Morgunblaðið - 29.03.2009, Síða 47

Morgunblaðið - 29.03.2009, Síða 47
Auðlesið efni 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Ísraelskir her-menn hafa sagt skelfilegar sögur af fram-ferði ísraelska hersins í inn-rásinni í Gaza 3. janúar sl. en samkvæmt þeim fengu þeir ekki aðeins frjálsar hendur um að skjóta konur og börn og aðra óvopnaða borgara, heldur var þeim beinlínis skipað að gera það. Þá var þeim sagt að vinna sem mestar skemmdir á heimilum Palestínu-manna. Hernaðar-aðgerðirnar stóðu yfir í 22 daga. 13 Ísraelar, þar af þrír óbreyttir borgarar, féllu í inn-rásinni, meira en 1.300 Palestínu-menn, þar af 437 börn undir 16 ára aldri, 110 konur og 123 gamal-menni. Gaza-svæðið er enn í her-kví Ísraela og upp-byggingar-starf þar er ekki hafið. Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, sem heldur því fram að enginn her-afli jafnist á við þann ísraelska í siðferðis-styrk, segir að frá-sagnir her-mannanna verði kannaðar en ísraelsk mann-réttinda-samtök benda á að þrjár vikur séu liðnar síðan ísraelska her-ráðið fékk vitnis-burð her-mannanna í hendur. Um hann hafi verið þagað þar til dag-blaðið Haaretz komst yfir hann. Her-mennirnir sögðu frá reynslu sinni á fundi í Oranim-háskólanum í Norður-Ísrael og sæta frá-sagnir þeirra miklum tíðindum. Er þetta í fyrsta sinn sem ísraelskir her-menn tjá sig með þessum hætti og sögur þeirra ganga þvert gegn opin-berum yfir-lýsingum um að Ísraelsher leggi mikið á sig til að forðast mann-fall meðal óbreyttra borgara. Mann-réttinda-samtök í Ísrael hafa brugðist hart við þessum lýsingum og ein þeirra, Yesh Din, hafa krafist óháðrar rannsóknar. Benda þau á að þrátt fyrir vitnis-burð hundraða manna um stríðs-glæpi í inn-rásinni á Gaza hafi engin rannsókn farið fram. Ísraels-her sé hins vegar ófær um slíka rannsókn á sama tíma og hann er sakaður um alvarlega stríðs-glæpi. Heims-kunnir dómarar og mannréttindafrömuðir hafa hvatt til alþjóðlegrar rannsóknar á stríðs-glæpum beggja aðila í Gaza-stríðinu. Hernaðar-aðgerðir Ísraela á Gaza Reuters Palestínskt fólk situr við bráðabirgða-skýli við rústir húss síns, sem var eyðilagt í 22 daga löngum hernaðar-aðgerðum Ísraela á Gaza-svæðinu. Þýskir vísinda-menn hafa þróað skó, sem „vaxa“ með fótum barna. Er mark-miðið að koma í veg fyrir að foreldrar kaupi of stóra skó á börn sín, til að hafa borð fyrir báru því börn vaxa hratt. Rannsóknir sýna að of stórir skór geta valdið ýmsum vanda-málum hjá börnum. Hópur vísinda-manna hjá Potsdam-háskóla hefur unnið að verkefninu í tvö ár og m.a. rannsakað göngu-hreyfingar barna. Nú hafa vísinda-mennirnir kynnt skó, sem passa alveg þegar þeir eru keyptir en geta lengst um allt að 2 sentimetra með sama hraða og fætur barnanna stækka. Skórnir „vaxa“ með fótum barnanna Verð-bólgan mælist nú á árs-grundvelli 15,2%. Lækkaði hún síðan í febrúar um 0,6% sem er mesta lækkun á milli mánaða í 23 ár, eða frá því í mars árið 1986. Þetta er heldur meiri lækkun en greiningar-deildir og aðrir sér-fræðingar höfðu reiknað með en mestu skipti um þessa verð-hjöðnun í mánuðinum að húsnæðis-liðurinn lækkaði um 5,1%, aðal-lega vegna lækkunar markaðs-verðs. Fleiri liðir í vísi-tölunni lækkuðu einnig í mars. Þannig lækkaði verð á bensíni og dísil-olíu um 3,1%, matur og drykkjar-vara lækkaði um 0,9% og verð á flug-far-gjöldum til út-landa lækkaði um 8,3%. Hins vegar er vetrar-útsölum víðast hvar lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,5% síðan í febrúar. Verðbólga minnkar Sigrún Helgadóttir, líf- og umhverfis-fræðingur, hlaut ár-lega viður-kenningu Hag-þenkis fyrir bókina Jökulsár-gljúfur – Detti-foss, Ásbyrgi og allt þar á milli, sem bóka-forlagið Opna gaf út. Í umsögn Viður-kenninga-ráðs um verk Sigrúnar segir: Lykill að stór-brotnu svæði, þar sem afar vel er fléttað saman sögu, náttúru-fræði og bók-menntum. „Það er ótrúlega hvetjandi að fá svona viður-kenningu,“ sagði Sigrún. Hún sagði að viður-kenningin væri jafn-vel enn meira virði en ella sökum þess að það væru kollegar í hópi fræði-manna sem veittu hana. „Ég var nógu glöð með að vera ein af þeim tíu sem voru til-nefndir, það var frábært. Ég ætlaði í raun varla að trúa því, kannski vegna þess hve bókin lætur lítið yfir sér.“ Sigrún ásamt dóttur sinni, Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara, sem lék við afhendinguna. Hlaut viður-kenningu Hag-þenkis Morgunblaðið/Ómar Íslendingar töpuðu fyrir Færeyingum í fyrsta sinn í sögunni þegar þjóðirnar áttust við í vináttu-landsleik síðast-liðinn sunnudag. Færeyingar hrósuðu sigri, 2:1, í 22. lands--leik þjóðanna en fyrir leikinn í gær höfðu Íslendingar unnið 20 af leikjunum og úrslitin því sögu-leg. ,,Við spiluðum bara ekki nógu vel. Við stjórnuðum leiknum nær allan tímann en spilið gekk of hægt hjá okkur og Færeyingarnir gátu varist því nokkuð vel. Það vantaði hraða-breytingu í leik okkar en það gerði okkur líka erfitt fyrir að Færeyingarnir lágu mjög aftar-lega á vellinum,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði íslenska lands-liðsins, en bæði liðin tefldu fram hálf-gerðum B-lands-liðum. ,,Það er mjög vafa-samur heiður að hafa verið í fyrsta íslenska landsliðinu sem tapar fyrir Færeyjum en það þýðir ekkert að grenja það og þetta gerist vonandi ekki aftur,“ sagði Davíð Þór. Söguleg úrslit í vináttulandsleik Meðal-raun-ávöxtun íslenskra lífeyris-sjóða hefur verið um 1,7% á ári undan-farin fimm ár. Miðað er við að raun-ávöxtun verði að vera að minnsta kosti 3,5% á ári til að sjóðirnir geti staðið undir skuld-bindingum sínum. Pétur H. Blöndal alþingis-maður segir að sumir sjóðir muni þurfa að skerða réttindi sjóð-félaga til fram-tíðar. „Hugsanlega er rétt að bíða með skerðingu í eitt ár eða svo, á meðan óvissa ríkir um virði eigna.“ Pétur segir að ef ákveðnir sjóðir skerði ekki lífeyris-réttindi núna verði þeir að skerða þau síðar. „Í raun er því verið að velta vandanum yfir á komandi kyn-slóðir með því að fresta skerðingu réttinda.“ Lífeyris-rétt- indi skerðast til fram-tíðar Ísland átti í engum vandræðum með að leggja Eistland að velli, 38:24, í 3. riðli undan-keppni Evrópu-móts landsliða í hand-knatt-leik karla síðast-liðinn sunnudag. Með sigrinum komust Íslendingar í efsta sæti riðilsins, jafnir Norðmönnum að stigum en með betri marka-tölu. Ísland var án margra af sínum sterkustu leik-mönnum en það kom ekki að sök en sigurinn var aldrei í hættu og gerðu íslensku strákarnir út um leikinn strax í fyrri hálf-leik. Ísland vann Eistlendinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.