Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 23
brigðið frá föður eða móður. „Við sjáum mörg dæmi um þetta í nýrri gerð af greiningu sem við not- um á gögn frá Íslandi. Ég get nefnt afbrigði sem eykur hættuna á syk- ursýki um 60% ef það kemur frá föð- urnum en minnkar hættuna um 15% ef það kemur frá móðurinni.“ Ritari stingur inn höfðinu og segir að nú bara verði forstjórinn að fara. Til að segja eitthvað jákvætt flýti ég mér að segja frá því hvað það hafi glatt mig að sjá að ég þurfi ekki að óttast mjög hættuna á brjósta- krabba. Ég segir frá því að móð- uramma mín hafi dáið fyrir sextugt og móðir mín 46 ára en sé fljótt á Kára að ég hef fagnað of fljótt. „Algengu afbrigðin sem við próf- um koma venjulega ekki við sögu í því sem við köllum fjölskyldutilfelli,“ segir hann. „Þar sem fjölskyldusag- an þín er eins og hún er ættir þú að láta gera sérstaka rannsókn á BRCA-genunum þínum.“ Þetta rifjar upp vitneskju sem ég hef grafið einhvers staðar í heil- anum. Stökkbreytingar í genunum BRCA1 og BRCA2 finnast hjá 2-5% kvenna og þær auka geysimikið hættuna á brjóstakrabba. Allt að 80% ef marka má sumar rannsóknir. Ætti ég kannski að láta genakortið mitt duga? „Og vona hið besta? Ég get ekki ráðlagt þér það,“ segir Kári. En ég get ekki séð hvaða gagn ég ætti að hafa af þessari rannsókn. Ef ég er með BRCA-stökkbreytingar mun ég aðeins eitra tilveru mína með endalausum áhyggjum og auk þess þjaka heilbrigðiskerfið með stöð- ugum óskum um brjóstamyndatök- um í tíma og ótíma. „Nei,“ svarar Kári. „Þú getur farið í tvöfalt brjóstabrottnám.“ Fjarlægja bara bæði brjóstin Tvöfalt brjóstabrottnám. Bilateral mastektomi. Á latínu hljómar þetta svo hlutlaust og skaðlaust. En það sem maðurinn er að segja við mig, al- veg kaldur og rólegur, er að ég eigi bara að láta fjarlægja bæði brjóstin. Fjarlægja þetta alveg í nafni fyr- irbyggjandi aðgerða. „Já,“ segir hann og stendur upp. „Nema þér finnist það örlög sem séu verri en dauðinn.“ Ég veit ekki hvort mér finnst það en ég losna ekki almennilega við þessa hugsun úr höfðinu það sem eft- ir er dagsins. Heima á hótelinu fer ég strax í tölvuna og finn Myriad Gene- tics, bandaríska fyrirtækið sem feng- ið hefur einkaleyfi á að gera sjúk- dómsgreiningu á BRCA-genum. Þeir bjóða upp á fljótlegt spurn- ingaskema sem á að sýna mér hvort hægt sé að nota könnunina. Þeir spyrja hvort einhver í fjölskyldunni hafi fengið brjóstakrabba fyrir fimm- tugt. Ég svara já og fæ þá að vita að ég geti auðveldlega verið í áhættu- hópi varðandi bæði krabbamein í brjóstum og eggjastokkum. Ef ég er gyðingur af Evrópuættum er áhætt- an jafnvel enn meiri en ella, útskýra Myriad-menn vinsamlega. En hvað sem því líður er hægt að ganga úr skugga um þetta með BRCA- rannsókninni þeirra og, eins og þeir leggja áherslu á: „Fyrsta skrefið til að takast á við hættuna á krabba- meini er að vita hver áhættan sé.“ Hvernig skilur maður áhættu? Það er hægt að halda áfram í töfl- unni og reikna út áhættuna gagnvart stökkbreytingum. Þar sem ég hef að- eins átt einn náinn ættingja sem fékk brjóstakrabba fyrir fimmtugt er hlutfallið mitt 4,5%. Það er að segja innan við 5% líkur á að ég sé með erfðafræðileg afbrigði sem gefa til kynna að líkurnar á að fá brjósta- krabba séu milli 65 og 80%. Og síðan er viss hætta á að ég deyi af völdum sjúkdómsins – það fer eftir því hve- nær hann uppgötvast og hvernig meðferðin verður. Spurningin er hvort tæplega 5% líkur séu svo lágt hlutfall að ég eigi bara að láta eins og ekkert sé – þrátt fyrir allt eru 95% líkur á að BRCA- genin mín séu í fínu ásigkomulagi. Og séu þau það eru, samkvæmt genakortinu, aðeins tæplega 8% lík- ur á að ég fái brjóstakrabbamein. En það er önnur hlið á málinu. Væri betra að losna í eitt skipti fyrir öll við óvissuna varðandi það versta sem gæti gerst? Bara eina könnun í viðbót? Hrökkva eða stökkva? Ég verð að hugsa málið. 23 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum í 18 nátta vorferð til Costa del Sol þann 3. maí. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað. Bjóðum örfáar íbúðir á frábæru sértilboði á Aguamarina, einum af okkar allra vinsælustu gististöðum, á hreint ótrúlegum kjörum. Þú velur hvort þú kaupir gistingu eingöngu eða með hálfu fæði. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. 18 nátta vorferð - 5 íbúðir í boði! Aguamarina er einn okkar allra vinsælasti gististaður á Costa del Sol. Gott íbúðahótel sem býður mjög góða aðstöðu sem hefur nú öll verið endurnýjuð og frábæra staðsetningu. Öll sameiginleg aðstaða er nýendurnýjuð. Falleg stúdíó og íbúðir með einu svefnherbergi, vel búnar með eldhúskrók, baði, svölum, öryggishólfi, gervihnattasjónvarpi og síma (ath. ekki eru öll stúdíó með svölum). Fjölbreytt þjónusta í boði, m.a. veitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða, innilaug, sauna o.fl.. Örstutt er að fara á ströndina eða í gamla bæinn, því ef farið er með lyftunni á efstu hæð hótelsins, er gengið beint út á götu sem liggur að göngugötunni í gamla bænum. Góður kostur fyrir þá sem leita að rólegum og þægilegum gististað. Verð kr. 94.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í stúdíó eða íbúð með 1 svefnherbergi á Aguamarina í 18 nætur. Aukagjald fyrir hálft fæði kr. 2.700 á dag (48.600 í 18 nætur). Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Costa del SolÓtrúlegt sértilboðá Aguamarina *** · Góður aðbúnaður · Frábær staðsetning 3.-21. maí frá kr. 94.990 Ármúla 30 • 108 Reykjavík Sími 560 1600 • www.borgun.is Borgun er eina fyrirtækið á landinu sem býður heildarlausn í færslu- hirðingu. Fyrirtæki sem eru með öll kortaviðskipti hjá Borgun njóta betri kjara og fá betri yfirsýn yfir tekjur með einu uppgjöri fyrir öll korta- viðskipti. Með Borgun tekur þú við öllum kortum. AUÐVELDAR VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.