Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 49
Velvakandi 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
ÞEIR SEGJA AÐ ÞAÐ HJÁLPI
PLÖNTUM AÐ VAXA AÐ TALA VIÐ ÞÆR
ÉG ER EKKI VISS
UM AÐ OLNBOGARNIR
MÍNIR SÉU SAMSTÆÐIR
ÞÚ DRAPST
HANA!
Grettir
Kalvin & Hobbes
ERTU Á
LEIÐINNI
Í VINNUNA
PABBI?
ÉG GERI ÞETTA BARA SVO
HANN LÆRI AÐ META
HELGARNAR
ÚFF!
GANGI ÞÉR VEL AÐ PÚLA.
ÉG OG MAMMA VERÐUM HÉR
OG EYÐUM PENINGUNUM
MIKIÐ FINNST MÉR
GAMAN AÐ VERA Í
SUMARFRÍI. ÞÁ GETUR
MAÐUR GERT HVAÐ SEM
MAÐUR VILL
Kalvin & Hobbes
MIKIÐ
ER HEITT
JÁ! EN ÉG Á ERFIÐAST MEÐ
AÐ ÞOLA RAKANN JÁ!
ER ÞÉR ILLA
VIÐ RAKA?
ÞÁ ÆTTIR ÞÚ AÐ
STÖKKVA ÚT NÚNA!
Kalvin & Hobbes
HVAÐ ER
Í MATINN?
LAX! LAX!
OJ BARA!
ÞAÐ
VÆRI
SIGUR
EF ÞÚ
HELDUR SVONA
ÁFRAM ÞÁ
FESTIST ÞESSI
SVIPUR Á ÞÉR
ELSKAN MÍN, ÞÚ ERT UNG OG
HEFUR LIFAÐ LÍFI ÞÍNU Í MJÖG
VERNDUÐU UMHVERFI
ÞAR SEM ÉG ER MÓÐIR
ÞÍN, ÞÁ FELLUR Í MINN HLUT
AÐ SEGJA ÞÉR FRÁ EINUM
ÓFRÁVÍKJANLEGUM SANNLEIKA
VARÐANDI LÍFIÐ
FLEST FÓLK FITNAR
ÞEGAR ÞAÐ ELDIST!
Hrólfur hræðilegi
INDÆLI NÁGRANNINN
OKKAR, HANN KALLI,
ANDAÐIST Í GÆR
ÉG VONA AÐ
HANN HAFI VERIÐ
UMKRINGDUR
ÁSTVINUM
NEI, HANN VAR
UMKRINGDUR AF
VÍKINGASVEITINNI
Gæsamamma og Grímur
Ferdinand
Ef einhver ber kennsl á börnin á þessari mynd væru upplýsingar vel þegn-
ar. Börnin sitja í hestvagni. Myndin kemur úr einkasafni bandarísks her-
manns, og er sennilega tekin í sveit. Upplýsingar sendist á netfangið
sthj@lrh.is eða í síma 553-0717.
Sævar Þ. Jóhannesson.
Mynd frá stríðsárunum
Sparkað í eldri
borgara
FJÖLDI eldri borgara
liggur nú í banka-
svaðinu eftir hrun
bankanna. Þeir eru í
dag illa staddir. Rændir
uppsöfnuðu sparifé í
sjóðum og hlutabréfum.
Siðferðilega svívirtir af
skilanefndum bank-
anna vegna af-
skiptaleysis um þeirra
hagi. Rændir og yf-
irgefnir eldri borgarar
liggja ekki í blóði í
göturæsi heldur lifa í
voninni um að björg-
unaraðilar bankanna komi auga á þá.
Eðlilegt er að upp komi spurningar
hjá eldra fólki um hvort bókhalds-
vélar nýju bankanna hafi aðeins tvö
kerfi; tapað – fundið, og tekið hafi
verið úr sambandi kerfi sem felur í
sér ákallið að heiðra skuli föður og
móður. Þau eiga ekki kost á að vinna
upp sjóði og fáein hlutabréf sem tek-
in voru af þeim ófrjálsri hendi í októ-
ber sl. Þetta fólk er búið að slíta sér
út og greiða þjóðfélaginu skatt ára-
tugum saman. Sama fólk krefst þess
að bankayfirlit frá 1. október taki
gildi fyrir næstu alþingiskosningar.
Eldri borgarar sem áttu í sjóðum
og eitthvað í hlutabréfum bankanna
voru hin einu áþreifanlegu dæmi um
sparnað og ráðdeildarsemi þessa
fólks í sjálfu banka- og peningakerfi
landsmanna. Þessir sömu eldri borg-
arar sjá í dag að bankarnir lánuðu
m.a. þeirra sparnað „fjárglæfra-
mönnum“.
Fjöldi eldri borgara þekkir erf-
iðleika sem fylgja ungu fólki að koma
upp heimili fyrir fjölskylduna og hafa
reynt það á eigin skinni á yngri ár-
um. Við lesum og heyrum að verið sé
að leita lausna fyrir fólk sem á í erf-
iðleikum með skuldir heimila, það er
nauðsynlegt og rökrétt. Eldri borg-
arar fagna því verki og vona að
lausnin sé skammt undan.
Skilanefndir bankanna verða að
finna peningana sem rænt var frá
eldri borgurum í október og end-
urgreiða þeim á virðu-
legan hátt – þeir eiga
það skilið.
Þau fáu hlutabréf
sem eldri borgarar áttu
í bönkum voru beinn
stuðningur við bankana
til að geta gegnt hlut-
verki sínu að styðja við
fyrirtæki og ein-
staklinga. Framtaks-
samir og heiðarlegir
einstaklingar í öllum
greinum athafnalífsins
eru undirstaða vel-
gengni þessarar þjóðar.
Þessa tvo kosti verður
að ala með þjóðinni.
Þegar litið er yfir
þingmannahópinn er leitun á þing-
manni sem hefur þekkingu til að
finna lausn á vandanum, sem er að
endurgreiða eldri borgurum tap í
sjóðum og fáeinum hlutabréfum. Ef
það tekst geta eldri borgarar haldið
virðingu sinni síðustu árin og haldið
áfram að vera fyrirmynd nýrrar kyn-
slóðar um sparnað og fyrirhyggju
með því að hafa lagt hluta af tekjum
sínum í sjóði, sparireikninga og
hlutabréf, sem er undirstaða fyrir
banka til að styðja einstaklinga til
framkvæmda. Þingmaðurinn Pétur
Blöndal er með þekkingu og er oft
tillögugóður. Hann gæti örugglega
stutt eldri borgara, setji hann sig í
þeirra stöðu og sannfæri skilanefndir
banka og alþingismenn um að það er
ekki sæmandi að skilja eldri borgara
eftir í bankasvaðinu. Það verður að
færa þeim aftur það sem tekið var frá
þeim í október. Það skal haft í huga
að það er m.a. eldri borgurum þessa
lands að þakka að Ísland varð lýð-
veldi 1944. Og að landið hefur haldið
sjálfstæði sínu og verið metið þjóð
meðal þjóða þrátt fyrir fámenni.
Krafan er: Nýju bankarnir skili
fyrir næstu alþingiskosningar sjóð-
um og hlutabréfum bókað pr. 1. októ-
ber 2008.
Hermann Bridde,
fyrrverandi bakarameistari.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur í kvöld kl. 20-23.30. Dans-
hljómsveitin Klassík leikur danslög við
allra hæfi. Sjá feb.is.
Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka
daga er fjölbreytt dagskrá kl. 9-16.30.
Mánudaga kl. 10.50 og miðvikudaga kl.
9.50 er vatnsleikfimi í Breiðholtslaug.
Þriðjudaga og föstudaga kl. 10.30 er
stafganga um nágrennið. Mánudaginn
30. mars kl. 10.30 (breyttur tími) er
fjölbreytt leikfimi í umsjón Sigurðar R.
Guðmundssonar.
Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13 á
morgun. Stund og fyrirbænir í kirkj-
unni á miðvikudag kl. 11, súpa kl. 12,
brids kl. 13. Brids-aðstoð fyrir dömur á
föstudag kl. 13.
Hraunsel | Stjórn FEBH, hefur opna
skrifstofu í Hraunseli, mánudaga kl.
13-15 og föstudaga kl. 10-12.
Hæðargarður 31 | Kynningarfundur í
salnum 1. apríl kl. 13 á vorferðinni í
Borgarnes 20., 21. og 22. apríl.
Soffíuhópur og Tungubrjótar flytja
dagskrá í Landnámssetrinu. Þórður
Helgason byrjar aftur með skapandi
skrif kl. 16 á mánudag. Uppl. í s. 411-
2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum á mánudag kl. 10.40 og Balkan-
dansar í Kópavogsskóla kl. 17. Línu-
dans á þriðjudag í Kópavogsskóla kl.
14.30 byrjendur og framhald kl. 15.30.
Hringdansar á miðvikudag í Lindaskóla
kl. 15-16. Ringó á laugardag í Snæ-
landsskóla kl. 9.30. Uppl. í síma 564-
1490 og 554-5330 og 554-2780.
Korpúlfar, Grafarvogi | Bútasaumur á
Korpúlfsstöðum á morgun kl. 13-16.
Ganga frá Egilshöll kl. 10 á morgun.
Vesturgata 7 | Páskabingó verður
miðvikudaginn 1. apríl kl. 12.45. Vinn-
ingar og veislukaffi.