Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 37
1. Fræðslufundir séu haldnir með
kennurum og starfsfólki skóla um
mikilvægi þess að greina neikvæða
þætti í andrúmslofti skólans og
styrkja jákvæða þætti undir fag-
legri handleiðslu. Hvetja kennara til
að nýta sér handleiðslu sem þeir
eiga rétt á skv. 3. gr. í sjúkrasjóði
KÍ frá 2005. Handleiðsluna stundi
fagaðilar, ekki aðrir.
2. Markviss vinna og reglubundin
fari í gang sem beinist gegn ofbeldi
og einelti í skólum hvort sem um
nemendur eða kennara er að ræða.
Jákvætt andrúmsloft þýðir opin
samskipti og er besta vörnin. Varast
ber að treysta um of á sjálfvirkni
áætlana í þessum efnum. Áætlun er
ekki trygging fyrir árangri. Vinna
tryggir árangur.
3. Skólinn leggi meiri áherslu á
sjálfshjálp nemenda með því að
auka kennslu í matreiðslu, hand-
mennt og myndmennt en þetta eru
þær greinar sem rannsóknir sýna
að nemendur hafa mesta ánægju af.
Með samstilltu átaki og faglegri
samvinnu er hægt að byrgja marga
brunna. Bætt líðan barna, ung-
menna og kennara skiptir sköpum
um hvernig til tekst í því ástandi
sem nú ríkir. Við berum ábyrgð á
barnaverndinni í landinu.
Höfundur er MSW-fræðslu- og skóla-
félagsráðgjafi, kennari og náms- og
starfsráðgjafi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
www.damask.dk
N Ý T T
2 0 % k y n n i n g a r a f s l á t t u r
Nú kynnum við frábært úrval af GEORG JENSEN DAMASK sængurfatnaði,
sloppum og handklæðum. Sængurfatnaðurinn frá GEORG JENSEN DAMASK
er úr fínofinni egypskri bómull í hæsta gæðaflokki.
Lífgaðu uppá svefnherbergið fyrir vorið með sængurfatnaði frá
GEORG JENSEN DAMASK.
Ármúla 10 | sími: 5689950
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla
útgáfudaga aðsendar umræðu-
greinar frá lesendum. Blaðið áskil-
ur sér rétt til að hafna greinum,
stytta texta í samráði við höfunda
og ákveða hvort grein birtist í um-
ræðunni, í bréfum til blaðsins eða
á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki
greinar sem eru skrifaðar fyrst og
fremst til að kynna starfsemi ein-
stakra stofnana, fyrirtækja eða
samtaka eða til að kynna viðburði
svo sem fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum
„Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu
mbl.is. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið en næst þegar
kerfið er notað er nóg að slá inn
netfang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur þeirri
hámarkslengd sem gefin er upp
fyrir hvern efnisþátt en boðið er
upp á birtingu lengri greina á
vefnum.
Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.
Móttaka
aðsendra
greina