Morgunblaðið - 18.02.2009, Blaðsíða 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6 3 7
7 3 6 5
8 5 2 4
3 6 8 9
4 2
4 5 1 7
5 9 8 3
9 4 3 6
7 1 9
6 7 3
8 9
8 3 1 4
6 8 1 7
2 4 1 9
9 8 6 5
2 7 6 9
9 2
4 3 2
4 8 7 1 6
7 8 3
3 8
5 2 1 7 9
7
2 7 4 8 5
9 4
1 6 7
3 2 4 8 5
7 5 6 2 1 4 3 9 8
9 8 2 5 7 3 4 1 6
4 1 3 8 6 9 2 5 7
6 7 8 4 9 1 5 2 3
2 3 4 6 8 5 9 7 1
5 9 1 3 2 7 8 6 4
1 4 9 7 5 8 6 3 2
8 6 5 1 3 2 7 4 9
3 2 7 9 4 6 1 8 5
4 3 8 6 5 1 2 9 7
9 1 7 8 2 4 3 6 5
2 5 6 9 3 7 1 8 4
3 9 4 5 8 2 7 1 6
6 8 1 7 4 3 5 2 9
5 7 2 1 9 6 4 3 8
8 2 9 4 1 5 6 7 3
7 4 3 2 6 9 8 5 1
1 6 5 3 7 8 9 4 2
9 8 3 5 6 1 2 7 4
2 1 7 4 8 9 6 5 3
4 6 5 2 3 7 1 9 8
5 7 6 9 4 3 8 1 2
3 2 1 8 7 5 9 4 6
8 4 9 1 2 6 7 3 5
6 3 4 7 1 8 5 2 9
1 5 2 6 9 4 3 8 7
7 9 8 3 5 2 4 6 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 18. febrúar,
49. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Því að augu Drottins eru
yfir hinum réttlátu og eyru hans
hneigjast að bænum þeirra. En auglit
Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra.
(1Pt. 3, 12.)
Sigur Stjörnunnar á KR-ingum íbikarúrslitaleiknum í körfu-
knattleik karla var sögulegur. Fyr-
irfram trúði sennilega enginn að
Stjarnan ætti möguleika fyrir utan ef
til vill leikmenn liðsins og þjálfara,
galdramanninn Teit Örlygsson. Ann-
að kom á daginn. Lið KR er ef til vill
stjörnum prýtt, en Stjarnan skein
skærar. Margt hjálpaðist að hjá
drengjunum í Garðabænum. Justin
Shouse átti að öðrum leikmönnum
Stjörnunnar ólöstuðum stórleik, hitti
úr þriggja stiga skotum og þegar
hann var aðþrengdur tókst honum að
finna lausan samherja í auðveldu
færi.
x x x
Leikmenn Stjörnunnar hafa rifiðupp leik sinn eftir að Teitur Ör-
lygsson tók við liðinu. Þeir vissu ná-
kvæmlega hvað þeir ætluðu að gera á
móti KR. Teitur hafði greinilega lesið
leik liðsins eins og opna bók. KR-
ingar eru ef til vill með hæfasta
mannskapinn, en reiða sig á gegn-
umbrot. Á þau lokaði Stjarnan og
andstæðingarnir voru ráðalausir.
„Þetta er bara leikur,“ sagði Teitur í
viðtali fyrir viðureignina. Þann leik
kann þjálfarinn. Á morgun mætast lið
Stjörnunnar og KR í venjulegum
deildarleik. KR-ingar vilja ugglaust
sýna hvað í þeim býr og veita Stjörn-
unni ráðningu á heimavelli. Sigur í
þeim leik yrði kannski plástur á sár
Vesturbæjarliðsins, en hann yrði
merkingarlaus. Leikurinn, sem skipti
máli, var á sunnudag.
x x x
Kvennalið KR hélt uppi heiðriVesturbæjarliðsins með glæsi-
legum sigri á Keflavík. KR-ingar voru
greinilega vel undirbúnir og náðu
góðri forustu á fyrstu mínútunum.
Keflvíkingum tókst að komast inn í
leikinn og jafna í þriðja leikhluta, en
þá fór Vesturbæjareimreiðin af stað á
ný án þess að andstæðingarnir fengju
við ráðið. Hildur Sigurðardóttir
stjórnaði leik liðsins eins og herfor-
ingi og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
átti stórleik. Árangur liðsins undir
stjórn Jóhannesar Árnasonar hefur
verið til fyrirmyndar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 pretta, 4 þorp-
ara, 7 peningum, 8 spar-
söm, 9 ullarhár, 11 hey,
13 seyða brauð, 14 skaka,
15 kvenfugl, 17 krók, 20
eldstæði, 22 lítilfjörlega
persónu, 23 ósvipað, 24
kjánar, 25 muldri.
Lóðrétt | 1 brátt, 2 for-
ræði, 3 vesælt, 4 vistir, 5
hagnýta, 6 deila, 10 víð-
ur, 12 keyra, 13 hrygg-
ur, 15 gera ráð fyrir, 16
Asíuland, 18 kven-
mannsnafni, 19 snáði, 20
belti, 21 dægur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 treggáfuð, 8 hosur, 9 lenda, 10 krá, 11 flaga,
13 karfa, 15 svelg, 18 sigur, 21 rit, 22 liðnu, 23 aular, 24
ringlaður.
Lóðrétt: 2 rispa, 3 gúrka, 4 Áslák, 5 unnur, 6 óhóf, 7
bana, 12 gól, 14 asi, 15 soll, 16 eyðni, 17 grugg, 18 stafa,
19 guldu, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c6 4. e4 Bb4 5.
cxd5 exd5 6. e5 c5 7. a3 Ba5 8. Rf3 Bg4
9. Bb5+ Rc6 10. 0–0 cxd4 11. Dxd4
Bxf3 12. gxf3 Rge7 13. Bg5 0–0 14. Dh4
Rxe5 15. Kg2 f6 16. Be3 Dc8 17. Hac1
Df5 18. Be2 Hfd8 19. Hfd1 R7g6 20.
Dg3
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir nokkru í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Jó-
hann H. Ragnarsson (2.118) hafði
svart gegn Frímanni Benediktssyni
(1.939). 20. … d4! 21. Hxd4 Hxd4 22.
Bxd4 Rf4+ 23. Kf1 Bxc3 24. Hxc3
Db1+ og hvítur gafst upp enda mát í
næsta leik.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Pressusagnir.
Norður
♠654
♥DG42
♦K872
♣Á5
Vestur Austur
♠97 ♠Á103
♥K9 ♥Á965
♦4 ♦1063
♣KDG107643 ♣982
Suður
♠KDG82
♥1073
♦ÁDG95
♣--
Suður spilar 4♥.
Tilgangur pressusagna er að neyða
mótherjana til að taka óupplýsta
ákvörðun – til að giska. Ef slíkar sagnir
eiga að gegna hlutverki sínu sem skyldi
verða mótherjarnir að hafa eitthvert
raunhæft val. Það er gagnslaust að
hindra svo hátt að ekkert nema refsi-
dobl komi til greina. Þá er ekki um
neina ágiskun að ræða.
Lítum á spil vesturs. Það er enginn á
hættu, austur passar í byrjun og suður
opnar á 1♠. Hvað á vestur að segja
mörg lauf?
Spilið er frá úrslitaleik NEC-
bikarsins og þar fann kínverska konan
Sun Ming mátulega hindrun með því að
stökkva í 4♣. Norður doblaði neikvætt
og suður valdi 4♥ á þrílitinn. Allir pass
og 4♥ fóru tvo niður. Á hinu borðinu
sagði vestur 2♣ við 1♠ og þorði svo
ekki annað en að fórna í 5♣ yfir 4♠.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhverjar breytingar eru yf-
irvofandi og margt kallar á athygli þína
þessa dagana. Með einhverjum hætti
gæti eitthvað sem einhver annar á kom-
ið sér vel fyrir þig eða heimilið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú verður að gaumgæfa framtíð
þína. Leyndarmálið felst í því að eyða
ekki um efni fram heldur grípa taf-
arlaust til íhaldssamra og áreiðanlegra
aðgerða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur ekki mikla löngun til
þess að vinna í dag. Samræður við aðra
um heimspeki, trúarbrögð og stjórnmál
æsa þig upp.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gættu þess að vera sérstaklega
skýr í öllum tjáskiptum við aðra í dag.
Krabbinn fær tækifæri til þess að kenna
og læra í leiðinni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú mátt ekki láta deigan síga, held-
ur sækja fram af fullri djörfung til þess
sem þú vilt. Taktu stjórnina í þínar
hendur í stað þess að láta tilviljanirnar
ráða ferðinni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Skemmtanaiðnaðurinn laðar og
lokkar, en þar sem annars staðar er hóf
best á hverjum hlut. Láttu ekki hugfall-
ast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú stendur frammi fyrir vali sem
getur haft örlagaríkar afleiðingar í
framtíðinni. Hættu að vera of almenni-
legur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Allir þurfa hvatningu, ekki
síst þú. Að hlusta er góð gjöf. Treystu
eðlisávísun þinni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Biddu mjúk og læknandi öfl
að vernda þig frá þeirri tilfinningalegu
þreytu sem hlýst af erfiðu verki.
Reyndu að stilla þeim í hóf.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Leggðu grunninn nú að breyt-
ingum á umhverfi þínu. Flýttu þér að
læra að skilja í milli þess sem skiptir
máli og hins, sem er hrein tímasóun.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú vilt ekki setja margar
reglur í samböndum þínum, og þess
vegna er auðvelt að vera vinur þinn.
Fylgdu hjarta þínu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ráðgátur daglegs lífs vekja for-
vitni fiskanna. Reyndu að brosa og auka
þekkingu þína og skilning á framandi
hugmyndafræði og menningu.
Stjörnuspá
18. febrúar 1875
Eldgos hófst í Sveinagjá á Mý-
vatnsöræfum. Sumir telja það
undanfara Öskjugossins rúm-
um mánuði síðar.
18. febrúar 1885
Snjóflóð féll á fjórtán íbúðar-
hús á Seyðisfirði og varð 24
mönnum að bana.
18. febrúar 1910
Tuttugu manns fórust er snjó-
flóð féll úr Búðarhyrnu á
byggðina í Hnífsdal, margir
slösuðust og eignatjón varð
mikið. „Eldsnöggt eins og
byssuskot dundi það yfir, eng-
inn fékk minnsta svigrúm til
þess að forða sér,“ sagði í
vikublaðinu Vestra.
18. febrúar 1959
Vitaskipið Hermóður fórst í
stormi og stórsjó undan Höfn-
um á Reykjanesi með allri
áhöfn, tólf manns. Skipið var á
leið frá Vestmannaeyjum þar
sem það hafði verið við störf á
vegum Landhelgisgæslunnar.
18. febrúar 2003
„Hrikalegar vindhviður ollu
milljónatjóni á Seyðisfirði,“ að
sögn Morgunblaðs. Meira en
þrjátíu hús skemmdust og
einnig tíu bílar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Elsa Waage er
fimmtug í dag.
Hún er fædd í
Reykjavík en býr
núna í Como á
Ítalíu. Heim-
ilisfangið er Via
Prudenziana
2122200 Como
(CO) Italy.
Heimasíða Elsu er elsawaage.com
netfangið, elsa.waage@gmail.com
og farsími ( 39) 335 5938236.
50 ára
„ÉG HEF verið að hugsa um hvað gæti verið mesta
tilbreytingin í tilefni dagsins. Nú er ég búin að finna
að það er mesta tilbreytingin fyrir mig að hjálpa
þeim í Samhjálp í dag til að hafa læri og hugguleg-
heit fyrir þá gesti og gangandi sem þangað koma á
hverjum degi,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir, fyrr-
verandi ráðherra, um það hvernig hún hyggist
verja sextugsafmælisdeginum í dag.
„Þannig að ég ætla að hafa miðdegismat klukkan
þrjú fyrir gesti Samhjálpar í Borgartúni 1. Mig
langaði virkilega til að þetta fólk fengi einn dag
mikla tilbreytingu í mat. Ég hugsaði með mér
hverjum ég ætti helst að skemmta og þá datt mér þetta fólk í hug og þá
líka í miklu virðingarskyni við þá sem reka þetta allt árið. Þeir hafa úr
litlu að spila en geta samt alltaf boðið upp á veitingar.“
Aðspurð hvernig matarinnkaupum verði háttað fyrir allan þennan
fjölda segir Ingibjörg að dag hvern borði um 120 manns hjá Samhjálp
og að það sé matráðsins að sjá um að nóg verði til.
„Ég vona bara að þetta verði nokkrar rollur. Því fleiri, því betra,“
segir Ingibjörg og hlær við. Hún er gift Haraldi Sturlaugssyni og eiga
þau fjóra syni, Sturlaug, Pálma, Ísólf og Harald. baldura@mbl.is
Ingibjörg Pálmadóttir er sextug í dag
Slær upp veislu í Samhjálp
Nýirborgarar
Reykjavík Emma Þórunn
fæddist 4. október kl. 3.59.
Hún vó 2.080 g og var 45
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Sigrún Halla Ás-
geirsdóttir og Oddgeir
Guðmundsson.
Reykjavík Bragi Leó og Bjarni Dagur fæddust 3.
október. Bragi Leó fæddist kl. 5.17. Hann vó 2.300 g
og var 45 cm langur. Bjarni Dagur fæddist kl. 5.50.
Hann vó 2.950 g og var 50 cm langur. Foreldrar þeirra
eru Birna Ásgeirsdóttir og Stefán Þór Bjarnason.