstólum. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri, m.a. opnar vinnustofur spilasalur, gönguferðir o. m.fl. Mánud. kl. 9 og fös- tud. kl. 13 er fjölbreytt leikfimi (frítt) í IR v/Skógarsel. Þriðjud. 2. des. kl. 7.30 er Anna Kristinsd. gestur í Pottakaffi í Breið- holtslaug. Hæðargarður 31 | Gunnar Hersveinn heimspekingur spjallar um lífsgildin og bók sína Orðspor 1.des. kl. 9. Fundur í Samráðshóp Hæðargarðs 10. Jólafundur Baráttuhóps um bætt veðurfar miðvikud. kl. 13.30. Páll Bergþórsson veðurfræð- ingur mætir á fundinn, s. 411-2790. Langahlíð 3 | Harmonikuhljómsveit og dans í dag kl. 15. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands- skóla v/Víðigrund kl. 9.30-10.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Aðventu- og jólafagnaður verður 11. des. Við bjóðum jólahlaðborð, Kvennakór Reykjvíkur syng- ur og sigurvegarar í dansi sýna sam- kvæmisdans. Óperusöngvarinn Arnar G. Hjálmtýsson. Jólasaga, jólahugvekja, skráning í síma 411-9450.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.