Morgunblaðið - 29.03.2009, Side 28

Morgunblaðið - 29.03.2009, Side 28
28 Trúleysi MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Auglýsingar með slagorð-unum „Guð er trúlega ekkitil. Hættu nú að hafa áhyggjur og njóttu lífsins“ á 200 rauðum strætisvögnum London hafa valdið fjaðrafoki í Bretlandi. Í ljósi sögunnar er þessi heimsins fyrsta herferð heiðingja, eins og spiegelonline nefndi hana, trúlega orðum aukin, þótt guðleysingjar í Þýskalandi og Spáni hafi tekið sér hana til eftirbreytni. Upphafsmanneskjan er blaða- maðurinn og grínhöfundurinn Ar- iane Sherine, sem þótti sér gróf- lega misboðið í fyrra þegar hún sá á strætisvagni tilvitnun í Biblíuna ásamt upplýsingum um vefsíðu þar sem fullyrt var að heiðingjar myndu brenna í helvíti um alla ei- lífð. Hún bloggaði um hneykslan sína á vefsvæði The Guardian þar sem hún benti jafnframt á að guð- leysingjar gætu lagt fram fimm pund hver til að berjast gegn trúarlegum auglýsingum af þessu tagi. Tilgangurinn að upplýsa fólk Hálfpartinn óafvitandi hrinti hún með bloggi sínu úr vör svo- kallaðri strætisvagnaherferð heið- ingja, Atheist Bus Campaign. Verkefninu óx fiskur um hrygg þegar Richard Dawkins, þróun- arlíffræðingur og opinber guðleys- ingi, höfundur The God Delusion, lagði því lið. Ekki leið á löngu þar til safnast hafði fimm sinnum meira fé en þau höfðu reiknað með og var þeim þá ekkert að vanbún- aði að láta til skarar skríða. Fram- takið var svo formlega kynnt 6. janúar síðastliðinn. Skoðanasystkini þeirra Sherine og Dawkins í Þýskalandi hafa þeg- ar hafist handa við fjáröflun. Markmiðið er að strætisvagnar í Berlín, Münhen og Köln verði boð- berar guðleysisins seinna á árinu. Phillip Möller, einn sex forsprakka verkefnisins þar í landi, segir til- ganginn vera að upplýsa fólk. „Í upplýstu þjóðfélagi á fólk að geta sagt eitthvað í þessa veru án þess að eiga á hættu að vera refsað,“ segir hann. Vondar fréttir og góðar fréttir Þar sem margir Þjóðverjar eru ekki í trúfélagi, en þriðjungur til- greinir enga trú samkvæmt op- inberum gögnum, er ekki víst að þeir kippi sér að ráði upp við slag- orðin á strætisvögnunum. Að minnsta kosti ekki eins og á Ítalíu þar sem guðleysingjar þurftu að láta í minni pokann fyrir íhalds- sömum stjórnmálaflokkum. Þeim hugnaðist ekki slagorð eins og „Vondu fréttirnar eru þær að Guð er ekki til. Góðu fréttirnar þær að þú þarft ekki á honum að halda“, á strætisvögnum í Genúa, heima- borg kaþólska kardinálans, sem er yfirmaður ítalska biskuparáðsins. Herferð spænsku guðleysingj- anna náði að vísu á strætisvagn- ana, en var óðara svarað í sömu mynt með slagorðunum „Þegar allir yfirgefa þig, er guð hjá þér“ – líka á strætisvögnunum. Og fólk hópaðist saman með kröfuspjöld með áþekkum slagorðum. Strætisvagnar fara alls staðar mismunandi leiðir rétt eins og fólkið. vjon@mbl.is Reuters Upphafsmanneskjan Ariane Sherine glaðklakkaleg a svip þegar herferðin var formlega kynnt í London 6. janúar síðastliðinn. Herferð heið- ingja á hjólum Mótmæli Í Madrid og víðar á Spáni hópaðist fólk saman til að mótmæli slag- orðum guðleysingja á strætisvögnunum. Á þessu spjaldi stendur: „Guð er til, treystið honum“. Andsvar „Þegar allir yfirgefa þig, er guð hjá þér“ stendur á þessum stræt- isvagni í Barcelona og er andsvar við slagorðinu „Guð er trúlega ekki til . Ekki hafa áhyggjur og njóttu lífsins. Hins vegar er ómögulegt að fullyrða að þau [mis- tök við einkavæðingu bankanna] hafi verið svo alvarlega að það hefði breytt einhverju um það sem við stöndum frammi fyrir núna. Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi við- skiptaráðherra. Mér finnst þetta bera vott um ótrú- legt siðleysi. Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka, um þá ákvörðun VBS fjárfesting- arbanka að leita eftir kaupum á Net- bankanum, en VBS fékk 26 milljarða lán frá ríkissjóði. Ég sagði honum að mér fyndist mikil heimspeki í þeim boðskap í Dýrunum í Hálsaskógi að ekkert dýr mætti éta annað dýr. Þá sagði Egner við mig: „Allt sem stendur í verkum mínum er sannleikur, þar er enginn tilbúningur. Birgir Sveinbergsson leikmyndasmiður, um Thorbjörn Egner, höfund Dýranna í Hálsaskógi. Þetta tók nokkra daga vegna þess að mér finnst betra að vita hvað ég er að tala um áður en ég tala. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, við fréttamann, sem spurði um kaup- auka yfirmanna AIG, en margir fundu að því að forsetinn hefði ekki brugðist hratt við þegar málið kom upp. Maður átti von á að fólk myndi halda að sér höndum miðað við ástandið í þjóðfélaginu en þetta varð til þess að einkaþjálfunin hefur rokið upp. Björn Þór Sigurbjörnsson, einkaþjálfari í Sporthúsinu. Annars er ljóst að ríkisvaldið má ekki halda áfram að skrökva því að þegn- unum að það geti tryggt sparifé. Halldór I. Elíasson stærðfræðingur, í grein í Morgunblaðinu um pen- ingakerfið. Ég ber mína ábyrgð á því að svona var búið um hnútana á sínum tíma og á þeim mistökum er rétt að biðj- ast afsökunar. Geri ég það hér með. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra og fráfarandi formaður Sjálfstæð- isflokksins, í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fólk, sem missir vinn- una, ætti að gera eitthvað. Ekki myndi ég láta nægja að sitja með hendur í skauti. Forsætisráðherra Ítalíu og millj- arðamæring- urinn Silvio Berlus- coni. Ummæli ’ Gólfdúkur skynsamleg, -léttur í þrifum -auðveldur í lögn -glæsilegt úrval -fæst í 2, 3 og 4 m rúllum. FLOORING SYSTEMS Heimilisdúkur, sígild lausn: smekkleg og hagkvæm lausn þægilegt andrúmsloft Svefnherbergið hjarta heimilisins Eldhúsið einfaldara verður það ekki Forstofan SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 Sérverslun með gólfdúk og teppi Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarma starfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðakaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.