Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 64
64 Menning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 fyrsta orðabókin Ensk-íslensk og íslensk-ensk orðabók prýdd fjölda skemmtilegra mynda. Hentar byrjendum í ensku- námi heima og í skólanum. Án þess að hafa unnið sérneitt til frægðar nemavera börn foreldra sinna eru þau nú umsetin, stjörnubörn- in. Afkomendur Hollywood- stjarnanna hafa alltaf verið vin- sælt umfjöllunarefni hjá slúð- urmiðlum en líklega aldrei eins og nú. Enda krefst almenningur þess að fá að vita meira og meira um einkalíf fræga fólksins, allt frá klósettferðum til kynlífsins. Ekkert er orðið heilagt og hvað þá börnin sem fá ekki að njóta sakleysis og standa fyrir utan stjörnuljós foreldranna sem fengu sjálfir flestir eðlilega barnæsku fjarri fjölmiðlum.    Erfitt er að segja til um hvortkom á undan, hænan eða eggið. En aukning í stjörnu- barnafréttum virðist hafa komið í kjölfarið á því barnaæði sem hef- ur gripið um sig meðal stjarnanna sem fjölga sér nú eins og kanínur. Varla er hægt að fletta slúð- urblaði án þess að rekast á óléttu- fréttir, sannar eða lognar. Misjafnt er hvernig stjörnunum tekst að halda börnunum fyrir ut- an sviðsljósið. Sumar reyna að berjast gegn þessu, biðla í við- tölum til fjölmiðla að sýna börn- unum vægð, reyna að skýla þeim með öllum tiltækum ráðum fyrir ljósmyndurum eða fara í mál við blöðin fyrir að birta myndir af börnum þeirra. En það má líka kenna mörgum foreldrunum um þá athygli er beinist að börn- unum, þeir birtast á forsíðum slúðurblaðanna með börnin í fanginu áður en fósturfitan er þvegin af þeim og trana þeim fram í öllu sem þeir gera.    Ágangur ljósmyndara fær oftbörnin til að fara að gráta og ekki telst það nú verra myndefni. Slúðurbloggarinn Perez Hilton birti nýlega myndir af Gwen Stef- ani og Heidi Klum þar sem þær héldu á grátandi sonum sínum í fanginu á flugvelli þar sem fjöl- skyldan var umsetin af ljósmynd- urum. Perez sendi ljósmyndurum skammartóninn fyrir ágengnina en birti samt myndirnar. Eitt eftirsóttasta barn allra tíma, Suri, 2 ára dóttir Toms Cruise og Katie Holmes, er farin að gefa paparözzum illt auga og hjúfra sig upp að mömmu sinni til að fela andlit sitt. Reyndar eru fréttirnar af henni farnar að ganga svo langt að einn miðillinn fjallaði um það í löngu máli um daginn hvað Suri sést sjaldan í yf- irhöfn utandyra. Líklega er það út af því að ljósmyndaravegg- urinn í kringum hana skýlir vel fyrir veðri og vindum. Furðufuglinn Michael Jackson er gott dæmi um fullorðinn mann sem er skemmdur vegna athygli í barnæsku. Hann reynir að verja sín eigin börn fyrir athyglinni og sjást þau aldrei í fylgd föður síns nema með grímu. Það gæti nú reyndar gert þau skrítin líka.    Það virðist stundum gleymastað það á að vera val að vera í sviðsljósinu, foreldranir völdu sér frægðina í flestum tilfellum og það ættu börnin að fá að gera líka. ingveldur@mbl.is Slúðurskjóður vilja stjörnubörnin AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Barnalán? Surie, dóttir Tom Cruise og Katie Holmes, er umsetin af ljósmyndurum sem hafa ekki minni áhuga á stúlkunni en foreldrum hennar. Angelina Jolie og Brad Pitt eiga hins vegar sex börn og tímaritin eru tilbúin til að reiða af hendi fram gríðarlegar fjárhæðir fyrir myndir af þeim. »Án þess að hafa unniðsér neitt til frægðar nema vera börn foreldra sinna eru þau nú umset- in, stjörnubörnin. NÆSTUM því kvennarokksveitin Vicky (fjórar stúlkur, einn strákur) ríður hér á vaðið með fyrstu breið- skífu sína. Sveitin hét áður Vicky Pollard (enn eimir eftir af nafninu í titli frumburðarins) og hefur verið með mestu vinnuhryssun- um í íslensku neðanjarðar- rokki síðustu misseri. Tón- leikar hafa nán- ast verið viku- legt brauð og umsvif sveitarinnar hafa ekki einskorðast við Ísland, tónleikaferðalögum erlendis hefur verið svipt upp og meira að segja rokkbiblían Kerrang! er fallin kylli- flöt. Platan var tekin upp í fimmtán tíma lotu í Tankinum, hljóðveri á Flateyri við Önundarfjörð, og það fyrsta sem fær mann til að sperra eyrun er hversu ótrúlega vel hún hljómar. Það er hárfínt jafnvægi á milli þykkrar, bassaríkrar áferðar og svo rífandi hráleika sem verður að fylgja plötu eins og þessari. Vicky spilar adrenalínlegið pönk- rokk sem kallar óneitanlega fram í hugann sveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi/Bellatrix og Mammút. Einkanlega þó vegna söngraddar- innar, sem er NB frábær, en söng- konan Eygló syngur af mikilli orku og ástríðu. Vicky rokkar þó meira beint af augum en þessar hljóm- sveitir, það er ekkert um slaufur eða jaðarhopp; meira um einfalda keyrslu a la Mothorhead eða AC/ DC. Sveitin rennir sér í gegnum lögin níu af eftirtektarverðu öryggi, vitnisburður um mikinn þéttleika sem áunnist hefur á þessum hundr- uðum tónleika sem eru að baki. Helst er hægt að draga plötuna niður fyrir lagasmíðarnar. Lögin virka sem slík, en skortir tilfinn- anlega frumleika, einkum þegar á líður. Platan er þannig full-eintóna og hefði haft gott af smá uppbroti. En það er það eina sem raunveru- lega er hægt er að kvarta undan og eftir stendur ansi tilkomumikil frumraun. Til hamingu stelpur! (og þú þarna strákur …). TÓNLIST Geisladiskur Vicky - Pull Hard m Vicky verður með útgáfutónleika vegna plötunnar í kvöld í kjallara Skífunnar á Laugavegi 26. Hefjast þeir klukkan 20.00. Arnar Eggert Thoroddsen Adrenalínlegið pönkrokk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.