Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 22

Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 22
22 Erfðarannsóknir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 K æra Lone Frank. Það gleður okkur að geta sagt þér að niðurstöð- urnar af deCODEme- könnuninni þinni liggja nú fyrir. Ýttu hérna.“ Ég geri eins og mér er sagt, ýti á reitinn og er komin inn á mína eigin vefsíðu hjá deCODEme. Starfs- mennirnir hafa kannað erfðamengi mitt til að leita uppi yfir milljón genavörður, svonefnd SNP, en vís- indamenn hafa þegar getað tengt sumar þeirra við sjúkdómsáhættu. Þarna stendur: „Hugað var að 38 sjúkdóms- gerðum hjá þér. Skoðaðu áhættuna og lestu um fyrirbyggjandi aðgerð- ir.“ Allt í einu verð ég undarlega þurr í munninum. Fyrir þremur vikum var bara gaman að taka við leiðbeining- unum með póstinum og það var ekki heldur neitt mál að senda dálítið af slímhúð úr munninum til þeirra til að láta greina DNA-erfðaefnið í henni. En hérna, við tölvuna á hótelher- berginu, er eins og áhuginn á að horfa inn í framtíðina hafi dvínað. Við erum öll afleiðingar stökkbreytinga með tifandi sprengjur faldar í erfða- menginu – það veit ég vel – en langar mig raunverulega til þess að vita hvar þær séu? Gláka, asma, þvagsýrugigt Ég gýt hornauga til „sjúkdóms- gerðanna“ sem er raðað upp í flokka eftir því hvaða líkamshluta þær eiga við. Þetta er skynsamleg blanda: gláka, kölkun, nýrnakrabbi, asma, skalli, sykursýki I og II, fótaóeirð og þvagsýrugigt. Þvagsýrugigt – er það nokkuð erfðasjúkdómur? Ég hélt að gamlir karlar fengju hana ef þeir lifðu of hátt of lengi. Ég geri áhlaup, dreg músina yfir krabbamein og ýti loks á krónískt hvítblæði. Sagt er blátt áfram í text- anum að sjúkdómnum fylgi óend- anleg þreyta, höfuðverkur, blæð- ingar og skertar ónæmisvarnir. En að lokum er sagt að hann leggist að- eins á hálft prósent þjóðarinnar og oftast fólk yfir sjötugu. Áður en ég fær að vita hver mín eigin áhætta sé verð ég að gefa til kynna meðvitað samþykki. Vil ég raunverulega sjá niðurstöðurnar og veit ég hvað þær merkja? Já já, þetta minnir dálítið á smáa letrið í samningum og tryggingaskil- málum, eiginlega nennir maður ekki að lesa þetta. Ég ýti á accept. Vá! Þetta byrjar vel. Hættan á að ég fái einhvern tíma á ævinni þennan sjúkdóm er bara 0,2% sem er nærri 40% minna en gengur og gerist um evrópskar konur. Þetta er eins og að vinna í lottó. Ég skoða aftur flokkana og vel slagæðagúlp í höfði – óhugn- anlega poka á stóru blóðæðunum í heilanum sem geta sprungið fyr- irvaralaust og síðan fellur maður í dá. Aftur vann ég! Aðeins 3% áhætta og enn 40% minna en meðaltalið. Nú er ég komin á skrið og prófa AMD, aldurstengda nethimnuhrörnun, þ.e. nethimnan eyðist hægt og bítandi og er þetta algengasta orsök þess að fólk fær verri sjón og verður jafnvel blint á efri árum. Fundist hafa erfða- fræðileg afbrigði á fimm svæðum á litningunum 1, 6, 10 og 19 sem hafa áhrif á hættuna. Ég hugsa til kunn- ingja sem er með AMD og nærri blindur og hika andartak. En bíðum við – aftur er ég langt undir með- altalsáhættunni. Og skalli: 2% áhætta hjá mér en meðaltalið 8%. Hver fjárinn, ég er með fín gen! Eiginlega synd og skömm að ég skuli ekki hafa eignast afkvæmi. Kannski … Og þó. Lítum nú aðeins á hornin þar sem sennilega eru einhver óhreinindi. Hjarta- og æða- sjúkdómar. Allt vaðandi í þeim í ann- arri ættinni minni. Föðuramma mín var slæm fyrir hjartanu, eins og það var kallað, frá því að ég man eftir mér, föðurafi minn dó örkumla eftir margar heilablæðingar og faðir minn var með of háan blóðþrýsting frá unga aldri. Síðar fékk hann svo slæma æðakölkun í báða fætur að síðasta árið sitt gat hann varla geng- ið og verkirnir voru svo miklir að hann vildi bara fá að deyja. Hérna er talað um æðasjúkdóminn peripheral arterial disease, PAD. Hver tíundi íbúi iðnríkjanna fær hann og reykingar eru aðalástæðan. En erfðaþættirnir eru líka að koma í ljós og vísindamen deCODE hafa uppgötvað eitt mikilvægt afbrigði á litningi 15. Ég ýti vongóð á hnappinn. … „ef til vill ekki allir áhættu- þættir“ Þetta lítur ekki alltof vel út. Áhættan hjá mér er meiri en hjá meðaltalinu, 18% andstætt 14%. Kannski ekki neitt hrikalegur munur en áhættan er þó næstum því einn af hverjum fimm og svo leggja de- CODE-menn þar að auki áherslu á að í prófinu þeirra séu „ef til vill ekki allir áhættuþættir“. Ég reyki ekkert núna en svitna í lófunum þegar ég rifja upp árin þeg- ar ég reykti í partíum. Var ekki rosa- lega mikið um partí þá? Undir liðn- um fyrirbyggjandi aðferðir og meðferð segir að hægt sé að taka blóðþynnandi aspírín til minnka hættuna á PAD. Ég ætti kannski að ræða þetta við lækninn minn þegar ég kem heim? Og núna, þegr ég er hvort sem er að verða taugaspennt, get ég alveg eins hert upp hugann og horfst í augu við það sem ég er raunverulega hrædd við. Brjóstakrabbamein. Sjúkdóminn sem bæði amma mín og móðir létust úr á unga aldri og ég hef alltaf innst inni gert ráð fyrir að myndi verða mér að ald- urtila. Ég hef eiginlega reynt að sverja hættuna af mér með því að kanna aldrei málið í reynd. Nú sit ég við skjá sem getur afhjúpað hættuna með hliðsjón af því sem skilgreint er af átta erfðafræðilegum DNA- afbrigðum á litningunum 2, 5, 8, 10, 11, 15 og 16. Ég er viss um að útlitið sé hræðilegt og opna ekki augun í dá- góða stund eftir að ég er búin að ýta á reitinn. En hvert í logandi! Þetta er alveg ótrúlegt! Ég er með minni áhættu en meðaltalið, 7,7%, en meðaltalið er 12. Í eina, fáránlega sekúndu finnst mér eins og ég hafi bók- staf- lega verið leyst undan því að deyja. „Er eitthvað sem þú vilt spyrja um?“ Kári Stef- ánsson, forstjóri de- CODE, er vissulega á leið- inni út úr dyrunum, á leið til Kaliforníu, en þar sem enginn af erfðafræðiráðgjöfum fyr- irtækisins er á staðnum hefur hann gefið kost á sér. Ég dreg fram nið- urstöðurnar mínar og kvarta fyrst yfir því að vera í áhættuhópi vegna PAD. Ég er búin að kynna mér að DNA-afbrigðið sem rannsakað var í erfðamengi mínu eykur einnig hættuna á lungnakrabba. Þar er áhætta mín 33% sem mér finnst ægilegt. Kári lætur sér fátt um finnast. „Þetta hefur enga þýð- ingu ef þú reykir ekki,“ segir hann. „Þó að fólk sé erfða- fræðilega séð í áhættu- hópi dettur áhættan niður í nærri núll ef það reykir ekki.“ Áhyggjulaus Kári Ég lofa að reykja ekki en segi frá því að ég sé líka hrædd vegna þess að ég eigi á hættu að fá vissa tegund af húðkrabba. En eftir sem áður verð ég ekki vör við að hann hafi miklar áhyggjur af mér. „Ég hef látið fjarlægja þannig krabbamein sjálfur, þetta er ekki mikið mál. Vertu bara ekki mikið í sól.“ Ég lofa því líka en viðurkenni núna að það sé eitt sem ég skilji alls ekki. Alla mína ævi hafi ég verið þvengmjó en nú fullyrði deCODEme að ég eigi á hættu að verða of holdug, feit. Ég spyr Kára hvort prófin hans séu gölluð eða hvað. „Nei,“ svarar hann og tónninn er mjög kuldalegur. „Ég er með sama erfðafræðilega fituafbrigðið og þú en þyngdin hefur verið óbreytt í mörg ár, kannski vegna þess að ég hreyfi mig svo mikið. DNA-afbrigði sem tengjast sjúkdómum með margar or- sakir munu aldrei geta gefið þér ná- kvæma forspá af því að þeir eru flóknir og tilvist eins gens er ekki af- gerandi. Niðurstaðan fer mjög eftir umhverfi og aðstæðum. Fyrir hendi eru nokkur afbrigði en hver penetr- ans þeirra er, hve virk þau eru í ein- staklingnum, er óleyst gáta. Við get- um ekki útskýrt hvað veldur því að sum afbrigði hafa áhrif, slá í gegn, og önnur ekki.“ Ég er mállaus af undrun. Situr hann ekki þarna og viðurkennir að genakortin séu gagnslaus? „Nei það geri ég ekki. Genakort getur sagt þér hvort líkurnar á ákveðinni niðurstöðu – til dæmis offitu – séu miklar eða litlar en ekki hvort þú verður svo feit í veruleikanum.“ Kári útskýrir þátt um- hverfis og aðstæðna með því nefna dæmi um rannsóknir de- CODE-manna. Þeir hafa rann- sakað krabbamein í fæðingarblettum og fundið DNA- afbrigði í genum sortuæxl- isviðtaka en hegðun þeirra er afar misjöfn eftir því hvaða þjóð er um að ræða. Sé um Spánverja að ræða þrefaldar af- brigðið hættuna á krabbameini í fæð- ingarbletti en sama afbrigði hefur engin áhrif meðal Íslendinga. Sennilega er það vegna þess að sólin leikur líka sitt hlutverk. Enginn vandi er að forðast sólina á Íslandi en það er erfiðara á Spáni. Áhrifin af sama af- brigði í Svíþjóð, þar sem meira er um sólskin en á Íslandi en heldur minna en á Spáni, eru mitt á milli hinna þjóðanna tveggja. „Við höfum einnig uppgötvað þrjú erfðafræðileg afbrigði sem auka hættuna á hjartaflökti. Þau eru öll þrisvar sinnum algengari í Kína en í Evrópu en mun minni hætta er á að Kínverji fái hjartaflökt en Evr- ópumaður. Erfiðara er að útskýra þetta en málið með sólina og fæðing- arblettina. Og það sýnir að við verð- um að skilja áhrif umhverfisins miklu betur áður en við getum farið að nota genakort með mikilli nákvæmni.“ Frá föður eða móður Áður en ég næ að mótmæla meira nefnir Kári annan þátt sem flækir enn myndina. Það virðist skipta nokkru máli hvort við erfum af- Erfðafræðileg rúlletta Lone Frank er þekktur blaðamaður í Danmörku og fjallar mest um vísindi. Hún vildi fá upplýsingar um eigið erfðamengi með tilliti til sjúkdómahættu og keypti þjónustu hjá Íslenskri erfðagreiningu. Lone Frank Kári Stefánsson Lone Frank skrifaði aðra grein um aðdrag- anda þess að hún keypti genaþjónustuna af Íslenskri erfðagreiningu og segir frá því þegar hún heimsótti fyrirtækið í Reykjavík. Hér er stiklað á stóru í þeirri grein. „Ertu nú komin hingað til að angra mig aft- ur?“ Það eru tæp tíu ár síðan ég sat síðast andspænis Kára Stefánssyni en þessi sér- kennilega aðferð við að heilsa sýnir mér að hann hefur ekkert breyst. Og til að gera ekki endasleppt hrópar hann strax á aðstoð- armann í næsta herbergi og segist þurfa að fá kaffi til að lifa þetta af. Ég túlka þetta litla uppistand sem eitthvað í líkingu við „Velkom- af áhættu einstaklings, að sá sem vill nýta matið til að koma sér upp lífsstíl í samræmi við upplýsingarnar eða nýta heilbrigðiskerfið hafi aðgang að slíku mati.“ Frank segir þessa túlkun hafa notið mikillar hylli í fjölmiðlum fram til þessa en rekur einn- ig mótbárur. Nefnir hún meðal annars skrif tímaritsins New England Journal of Medicine sem telur lítið gagn að umræddum upplýs- ingum þegar hugað sé að lækningum. Mik- ilvægustu sjúkdómarnir, t.d. sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómar og krabbamein, eigi sér svo flóknar orsakir, bæði erfðafræðilegar og umhverfistengdar. Vörðurnar sýna staðsetningu gena á löngu, undnu DNA-erfðaefnisstigunum sem eru hver með sínum hætti hjá fólki. Endanlegt kort yfir SNP-vörðurnar í erfðaefni einstaklings er eins konar mynd af erfðafræðilegum eiginleikum hans eða hennar. Eða, eins og einn af keppi- nautum Kára á markaðnum hefur orðað það: „Stafræna sjálfið þitt.“ Efasemdir um gagnið „Allt er þetta gert með sama takmarkið í huga, að geta einbeitt sér að markvissum fyr- irbyggjandi aðgerðum,“ segir Kári Stef- ánsson. „Það er gagn að því að búa til mynd in, hvað get ég gert fyrir þig“ og ber upp er- indið: „Ég er komin til að tala um erfðameng- ið mitt.“ Hún segir síðar frá undirbúningnum. „Heima á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn skóf ég smávegis innan úr munninum og sendi frumusullið til deDODEme í Reykjavík,“ segir Frank. „Þar hafa snjallir starfsmenn ein- angrað DNA-erfðaefnið í sýninu og hellt því á genaplötu. Hana hafa þeir notað til að gera prófanir á yfir milljón svonefndum genavörð- um sem dreifast á litningana í frumunni. Slík varða kallast á ensku single nucleotide poly- morphism, sem stytt er í SNP. Mitt stafræna sjálf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.