Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 hef verið að aðstoða þau við að setja grafík á snjóbrettafatnað sem fyr- irtækið hefur hannað en þetta er fyrsta snjóbrettalína þess. Þetta er mjög skemmtileg samvinna og sýnir hvaða verðmæti utanaðkomandi hönnuðir geta komið með inn í starf- andi framleiðslufyrirtæki,“ segir Katrín Ólína, sem er ánægð með stöðu íslenskrar hönnunar í dag. „Mér finnst gaman að finna hvað það er mikil gróska í hönnun hér á landi og það er greinilega gríð- arlegur kraftur í fólki núna. Við leggjum ekki árar í bát.“ Hún setur tarotið í samhengi við þá erfiðleika, sem Íslendingar hafa þurft að takast á við síðustu mánuði. „Alltaf þegar erfiðleikar steðja að fær fólk áhuga á andlegum efnum. Þessi hugmynd að gera innsetningu með tarotspilum kemur til af því að mér fannst þetta eiga vel við þessa óvissutíma. Allir eru að hugsa um hvað verður. Þessi innsetning er speglun mín á ástandinu. Þetta eru svo hvetjandi tímar til að leita inn á við eftir sköpuninni sem býr innra með okkur og til að vinna úr hlut- unum á okkar forsendum. Það upp- byggilegasta sem hægt er að gera á svona tímum er að horfa í eigin barm og finna eigin leiðir út úr ástandinu í stað þess að stóla á aðra.“ ‘‘MÉR FINNST GAMAN AÐFINNA HVAÐ ÞAÐ ERMIKIL GRÓSKA Í HÖNN-UN HÉR Á LANDI OG ÞAÐ ER GREINILEGA GRÍÐ- ARLEGUR KRAFTUR Í FÓLKI NÚNA. Tarotspil eru alls 78 talsins og skiptast í höfuðspil og undirspil, eða spilasortir. Sortirnar eru fjórar, vendir (lauf, eldur), sverð (spaðar, loft), bikarar (hjörtu, vatn) og diskar (tígull, jörð). Höfuðspilin eru jafnan djúpar táknmyndir og fjalla hvert og eitt um sérstakt efni. Katrín Ólína hefur hafist handa við að teikna spilin. Hér verður litið á merkinguna að baki fjórum þeirra og listakonan rekur hugmyndina að baki vali sínu á spilunum en hugsunin var að velja spil sem ættu vel við ástandið í dag. Umfjölluninni er ekki ætlað að vera tæmandi heldur frekar að gefa innsýn í spilin. Sverðásinn „Sverðin eru oft talin erfiðasta teg- undin í spilunum því þau eru vopn og tákna þannig sársauka og eyðilegg- ingu en þau tákna einnig að skera á hnúta og vandamál. Þau geta bent okkur til dæmis á að hætta vitleys- unni, fara að nota vitsmuni okkar og huga til að leysa úr vandamálum. Ásarnir standa fyrir grunn- elementið í sortinni og þannig tákna sverðin loft, hreyfingu og hraða. Í þessu spili er okkur rétt sverð, með því öðlumst við tækifæri til að höggva á hnúta, byrja uppá nýtt og nota til þess vitsmuni okkar.“ Sverðatía „Í tíu af sverðum er eymdin alger og botninum náð. Eins og ég teiknaði spilið þá sjáum við veru sem hefur verið algerlega „grilluð“ með tíu sverð í baki. Hún nánast lekur niður af sásauka með hjartað hangandi úti. Ef betur er að gáð má sjá lítinn vin, lillann í okkur sem deyr ekki svo glatt, hér hangir hann á æð sem er að festa rætur líkt og gróður. Þetta táknar að það er alltaf von, sama hversu slæmt útilitð er. Þegar botn- inum er náð er leiðin alltaf uppá við, það er það dásamlega jákvæða við þetta spil.“ Stjarnan „Stjarnan skýrir sig eiginlega sjálf. Eftir storminn kemur lognið og vel- komið tóm endurnæringar. Stjarnan sameinar loft og vatn líkt og vatns- berinn, á öxl hennar situr fuglinn Ibis sem oft er kenndur við egypska guð- inn Thoth sem táknrænt stendur meðal annars fyrir heilun. Stjarnan mín er kvenleg, hún situr á trjágrein, á milli himins og jarðar og hellir úr vatnskerjum sínum í tjörnina og á jörðina. Stjarnan táknar vonina og heilunina sem í henni felst.“ Töframaðurinn „Töframaðurinn er eins og nafnið ber með sér tákn andlegs krafts, um- breytingar og sköpunar. Hann er frá- bær! Það er ótrúlega margt sem hægt er að segja um hann og hvaðan hann kemur en meðal annars er hann oft kenndur við ímynd rómverska guðs- ins Merkúrs sem var sendiboði guð- anna. Töframaðurinn minn stendur á hvítum hring þar sem hann hefur fyr- ir framan sig frumefnin fjögur, sverð, bikar, vönd og disk. Hann býr sig undir að fremja galdur með vængj- aða dýragrímu á höfði og galdrastaf sem hann réttir upp til himins. Með hinni höndinni vísar hann til jarðar og til þess að það sama gildir á himni sem á jörðu. Í raun er galdurinn hans hafinn, hann er í miðri athöfn, frumefnin eld- ur, loft, vatn og jörð eru að sameinast og fimmta elementið orðið til, sem er andinn!“ Tarotspilin fjögur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.