Morgunblaðið - 07.12.2008, Page 34
34 Hneykslismál
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2008
þrátt fyrir forréttindi í uppvextinum,
þakkaði hún foreldrum sínum fyrir að
hafa getað lifað eðlilegu fjölskyldulífi.
Faðir sinn hefði innrætt sér að vera
góðviljuð, sagði hún, en jafnframt
varað sig við hugsanlegum gildrum
og óheiðarleika fólks.
Herbergi 629 og
kynlífsmyndband
Síðustu dagana í heilsulindinni
eyddu þau Klatten og Sgarbi öllum
stundum saman, fóru í göngutúra,
drukku saman te og spjölluðu. Loks
skiptust þau á farsímanúmerum og
Klatten var ekki fyrr komin heim til
sín en hún hóf að senda hinum nýja
vini sínum textaskilaboð.
Þau ákváðu að hittast fjórum vik-
um síðar, í ágúst, á Holliday Inn í
Schwabing, listamannahverfinu í
München. Að undirlagi Sgarbis fengu
þau herbergi 629, einstaklega þægi-
legt herbergi með risastóru rúmi.
Lyfta frá bílageymslunni í kjall-
aranum stansaði rétt við dyrnar á
herberginu og því þurfti Klatten ekki
að fara gegnum gestamóttökuna og
eiga á hættu að þekkjast.
Um leið og þau hófu langþráðan
ástarleikinn kvikmyndaði gestur í
herbergi 630 aðfarirnar. Ítalska lög-
reglan sakaði 63 ára Ítala, Ernano
Barretta, leiðtoga sértrúarsafnaðar,
um að vera vitorðsmaður, hugsanlega
höfuðpaurinn, og tók hann fastan.
Þótt Barretta lýsti sig saklausan,
þykir ljóst að herbergi 629 var sér-
staklega valið til að leiða Klatten í
gildru. Sem hún gekk aftur í undir lok
sama mánaðar með hörmulegum af-
leiðingum.
Með mafíuna á hælunum
Að sögn Klatten lýsti Sgabri fyrir
henni sorginni, eða „sektarverknum“,
sem hann bæri innra með sér og héldi
fyrir sér vöku. Þannig var, sagði
hann, að þegar hann síðast var á ferð
í Miami hefði hann „flækst í“ umferð-
arslys. Ekki að það væri honum að
kenna, af og frá, en hann hefði engu
að síður keyrt á og valdið dauða ungr-
ar dóttur mafíósa. Nú væri mafían í
hefndarhug á hælunum á honum og
hótaði að skera hann í tætlur borgaði
hann ekki blóðpeninga, sem sam-
svara rúmum tveimur milljörðum ís-
lenskra króna. Sjálfur væri hann ekki
í vandræðum með að borga tæpan
þriðjung, en hvaðan ætti restin að
koma? spurði hann daufur í dálkinn.
Árið 2000 hafði hann reynt svipaða
brellu á áttræða greifynju, en vinir
hennar komu í veg fyrir ráðabruggið
áður en sú aldna lét glepjast. Klatten
var vitaskuld allsendis ókunnugt um
þetta, Sgabri var leyndarmálið henn-
ar og, eins og hún viðurkenndi síðar
lesa bók, Gullgerðarmanninn eftir
Paulo Coelho, þegar Sgarbi vatt sér
að henni og sagði einfaldlega: „Uppá-
haldsbókin mín,“ og tyllti sér hjá
henni.
Sgarbi, sem skráði sig inn á heilsu-
lindina þremur dögum á eftir Klat-
ten, virtist í fyrstu ekki gefa henni
mikinn gaum, rétt kinkaði til hennar
kolli við morgunverðarborðið. Hann
lét ekki til skarar skríða með fyrr-
greinda „pikkup-línu“ fyrr en fjórum
dögum áður en Klatten hugðist halda
heim til eiginmanns síns og þriggja
barna í villuna sína í München. Hún
hreifst af þessum kurteisa manni og
smám saman vall ævisagan út úr hon-
um. Sumt var sannleikanum sam-
kvæmt, annað helber lygi.
Sgarbi ólst upp í Brasilíu, þar sem
faðir hans var yfirmaður starfsemi
svissneska verkfræðifyrirtækisins
Sulzer í Suður-Ameríku, og því talaði
hann portúgölsku reiprennandi. Líka
spænsku, frönsku, ensku, þýsku og
ítölsku, sagði hann, en nefndi ekki að
hann væri giftur ítalskri konu. Hann
kvaðst vera liðsforingi í svissneska
varaherliðinu – og svo spann hann af
fingrum fram. Svissneska rík-
isstjórnin átti nefnilega til að hóa í
hann til að greiða á laun úr hættu-
ástandi á erlendri grund. „Gíslatökur
og þvíumlíkt,“ laug hann til útskýr-
ingar, og bætti við að sér væri mikill
sómi sýndur að vera falin slík verk;
sannkölluð gustukaverk.
Allt féll þetta vel í kramið hjá Klat-
ten, sem ver miklum tíma í að ráð-
stafa hluta Quant-auðæfanna til góð-
gerðarmála. Auk þess dáðist hún að
skyldurækni Sgarbis gagnvart hern-
um, hversu opinn og ævintýragjarn
hann var, hugulsamur og nærgætinn.
Ekki þótti henni heldur verra að þau
deildu saman áhuga á Coelho. Undir
yfirborðinu skynjaði hún hjá honum
depurð, sem gerði hann bara enn
meira aðlaðandi í hennar augum.
Hamingjuhormóninn
„Svona menn vekja móðurlegar til-
finningar hjá konum. Í byrjun langar
þær til að annast þá og hafa áhyggjur
af þeim. Allt í einu eru þær lentar í
sambandi, sem er félagslega fyrir
neðan þeirra virðingu. Síðan kemur
þáttur hins forboðna, leyndarmálsins,
sem leysir hamingjuhormóninn úr
læðingi og skapar fíkn,“ segir
Christine Baumanns, sálfræðingur,
sem sérhæfir sig í parameðferð og
fjölmiðlar fengu til að lesa í samband
þeirra Klatten og Sgarbis.
Milljarðamærin, sem alin var upp
við að vera á varðbergi gagnvart gull-
gröfurum, var kolfallin fyrir einum
slíkum, 46 ára gömul. Í viðtali við
þýskt blað í liðinni viku sagði hún að
Þótt ólíklegt sé talið að Helg Sgarbi, fjár-
kúgari Susanne Klatten, eigi harma að
hefna gagnvart Quandt-fjölskyldunni, er
því trúlega öfugt farið um marga. Fortíð-
inni verður ekki breytt né því hvernig
Günther Quandt, afi Susanne, lagði
grunn að auðæfum fjölskyldunnar. Hann
hóf að framleiða einkennisbúninga í fata-
verksmiðju föður síns í fyrri heimsstyrj-
öldinni, en eftir stríðið færði hann út kví-
arnar, stofnaði meira en 100 fyrirtæki og
framleiddi skotvopn fyrir Þriðja ríkið.
Stærsta fyrirtæki hans, Accumulatoren-Fabrik
(AFA), framleiddi rafbúnað fyrir kafbáta, skrið-
dreka og eldflaugar. Árið 1937 var hann heiðr-
aður af Adolf Hitler fyrir framlag sitt til her-
gagnaframleiðslu.
Quandt-ættinni er einkum legið á hálsi
fyrir að hjá AFA var illa haldið fólk úr út-
rýmingarbúðum nasista ráðið til að
strita í verksmiðjunum við hættulegar
aðstæður.
Herbert
Quandt
Faðir Susanne
Klatten.
QUANDT-VELDIÐ
OG FORTÍÐIN
Milljarðamær dregin
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
R
íkasta kona Þýskalands og
þriðja ríkasta kona Evr-
ópu, Susanne Klatten,
erfingi Quandt-
auðæfanna, varð fórn-
arlamb svika og fjárkúgunar vegna
trúgirni sinnar og hliðarspors með
ósvífnum svissneskum flagara. Mála-
vextir eru með ólíkindum, minna
helst á æsispennandi, en klisju-
kenndan reyfara, þar sem auk millj-
arðaprinsessunnar og svikahrapps-
ins, Helg Sgarbi, herra S, eins og
hann er kallaður í dómskjölum, koma
við sögu kynlífsmyndband og -ljós-
myndir, mafían, þrælabúðir nasista
og ítalskur sértrúarsöfnuður. Meira
að segja hraðskreiðir bílar til að full-
komna klisjuna, BMW nánar tiltekið.
Þótt ætla mætti að hin gríðarlega
auðuga, veraldarvana og vel gifta, að
því er talið var, Susanne Klatten væri
ekki árennilegt fórnarlamb fyrir gosa
á borð við Sgarbi, varð hún honum
auðveld bráð. En kannski var hún
bara svona óhamingjusöm í einkalíf-
inu eða illa fyrirkölluð. Að minnsta
kosti dvaldi hún í heilsulind nálægt
Innsbruck í Austurríki þegar fundum
þeirra fyrst bar saman í júlí í fyrra,
en þangað kemur ríka fólkið til að
létta af sér streitu, sofa mikið og
drekka jurtate í baðsloppum. Og þar
kom Sgarbi sér lymskulega í mjúkinn
hjá Klatten, laug og smjaðraði ótæpi-
lega þegar hann lagði snörurnar fyrir
hana.
Hann þykir ekkert sérstaklega
mikill fyrir mann að sjá, hár og
grannur að vísu, með hvítglerjaðar
tennur. Afskaplega snyrtilegur, slétt-
ur og felldur eins og löglærður
bankamaður – sem hann er, eða var,
því nú dúsir hann í fangelsi í Münc-
hen og bíður réttarhalda vegna fjár-
kúgunar.
Snörurnar lagðar
Sjálfur hafði hann grobbað af því
við vini sína að geta lesið konur eins
og opna bók. Klatten var einmitt að
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
www.vidskipti.hi.is
Samtök fjárfesta í samstarfi við viðskiptafræðideild HÍ
Miðvikudaginn 10. desember kl. 12.00
Hátíðasalur Háskóla Íslands
Göran Persson
Lærdómur Svía af fjármálakreppu tíunda áratugarins
– byrðunum dreift og nýjar vonir vaktar
Göran Persson var forsætisráðherra Svíþjóðar frá 1996 til
2006. Þegar Svíþjóð fór með forsæti í Evrópusambandinu
var Göran Persson jafnframt forseti ráðherraráðsins. Göran
Persson var fjármálaráðherra á tímum bankakreppu í Svíþjóð.
Göran Persson hefur mikla reynslu í alþjóðastjórnmálum sem
og málefnum Evrópusambandsins og málefnum tengdum
loftslagsbreytingum og ekki síst þeim ógnum sem steðja að
velferðarsamfélaginu nú um stundir.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.