Morgunblaðið - 18.02.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.02.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Guðrún. Elsku fallega, yndislega Guðrún. Mig langar bara að þakka þér fyrir áralanga vináttu. Já ótrúlegt en satt en við erum búnar að þekkjast í 30 ár. Ég var sex ára þegar ég flutti í Hamragarðinn og á móti mér tókst þú, þessi fallega ljóshærða stelpa með stóru brúnu augun. Þú varst tveimur árum eldri en ég og mér fannst þú klárasta manneskjan sem ég hafði kynnst. Þú fékkst það hlutverk að lesa textann við Húsið á sléttunni upphátt svo ég myndi skilja hvað var að gerast, þú fórst stundum í bíó og iðulega var sögustund á eftir þar sem hverju smáatriði var lýst fyrir mér og Guðrún, ég þurfti ekkert að fara í bíó, sögustundirnar þínar voru miklu skemmtilegri. Ég minnist óteljandi ferða í sum- arbústaðinn okkar í Kjósinni þar sem við fórum ýmist með mömmu og pabba eða Bóbó bróður. Þá komu iðu- lega einhverjir fleiri með eins og Jóa og Ragga eða Thelma. Og ekki má gleyma ferðinni í löggubústaðinn í Munaðarnesinu. Og manstu hvað okkur fannst spennandi að fara með rútunni til Reykjavíkur og passa fyrir Sigurjón bróður. Elsku Guðrún, minningarnar eru óteljandi og síðustu daga hef ég stundum bara skellt upp úr með tárin í augunum því það var svo yndislegt að rifja upp þessa tíma með þér. Ég gleymi því ekki þegar ég festi hausinn á mér í bitunum í eldhúsinnrétting- unni heima hjá þér eða læsti mig í lögguhandjárnunum hans pabba þíns svo kalla þurfti hann úr vinnunni. Þó svo við færum hvor í sína áttina á unglingsárum áttum við alltaf sér- stakan stað í hjarta hvor annarrar, við héldum alltaf sambandi þótt við byggjum hvor í sínu landinu. Þú varst svo ánægð með Ken þínum, enda vart glæsilegri hjón að finna, og börnin þín þrjú voru þér allt. Þegar ég flutti aft- ur til Keflavíkur fyrir ári mætti ég bara í kaffi til þín. Og það var eins og við hefðum hist í gær. Þú varst alltaf með opið húsið og allir velkomnir í heimsókn. Þannig var það bara, það var svo gott að vera í kringum þig. Þegar við hittumst síðast í desem- ber sagðirðu við mig: Magga, á ég ekki enn plássið á hlaupanámskeiðinu Guðrún Björk Rúnars- dóttir Frederick ✝ Guðrún Björk Rún-arsdóttir Freder- ick fæddist í Keflavík 5. ágúst 1971. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Keflavík 23. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Keflavík- urkirkju 3. febrúar. í vor? Ég hélt það nú, plássið væri þitt þar sem þú tábrotnaðir á síðasta námskeiði og varðst að hætta. Elsku vinkona, við hlaupum saman næst þegar við hittumst og ég er viss um að þar fær maður ekki einu sinni hlaupasting. Ég lofaði að kíkja í kaffi til þín í janúar, ég vildi ég gæti spólað til baka og ég hefði gefið mér tíma til að kíkja. Að frétta af andláti þínu er eins og vondur draumur og maður bíður eftir að vakna og allt verður eins og áður. Því miður er veruleikinn annar. Elsku Ken, Gunnar Már, Sara Margrét og Viktoría, elsku Rúnar og Fríða og aðrir aðstandendur, missir ykkar er meiri en orð fá lýst. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Guðrún mín: „When I think of ang- els, I think of you.“ Þín Margrét Elísabet Knútsdóttir. Elsku hjartans Guðrún mín, orð fá ekki lýst hve harmi slegin ég er yfir því að þú sért farin frá okkur. Mér er ekki nokkur leið að skilja hvers vegna þú þurftir að fara. Fara frá börnunum þínum sem þú elskaðir svo heitt, og Ken, ást lífs þíns, og okk- ur hinum sem þótti svo óendanlega vænt um þig. Þú varst svo ástfanginn af honum Ken þínum og hann sá ekki sólina fyr- ir þér. Mér fannst svo yndislegt að vera nálægt ykkur. Þið voruð ekki bara yndisleg hjón heldur líka bestu vinir. Ég hugsa um orð sem lýsa þér best og það er alltaf eitt orð sem stendur upp úr og það er orðið yndisleg. Þú varst yndislega falleg, yndislega góð, yndislega skemmtileg, yndisleg móðir, yndisleg eiginkona, yndisleg húsmóðir og yndisleg vinkona. Þu tileinkaðir fjölskyldunni líf þitt og gafst þeim allt sem þú áttir. Börnin þín og Ken voru þér allt og hugga ég mig við það þegar ég hugsa til þess hversu stutt ævi þín varð að þá fékkstu að upplifa allt það besta sem lífið hefur fram að færa, sanna ást, heilbrigð og falleg börn og sanna hamingju. Þú varst mér sannur vinur og stóðst við hlið mér sem klettur þegar ég átti í erfiðleikum og er ég þér æv- inlega þakklát. Ég get ekki hugsað mér líf mitt án þín, elsku Guðrún mín, allra skemmti- legu samtalanna heima við eldhús- borðið þitt, 2-3 tíma símtalanna þar sem við töluðum um allt milli himins og jarðar, göngutúranna mörgu sem gáfu okkur svo mikið. Allar góðu minningarnar sem við eigum saman mun ég geyma í hjarta mínu að eilífu. Lífið er svo ósanngjarnt! Ég hugga mig við það að þú sért hjá Guði núna og hafir þurft að fara til að sinna meiri og mikilvægari verk- efnum en jörðin hefur að bjóða. Þín verður sárt saknað, Elsku Ken, Gunnar Már, Sara Margrét og Viktoría Lynn. Góður Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk. I will always be there for you. Rúnar og Fríða, ég þakka ykkur fyrir alla þá hlýju sem þið hafið sýnt okkur vinkonunum í þessari miklu sorg. Ég bið góðan Guð að vera með ykk- ur og gefa ykkur styrk. Særún, Lúlli, Gunni og fjölskyldur, Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk. Hvers virði er allt heimsins prjál ef það er enginn hér sem stendur kyrr er aðrir hverfa braut, sem vill þér jafnan vel og deilir með þér gleði og sorg þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin. Hvers virði er að eignast allt, í heimi hér, en skorta það eitt, sem enginn getur keypt. Hversu ríkur sem þú telst og hversu fullar hendur fjár, þá áttu minna en ekki neitt, ef þú átt engan vin. Það er komin vetrartíð, með veður köld og stríð, ég stend við gluggann, myrkrið streymir inn í huga minn, þá finn ég hlýja hönd, sál mín lifnar við , einsog jurt sem stóð í skugga en hefur aftur litið ljós, vetrarsól. (Ólafur Haukur Símonarson.) Hvíl þú í friði, elsku vínkona mín I love you always and forever. Þín, Halla. Góð vinkona er gulli dýrmætari, sannleiksgildi þeirra orða hefur aldrei verið mér augljósara en nú, er ég minnist vinkonu okkar. Guðrún Rúnarsdóttir er horfin á ei- lífðarbraut allt of ung að árum, og við stöndum hér eftir þungum harmi sleginn. En mitt í skugga sorgar og saknaðar streyma minningarnar fram, minningar frá skemmtilegum og góðum samverustundum okkar sem við geymum eins og dýrmætar perlur í hjörtum okkar. Hún Guðrún var mjög góð vinkona, geislandi falleg að innan jafnt sem ut- an, hún var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Það var endalaust hægt að ræða málin við hana, alltaf tók hún við og taldi það ekki eftir sér. Það var alltaf gaman og gott að koma inn á heimili Guðrúnar og Kens, það ríkti svo mikil gleði og hamingja að manni leið svo vel. Hún var hrókur alls fagnaðar, geislaði alltaf af gleði og stríðnin var ekki langt undan. Hún var alltaf hreinskilin, alltaf svo blíð og sannur vinur í orðsins fyllstu merk- ingu. Við vinkonurnar vorum að taka okkur á, byrjaðar í líkamsrækt og búnar að plana allskyns hitting með börnum okkar og mökum, það átti bara að vera skemmtilegur tími hjá okkur framundan. En guð hefur greinilega vantað góðan engil til að sinna einhverju verkefni. Nú þegar við kveðjum þessa ynd- islegu vinkonu verða fátækleg orð að- eins endurómur af því þakklæti sem í hjartanu býr. Við þökkum guði fyrir það að hafa fengið að njóta samvista við hana á liðnum árum. Eftir þessi kynni við hana verður líf okkar auð- ugra en áður. Við sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og allra ástvina hennar og biðjum al- góðan guð að gefa þeim huggun og styrk í þeirra miklu sorg. Elsku Guðrún hjartans þakkir fyrir allt. Elsku besta vinkona, nú leiðir okkar skilja, í lífsins dýpsta harmi, hér minningarnar ylja. Okkar góða samleið var eins og sólskinsdagur, auðugur af gleði, bjartur hlýr og fagur. Við hinstu hvílu þína, er hníga kveðju tárin, þér heitar þakkir færum og þökkum liðnu árin. Við geymum góðar stundir sem helgidóm í hjarta, kveðjum þig með tárum, en eigum minningu ljúfa og bjarta. (Höf. ók.) Elsku Guðrún, blessuð sé minning þín. Linda, Ívan og börn. Elsku Guðrún mín. Þá er komið að kveðjustund. Aldrei hefði mér dottið í hug að við ættum ekki eftir að eldast saman. Ég verð að trúa því að það sé meining með því að Guð tók þig svona fljótt til sín og skilur fjölskyldu þína og vini, sem voru svo margir, eftir með sorg í hjarta. Ég trúi því eigin- lega ekki að þetta hafi getað gerst. Þú varst svo ung, bara einu ári yngri en ég, og svo full af gleði og ást. Það er erfitt að trúa að dauðinn sé svona ná- lægt okkur en svona er lífið, það gefur og það tekur. Að setjast svo niður í þessari sorg og rifja upp minningarnar um okkur saman getur maður ekki annað en brosað yfir þeim og þakkað fyrir að eiga þær og munu þær eldast með mér. Kannski hittumst við aftur og þá getum við rifjað þær upp saman og hlegið að því hvað við vorum uppá- tækjasamar. Eins og þegar við vorum klukkustundum saman inni á klósetti á Grænagarði. Eða heima hjá mér á Kirkjuvegi. Þú elskaðir kjúklinginn hennar mömmu og frönskurnar. Þú varst svo mikil matkona og vildir allt- af vera heima hjá þér á matmálstíma því að mamma þín var alltaf með eitt- hvað gott í matinn, grillaðan fisk eða steikur með piparostasósu. Það var svo skemmtilegt tímabilið þegar við keyrðum bílana fyrir strák- ana. Svo fór ég út til Svíþjóðar sem au-pair. Það var svo erfitt að kveðja. Þegar ég kom heim fórum við að vinna allar þrjár, ég, þú og Helga Birna, í Sigurjónsbakaríi og það var mikið fjör hjá okkur. Líka þegar við fórum að vinna í fiski í Höfnunum og ætluðum að kaupa eitthvert gamalt hús og gera það upp. Eða þegar við straujuðum hárið hvor á annarri með straujárni áður en við fórum út að skemmta okkur. Þjórsárdalsferðin þegar við strönd- uðum í ánni á bát með kassettutækið að hlusta á Queen. Náttfatapartíin og aðrar skemmtilegar uppákomur. Endalaust gæti ég talið upp þessi augnablik með þér. Svo varðstu ófrísk að Gunnari Má. Það var mér mikill heiður að fá að ganga með þér í gegn- um það tímabil og að þú skyldir vilja hafa mig hjá þér þegar hann fæddist. Auðvitað vorum við ekki eins mikið saman og áður en við áttum okkar augnablik. Þú hefur alltaf verið besta vinkona mín. Ég hef treyst þér fyrir öllum mínum tilfinningum. Þú hefur alltaf hlustað á mig og verið til staðar þegar ég hef þurft á þér að halda. Þú varst alltaf svo þægileg og umburðarlynd. Þú varst sko ekki langrækin. Þú varst til í allt og alltaf glöð og kát. Þú varst svo mikið fyrir fjölskylduna. Þú varst falleg og yndisleg eiginkona og fórn- aðir þér fyrir heimilið og varst svo sátt við það. Þú elskaðir að breyta öllu heima hjá þér, mála húsgögn og flytja þau til. Þú varst fullkomin móðir, dútlaðir við stelpurnar þínar og varst vinur Gunnars Más og vina hans. Þú varst vinur vina þinna og veit ég að það eru fleiri en ég sem munu sakna þín mikið því heimili þitt var alltaf op- ið fyrir okkur. Elsku Ken, Gunnar Már, Sara, Viktoría, Fríða, Rúnar og aðrir ást- vinir. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Megi minning hennar lifa í hjörtum okkar allra. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Þín vinkona, Kolbrún Guðjóns. Elsku Guðrún mín, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig. Það er eins og hluti af hjarta mínu hafi farið með þér. Yndislega Guðrún mín, fallega góða Guðrún mín. Vinkona mín. Þú hefur ætíð verið mín stoð og stytta. Og gafst mér þann styrk sem ég þurfti, til að takast á við mín vandamál. Þú varst alltaf til staðar, þannig varstu, alltaf tilbúin að veita mér hjálparhönd. Takk fyrir það elsku Guðrún mín. Okkar vinátta var alveg einstök og ég hugsa að slíkt vin- áttusamband eignist maður aðeins einu sinni um ævina. Síðastliðnir mánuðir voru einstakir, við hittumst á hverjum einasta degi, fórum í göngu og töluðum um allt milli himins og jarðar. Það var svo gaman hjá okkur. Börnin okkar yngstu að verða fimm ára og við báðar svo ungar í anda, svo samtaka, þannig vorum við. Frábær- ar saman. Við vorum einmitt að rifja upp okkar fyrstu kynni um daginn. Það var svo fyndið. þú varst 16 ára og ég 17 ára. Mér var boðið í partí heim til þín, við þekktumst ekki en tengd- umst strax órjúfanlegum vinaböndum og upp frá þeim degi var ég eins og heimalningur heima hjá þér, við her- tókum baðherbergið og vorum þar tímunum saman að taka okkur til. Yndislegur tími, svo margar minning- ar. Við vorum saman með fjölskyldum okkar, síðustu áramótin þín og ég þakka Guði fyrir það að við létum verða af því. Það var svo gaman hjá okkur. Þú og Ken voruð svo ham- ingjusöm og ég hef alltaf dáðst að sambandi ykkar. Það var svo gaman að koma til ykkar og spjalla. Sam- band þitt og Gunnars Más var alveg einstakt, þið voruð svo góðir vinir. Þú varst svo blíð og góð móðir barna þinna. Ég elska þig af öllu hjarta, elsku Guðrún mín, og ég bið góðan Guð að varðveita allar mínar minn- ingar um þig, svo ég geti miðlað þeim til barnanna þinna, Gunnars Más, Söru og Viktoríu. Megi Guð gefa Ken, Gunnari Má, Söru, Viktoríu, Rúnari, Fríðu og fjölskyldu þinni styrk í sorg- inni. Þín vinkona Helga Birna. Elsku Guðrún mín. Margs er að minnast frá því leiðir okkar lágu sam- an á unglingsárunum. Við þessi stóri vinahópur, sem fyrir um 14 árum stofnuðum svo saumaklúbb. Við höf- um jú allar margt brallað saman um ævina. Ég man þegar þú áttir hann Gunnar þinn (sem þú varst svo stolt af), þá nýorðin 20 ára. Ég fór þá um sumarið utan í nám, en þú sendir mér bréf og myndir af litla gullmolanum þínum. Það var svo gaman núna í desem- ber þegar við vorum að fara í jóla- saumaklúbbinn og Gunnar Már var að keyra okkur, að heyra þig tala um vini hans sem þér þótti greinilega svo vænt um og varst með allt á hreinu eins og þú værir ein af þeim. Ég man þegar þú kynntist stóru ástinni í lífi þínu, honum Ken. Ekki voru allir hrifnir í byrjun, en það breyttist fljót- lega. Það var svo gaman að fylgjast með ykkur, því þið voruð ekki bara hjón, heldur líka bestu vinir og sálu- félagar. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hvað ást ykkar hvors til annars og virðing var mikil. Það var alltaf gaman að vera í kringum þig og maður alltaf boðinn velkominn á heimili ykkar Kens, hvort heldur á Íslandi eða í Ameríku. Eins og þegar ég, Helga Birna og Gugga komum og heimsóttum ykkur Ken til Flórída. Við vorum svo vel- komnar og þú naust þess svo að fá gesti og snerist með okkur út um allt. Og hann Ken þinn sem var ótrúlega þolinmóður með allar þessar skvísur inni á heimilinu, sem tók nú alveg sinn toll. Og þér leiddist nú ekki þegar þú fórst með okkur í hverja búðina á fæt- ur annarri, og þú sagðir við mig: „Það er svo gaman að fara með þér í búðir því þú ert svo ákveðin við að versla.“ Þegar stelpurnar þínar fæddust er óhætt að segja að þá hafi litla stelpan í þér endurfæðst, allt bleikt, prinsessu- og dúkkudótið, vá það var svo gaman hjá þér. Enda varstu svo stolt af börn- unum þínum og fjölskyldu. Þín verður sárt saknað í saumaklúbbnum og vinahópnum, en minning þín lifir í hjörtum okkar allra. Ég vil trúa því að þín bíði þarfara verk á öðrum stað. Elsku Ken, Gunnar Már, Sara Margrét, Viktoría Lynn, Fríða, Rún- ar, Særún, Gunni, Lúlli og aðrir ætt- ingjar og vinir, guð blessi ykkur öll og styrki í sorginni. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir. Það er ótrúlega stutt á milli hláturs og gráts í þessu lífi. Miðvikudags- kvöld ertu hjá mér í saumaklúbbi hlæjandi út í eitt, föstudagsmorgun dáin, bráðkvödd! Hversu ósanngjarnt getur lífið verið? Ég trúði því ekki þegar ég fékk símhringinguna og mér sagt að þú værir dáin, það gat bara ekki verið að þú yrðir tekin svona ung frá fjöl- skyldunni þinni sem þú hlúðir svo vel að. Daginn sem ég átti von á ykkur í saumaklúbbinn var ég ekki svo hress og rúmum klukkutíma fyrir mætingu íhugaði ég að hringja í ykkur og fresta klúbbnum. Ég ákvað svo að harka af mér því það er alltaf mikil tilhlökkun að hitta ykkur og orðið svo fastur liður í tilverunni. Þú varst manneskja sem lýstir upp skamm- degið með nærveru þinni einni. Alltaf hlæjandi og aldrei með neikvæðis- hjal. Þú varst með allt þitt uppi á borðinu og ófeimin að ræða allt sem þér viðkom. Það gerðum við í þessum Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.