Morgunblaðið - 18.02.2009, Blaðsíða 16
Vinsælastur Flest tilboð bárust í
þennan leðursófa, eða 53.
HÚSGÖGN og tækjabúnaður sem áður prýddi aðal-
stöðvar Landsbankans í Beaufort House í London voru
seld á uppboði sem lauk í fyrradag. Það var fyrirtækið
bidspotter.com sem hélt utan um uppboðið á vefnum.
Alls voru boðnir upp 355 pakkar sem samanstóðu af
ýmsum gagnlegum munum, sem áður voru nýttir af
starfsmönnum Landsbankans í London. Þar á meðal
voru skrifborð, skrifstofustólar, leðursófar, tölvur,
tölvuskjáir, flatskjáir og símtæki af fullkomnustu gerð.
Ekki var bara um að ræða stóra eða verðmæta hluti
því einnig mátti bjóða í slökkvitæki, pottablóm, kæli-
skápa, lampa og fatahengi.
Flest seldist þótt mismikill áhugi væri á einstökum
pökkum. Til dæmis bárust sex tilboð í örbylgjuofn sem
var sleginn hæstbjóðanda. Greiddi hann 35 pund fyrir
gripinn eða 5.700 krónur. Lítill áhugi var hins vegar á
færanlegum skúffueiningum. Ekki fengust upplýsingar
um tekjurnar af uppboðinu. bjorgvin@mbl.is
Uppboð á Landsbankadóti
Dýrast Cisco símapakkinn var dýr-
astur og fóru 44 símar á 1.130 pund.
Óspennandi Einn taldi þess virði að
bjóða í Dell og Microsoft lyklaborð.
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Þetta helst …
● OMXI6-vísitalan í Kauphöllinni á Ís-
landi lækkaði um 1,38% í gær og er nú
926,34 stig. Mikil velta var með bæði
hlutabréf, 580 milljónir króna, og
skuldabréf, 11,1 milljarður króna. Er
þetta nokkru meiri hlutabréfavelta en
verið hefur undanfarnar vikur. Hluta-
bréf Bakkavarar hækkuðu um 4,70%
en Atlantic Petroleum lækkaði um
8,51% og Straumur um 3,16%.
Aukin hlutabréfavelta
● TRYGGVI Þór
Herbertsson hefur
verið ráðinn pró-
fessor í hagfræði
við Háskólann í
Reykjavík. Áður
var Tryggvi efna-
hagsráðgjafi for-
sætisráðherra, for-
stjóri Askar Capital
og forstöðumaður
Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands.
Tryggvi segist fyrst ætla að einbeita
sér að rannsóknum og hefja kennslu
við skólann í haust. Samhliða starfi sínu
í HR muni hann sinna ráðgjafaverk-
efnum.
Tryggvi Þór er með doktorsgráðu í
hagfræði. bjorgvin@mbl.is
Tryggvi Þór prófessor í
Háskólanum í Reykjavík
Tryggvi Þór
Herbertsson
● Ekki er hægt að útiloka að stýri-
vextir Seðlabanka Svíþjóðar verði
lækkaðir í 0%. Þetta sagði aðstoð-
arbankastjóri Seðlabanka Svíþjóðar,
Lars Svensson í gær, en bankinn
lækkaði stýrivexti í 1% í síðustu viku.
Svensson segir að eins og staðan er
í dag þá sé verðhjöðnun og 0%
vaxtastefna ekki líkleg en bankinn
verði að undirbúa sig undir allar
mögulegar aðstæður og hvernig
bregðast eigi við hinu versta. Þegar
bankastjórn Seðlabanka Svíþjóðar
lækkaði stýrivexti hinn 11. febrúar sl.
varaði hún við því að mögulega þyrfti
að lækka stýrivexti enn frekar á næstu
sex mánuðum.
Stýrivextir gætu orðið
núll prósent í Svíþjóð
Mikil áhersla var lögð á það í ís-
lensku samninganefndinni að ná sem
hagstæðustum kjörum á lánunum
enda er heildarupphæð þeirra lán-
veitinga sem íslenska ríkið þarf að
gangast í ábyrgðir fyrir yfir 700
milljarðar króna. Því skipti hver vax-
taprósenta miklu fyrir ríkissjóð.
Össur Skarphéðinsson sagði í gær
að viðunandi niðurstaða væri að fá
þau kjör á skuldbindingar ríkisins,
sem væru „viðunandi, ásættanleg
miðað við málsástæður og þannig að
við getum risið undir þeim“.
Nýir menn eiga að
leysa úr Icesave-deilu
Viðunandi niðurstaða „þannig að við getum risið undir þeim“
Morgunblaðið/Kristinn
Deilur Baldur Guðlaugsson fór áður fyrir hópi sem ræddi við bresku sendi-
nefndina. Nú á nýr maður að taka við. Lítið hefur gerst frá því í desember.
Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
FORMLEG samninganefnd í Ice-
save-viðræðum við bresk stjórnvöld
verður líklega kynnt fyrir vikulokin.
Þetta kom fram í máli Össurar
Skarphéðinssonar, starfandi utan-
ríkisráðherra, á Alþingi í gær.
Baldur Guðlaugsson, sem Stein-
grímur J. Sigfússon sendi í leyfi frá
starfi sínu sem ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytisins, fór áður fyrir
vinnuhópi sem ræddi við Bretana.
Engar formlegar viðræður hafa ver-
ið milli íslenskra og breskra stjórn-
valda frá því í desember á síðasta ári.
Til stóð að taka aftur upp viðræður í
janúar en af því varð ekki.
Samningaviðræðurnar snúast um
ábyrgð ríkissjóðs á innistæðum Ice-
save-reikninga í Bretlandi og Hol-
landi. Einnig uppgjör við Þjóðverja
vegna innistæðna á Kaupþing Edge-
reikningum þar í landi.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að löndin hafi sett fram kröfur um
lengd á lánstíma, vaxtakjör,
greiðsluskilmála, endurskoðunar-
ákvæði í samningnum og annað af
þeim meiði sem Íslendingar gátu
ekki sætt sig við.
Í HNOTSKURN
»Íslenska ríkið þarf aðgangast í ábyrgðir fyrir
yfir 700 milljarða króna vegna
Icesave og Edge. Deilt er um
lánakjör vegna þess.
»Talið er líklegt að ekkertfalli á skattgreiðendur
vegna Edge-reikninga en 150
milljarðar kr. vegna Icesave.
SKILANEFND
Glitnis hefur enn
ekki borist svar
frá sænska fjár-
málaeftirlitinu
(FI) varðandi
framtíð félaga í
eigu Moderna,
dótturfélags
Milestone, að
sögn Árna Tóm-
assonar, for-
manns nefndarinnar.
FI þarf að samþykkja end-
urskipulagningu Moderna þar sem
rekstur félagsins er eftirlits-
skyldur. Skilanefnd Glitnis, sem er
stærsti kröfuhafi Milestone, hefur
boðist til að setja allt að 20 millj-
arða króna inn í Moderna til að
halda yfirráðum yfir eignum þess,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. FI fór hins vegar fram á
að meira fé yrði flutt inn í Moderna.
Lítill áhugi á íslenskri stjórn
Sömu heimildir herma þó að lítill
áhugi sé meðal sænskra yfirvalda á
að láta íslenska aðila reka félögin
áfram. Ef FI ákveður að svo verði
ekki mun eftirlitið að öllum lík-
indum leitast við að selja sænskar
eignir þess sem allra fyrst til aðila
sem það getur sætt sig við. Gamli
Glitnir má ekki fara með stjórn fé-
lagsins þar sem hann uppfyllir ekki
kröfur sænskra stjórnvalda, enda í
greiðslustöðvun. Því myndu núver-
andi stjórnendur Milestone stjórna
félaginu áfram verði gengið að til-
boðinu, en sem einskonar starfs-
menn skilanefndarinnar.
Framtíð
Milestone
enn í óvissu
Árni
Tómasson
<;=
,
<;=
(
.
.
<;=
*
-
.
.
>?
@
7
.
.
2B5
>=
.
.
<;=
.+#
<;=
$"!
.
.
● Spilavíta-
samsteypa banda-
ríska auðkýfingsins
Donalds Trumps,
sem á þrjú spilavíti
í Atlantic City,
hefur farið fram á
greiðslustöðvun.
Lánardrottnar
kröfðust gjaldþrots
fyrirtækisins, sem
er sjálfstætt og ekki í tengslum við þær
fasteignir sem Trump á víða né aðrar
eignir hans. gretar@mbl.is
Greiðslustöðvun spila-
víta Donalds Trumps
Donald Trump
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ í Pan-
ama veitti fjárfestingarfélaginu
Finanzas Forex starfsleyfi 30. júlí á
síðasta ári samkvæmt upplýsingum
frá aðstandendum félagsins hér á
landi. Hins vegar hefur Finanzas
Forex ekki starfsleyfi í Evrópu.
Í Morgunblaðinu 13. febrúar sl.
kom fram að á vefsíðu fjármálaeft-
irlitsins í Panama væri að finna yf-
irlýsingu þar sem segði að Fin-
anzas Forex hefði ekki leyfi eða
viðurkenningu eftirlitsins þar í
landi. Sú yfirlýsing var gefin út áð-
ur en leyfið var veitt 30. júlí 2008.
Í fyrirsögn blaðsins kom fram að
svikamylla frá Panama væri starf-
rækt á Íslandi. Forsvarsmenn fé-
lagsins benda á að enginn hafi ver-
ið svikinn.
Finanzas Forex hefur verið
bannað af fjármálaeftirlitinu í Que-
bec í Kanada. Þá hafa svipaðar eft-
irlitsstofnanir á Spáni, Austurríki
og Frakklandi varað við fyrirtæk-
inu. Íslenska fjármálaeftirlitið hef-
ur sagt Finanzas Forex ekki hafa
leyfi hér.
Talsmaður félagsins sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að starfsemi
félagsins væri sjálfhætt. Fjárfestar
ætli að flytja sig yfir í „evrópskt
löglegt fjármálafyrirtæki sem er
sambærilegt“. bjorgvin@mbl.is
Flytja sig
yfir í löglegt
fyrirtæki
● RÚSSAR og Kínverjar skrifuðu í gær
undir samkomulag sem tryggir Kínverj-
um olíu frá Rússlandi næstu tvo ára-
tugina. Í staðinn ætla Kínverjar að út-
vega Rússum lánafyrirgreiðslu.
Kínverjar fá samkvæmt samkomu-
laginu 15 milljónir tonna af olíu frá
Rússum á ári, eða um 300 þúsund
tunnur á dag. Hins vegar mun Þróun-
arbanki Kína lána rússneska olíu-
fyrirtækinu Rosneft, sem er í eigu rík-
isins, 15 milljarða dollara. Þá mun
bankinn lána rörafyrirtækinu Transneft
10 milljarða dollara. Segir í frétt AP-
fréttastofunnar að samkomulagið
tryggi rússnesku fyrirtækjunum lán
sem erfitt sé að fá um þessar mundir.
Lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu
hefur komið illa við efnahagskerfið í
Rússlandi, sem er einn stærsti olíu-
útflytjandi í heimi. gretar@mbl.is
Rússar skaffa olíu til
Kína og fá lán í staðinn
GYLFI Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að sambandið hafi alltaf hvatt
aðildarfélögin til þess gæta að jöfnu
hlutfalli kynjanna við val á stjórn-
armönnum í lífeyrissjóði. Ólíkt Sam-
tökum atvinnulífsins tilnefni Alþýðu-
sambandið ekki beint í stjórnir
lífeyrissjóða heldur aðildarfélögin.
Í nýrri atvinnustefnu Samtaka at-
vinnulífsins segir að aukin fjöl-
breytni í stjórnum fyrirtækja og
stjórnunarstöðum geti verið ein
þeirra leiða sem koma íslensku at-
vinnulífi fyrr af stað í sókn til bættra
lífskjara. Þar er m.a. fjallað um þá
staðreynd að áður en fjármálakrepp-
an skall á hér á
landi af fullum
þunga hafi nærri
sex af hverjum tíu
stærstu fyrir-
tækjanna í land-
inu verið með
hreinræktaðar
karlastjórnir.
Samtök at-
vinnulífsins skipa
í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyr-
issjóðum. Í árslok 2007 nam hrein
eign allra lífeyrissjóðanna í landinu
um 1.650 milljörðum króna. Segir SA
að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir
landsmenn að sjóðunum sé stjórnað
faglega. Vilja samtökin því auka fjöl-
breytni stjórnarmanna og rétta hlut
kynjanna innan stjórnanna.
„Það er mikilvægt hagsmunamál
atvinnulífsins að konur og karlar eigi
í reynd jafna möguleika til starfa,
starfsþróunar og launa. Karlar eru
enn í miklum meirihluta í stjórnum
og í stöðu yfirmanna fyrirtækja þó
svo að hlutfall kvenna sem stjórn-
enda hafi farið hækkandi undanfarin
ár,“ segir SA.
Þá segja samtökin að fólk með
ólíkan bakgrunn sé mikilvæg upp-
spretta nýjunga. gretar@mbl.is
Vilja fleiri konur í stjórnir
Gylfi Arnbjörnsson