Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 52
52 MenningTÓNLIST MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Þjóðmenningarhúsið – The Culture House National Centre for Cultural Heritage Hverfisgötu 15 · 101 Reykjavík Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is Opið daglega kl. 11.00 – 17.00 AÐ SPYRJA NÁTTÚRUNA Saga Náttúrugripasafns Íslands ÍSLAND :: KVIKMYNDIR Berlín - Kaupmannahöfn - Reykjavík ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS 90 ár í Safnahúsi Sýningar - leiðsögn - veitingar - verslun Leiðsögn án endurgjalds í boði fyrir skólahópa. Leiðsögn á ensku um handritasýninguna kl. 15.30 á mánudögum og föstudögum. Veitingar á virkum dögum. Þjóðmenningarhúsið var tekið í notkun fyrir 100 árum, af því tilefni eru nú opnaðar þrjár nýjar sýningar: ÍSLAND :: KVIKMYNDIR, um 100 íslenskar kvikmyndir aðgengilegar í fullri lengd. Að spyrja Náttúruna – Saga Náttúru- gripasafns Íslands, ýmsir sjaldgæfir og spennandi náttúrugripir auk muna og skjala úr sögu safnsins. Þjóðskjalasafn Íslands – 90 ár í Safnahúsi, teikningar úr sögu hússins og næsta nágrennis auk skjala allt frá dögum Jörundar hundadagakonungs. Komdu, sjáðu og gæddu þér á fróðleik. NÝJAR SÝNINGAR Aldarafmæli í Þjóðmenningarhúsinu Discord byrjaði Músíktil-raunir 2009 með rymj-andi hamagangi, mikilkeyrsla og mikið fjör þó að gassagangurinn hefði á köflum verið fullmikill. Í seinna laginu höktu þeir eilítið í skiptingunum, en annars allt í fínu lagi. Næsta sveit fór aðra leiðir, ekki hamagangur og hávaði, en engu minna að gerast, í fyrra laginu í það minnsta. Captain Fufanu spilar framúrstefnulegt elektro á köflum og gerir það einkar vel. Seinna lag sveitarinnar fannst mér þó jafn venjulegt og það fyrra var spenn- andi. Þeir félagar fá plús fyrir það hvað þeir voru afslappaðir á sviðinu þrátt fyrir hljóðvandræði í upphafi fyrra lagsins. Það hefðu margir farið á límingum við slíka uppákomu. Eftir elektrósprettinn kom meira rokk með Apart From Lies. Það var þokkalega þétt sveit en allt of mikið í gangi og þó að þrír söngvarar hafi gert til þá þyrfti líka betri lög. Seinna lag sveitarinnar var meira af því sama þrátt fyrir fínan sprett undir lok lagsins. Miss Piss byrjuðu ekki vel, óstyrkar og smátíma að ná áttum, en svo small þetta saman hjá þeim og seinna lagið var frábært, snúið og skemmtilegt lag með fínum texta. Mjög forvitnileg sveit sem gaman væri að sjá aftur. Funktastic átti svo síðasta sprett fyrir hlé og keyri af stað með látum. Keyrslan, grúvið, var reyndar svo mikið að það varð laginu yfirsterk- ara og fjörið svo mikið að gamanið gleymdist. Enn var svo bætt í bassa- fjörið í seinna lagi sveitarinnar og þó að spilað væri af íþrótt var það full- mikið af því góða. Eftir hlé mættu piltarnir í Ancient History og voru með allt á hreinu, eða næstum allt: Pósur fínar, spila- mennska í góðu lagi, sviðsframkoma vel æfð, riffin á tæru en lögin gleymdust. Þannig byrjaði fyrsta lagið prýðilega en svo varð ekkert úr því og það síðara varð eiginlega bara hugmyndasafn. Blanco-félagar voru líka með sviðsframkomuna á hreinu, en þeir tóku sjálfa sig hæfilega alvarlega, fjörkálfar og fínir hljóðfæraleikarar. Söngvarinn var líka góður nema þegar hann tók að ýlfra af fjöri í seinna laginu, það var eiginlega pín- legt. We Went to Space er að stofni til hljómsveit sem tók þátt í síðustu til- raunum, en varla þekkjanleg, slíkar hafa framfarirnar verið. Fyrra lag sveitarinnar var geysivel samið, framvindan fín, spilamennska góð og söngur frábær. Seinna lagið þarf maður eiginlega að heyra nokkrum sinnum aftur til að grípa það og því óræð stærð. Eftir framsækið geimrokk kippti Knights Templar mönnum niður á jörðina að nýju með kraftmiklu þungarokki. Lögin voru þó full ein- hæf, takturinn svo áþekkur að lögin renna nánast saman í kollinum á manni, en söngvarinn stóð sig með stakri prýði; mjög efnilegur. Lokaorðin, eða réttra sagt loka- öskrin þetta kvöld átti svo fínt rokk- band úr Eyjum, Decimation Dawn, sem hristi vel upp í mannskapnum. Dáldið sundurlaust á köflum, en alla jafna vel heppnað og söngur góður. Áheyrendur í sal kusu Blanco áfram, en dómnefnd þótti Discord skara fram úr. Ancient History Var með næstum allt á hreinu. Funktastic Spilaði af íþrótt og þrótti. Knights Templar Bauð upp á kraft- mikið þungarokk. Decimation Dawn Hristi vel upp í mannskapnum. Músíktilraunir Íslensku óperunni Fyrsta tilraunakvöld Músíktilrauna, haldið í Íslenskuu óperunni 27. mars. Fram komu Discord, Captain Fufanu, Apart from Lies, Miss Piss, Funktastic, Ancient History, Blanco, We went to Space, Knights Templar og Decimation Dawn. ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST Captain Fufanu Spilar fram- úrstefnulegt elektro. Rokk og raftónlist Miss Piss Seinna lagið var frábært, snúið og skemmtilegt með fínum texta. We Went to Space Spilamennska var góð og söngur frábær. Apart From Lies Átti fínan rokk- sprett undir lokin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.