Morgunblaðið - 15.07.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Gætu fengið bankana
Ekkert samkomulag um að kröfuhafar eignist Kaupþing Aðalsamningamað-
ur Íslands segir koma til greina að kröfuhafar eignist bankana ef þeir vilja reka þá
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÞORSTEINN Þorsteinsson, sem stýrir viðræðum
við kröfuhafa gömlu bankanna fyrir hönd stjórn-
valda, segist ekki geta staðfest að neitt samkomu-
lag liggi fyrir um að kröfuhafar Kaupþings muni
eignast bankann í vikulok, en þá á viðræðunum að
ljúka samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins
(FME). „Ríkisstjórnin hefur alla tíð verið opin fyr-
ir því að kröfuhafar eignuðust bankana, einn eða
fleiri, ef þeir hefðu áhuga á því að fjármagna þá.
Hún hefur hins vegar ekki verið opin fyrir því að
gömlu bankarnir eignuðust þá nýju til að leggja þá
niður eða gera þá að eignastýringarfyrirtækjum.
Skilyrði hennar hefur verið að það yrðu settir upp
öflugir bankar sem gætu styrkt atvinnulífið og það
er opið gagnvart bönkunum þremur. En engum
viðræðum er lokið og þær halda því áfram.“
Skuldabréfaeigendur stærstu kröfuhafar
Samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Kaup-
þings eru skuldabréfaeigendur stærstu kröfuhaf-
ar bankans. Vitað sé til þess að einhver skuldabréf
hafi skipt um eigendur en ógjörningur sé að gera
sér ljóst hverjir þeir eru fyrr en þeir lýsa kröfum
sínum. Því vill hún ekki staðfesta fréttaflutning
þess efnis að bandarískir vogunar- og trygginga-
sjóðir séu að fara að eignast Kaupþing.
Þorsteinn segir að afar erfitt sé að meta hvort
samkomulag náist fyrir næsta föstudag. „Staðan
er sú að það eru viðræður í gangi við alla gömlu
bankana. Þær fóru fram í London síðustu tvær
vikur og fara fram í Reykjavík í þessari viku. Þær
standa mismunandi í bönkunum þremur, þannig
að það er mjög erfitt að meta það á þessu stigi
hvort takist að ljúka þeim.“ Hann segist telja að
vilji sé hjá kröfuhöfunum til að klára viðræðurnar
fyrir vikulok. „Þetta eru mjög flóknar viðræður og
það er bil á milli samningsaðilanna. En á föstudag
munum við tilkynna FME hvar við stöndum og
síðan verða teknar ákvarðanir eftir það.“
Eftir Helga Vífil Júlíusson
helgivifill@mbl.is
LÍFEYRISSJÓÐURINN Kjölur
mun skerða lífeyrisréttindi um 19%
frá og með 1. júlí og að öllum lík-
indum enn frekar á næsta ársfundi.
Þetta staðfestir Halldór Kristinsson,
framkvæmdastjóri sjóðsins, en hon-
um er stýrt af Landsbankanum. Sér-
stakur saksóknari rannsakar sjóð-
inn.
Raunávöxtun sjóðsins á síðasta ári
var neikvæð um 28%. Tapið er að
mestu vegna taps á skuldabréfum
fyrirtækja og banka, að sögn Hall-
dórs.
Skerðingin er til þess að fara að
lögum um tryggingafræðilega út-
tekt, þ.e. að mismunur á framtíðar-
skuldbindingum og eignum sé ekki
yfir mínus 15%. Við síðustu trygg-
ingafræðilegu úttekt sjóðsins var
staðan um -30%. Því þurfti að skerða
réttindin, að sögn Halldórs.
Sérstakur saksóknari hóf í mars
síðastliðnum rannsókn á þeim sem
stýrðu fimm lífeyrissjóðum, þar á
meðal Kili, vegna gruns um að fjár-
festingar sjóðanna í tilteknum fé-
lögum, þar á meðal Landsbankan-
um, hefðu farið yfir lögbundið
hámark. Sjóðirnir voru allir í stýr-
ingu hjá Landsbankanum.
Í kjölfarið setti fjármálaráðuneyt-
ið stjórnina og framkvæmdastjóra af
17. mars. Í síðustu viku var sjóðnum
skilað aftur í hendur réttkjörinnar
stjórnar sjóðsins.
Hálfdán Hermannsson, stjórnar-
formaður Kjalar, segir að settur um-
sjónarmaður hafi tekið ákvörðun um
skerðingu lífeyrisréttinda. „Fæst
orð bera minnsta ábyrgð,“ segir
hann spurður um tap lífeyrissjóðs-
ins. „Það er svo margt í þessu sem
þarf að draga saman og er alveg
stórfurðulegt,“ segir Hálfdán.
Kjölur skerðir lífeyri
Fjárfestingar lífeyrissjóðsins eru til skoðunar hjá
sérstökum saksóknara Er í umsjón Landsbankans
Í HNOTSKURN
» Sjóðsfélagar eru 5 þús-und. Lífeyrisþegar sjóðs-
ins voru 798 um áramótin.
» Hrein eign sjóðsins er 8milljarðar.
» Sjóðurinn er lokaður. Ið-gjöld eru því ekki greidd.
» Fjórir aðrir lífeyrissjóðir,sem Landsbankinn stýrði,
eru í rannsókn hjá sérstökum
saksóknara.
BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar
samþykkti í gærkvöldi, á löngum
fundi, samkomulag við Geysi Green
Energy um sölu á hlut bæjarins í HS
orku og kaup á viðbótarhlut í HS
veitum. Þessi fyrirtæki urðu til við
uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja
á síðasta ári. Jafnframt samþykkti
bæjarstjórn að kaupa land og jarð-
hitaréttindi í Svartsengi og á
Reykjanesi af HS orku og að leigja
fyrirtækinu rétt til nýtingar þeirra í
65 ár.
Samningarnir voru samþykktir
með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins sem hafa meirihluta í
bæjarstjórn. Fulltrúar A-listans
lögðu til að afgreiðslu málsins yrði
frestað og það borið undir íbúa í at-
kvæðagreiðslu og greiddu atkvæði á
móti.
Í samþykkt bæjarstjórnar er
kveðið á um skilmála samninga um
hlutabréfaviðskiptin við Geysi Green
en bæjarráði falin útfærsla og end-
anleg afgreiðsla kaupsamninga. Að
sögn Böðvars Jónssonar, formanns
bæjarráðs, er reiknað með að gengið
verði frá kaupsamningi á fundi bæj-
arráðs á morgun. Áður en samning-
urinn taki gildi þurfi að uppfylla viss
skilyrði, svo sem varðandi veð fyrir
skuldabréfi og þátttöku kanadíska
fyrirtækisins Magma Energy.
Samþykkt bæjarstjórnar á landa-
kaupunum er hins vegar endanleg
afgreiðsla þess hluta málsins.
helgi@mbl.is
Sala HS
orku
samþykkt
A-listinn vildi frestun
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD rann-
saka nú hvort fimmta tilfelli svína-
flensu sé komið upp hér á landi.
Þetta segir Haraldur Briem sótt-
varnalæknir, sem vill þó ekki tjá sig
frekar um málið. Yfirlýsing um mál-
ið verður gefin út í dag.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 að
grunur léki á að unglingsstúlka, sem
er nýkomin heim frá Bandaríkjun-
um, hefði smitast af flensunni.
„Það er ekkert ótrúlegt við það að
hér greinist flensutilfelli. Hún er alls
staðar í kringum okkur, í Evrópu og
Bandaríkjunum og því ekki ólíklegt
að flensan berist hingað,“ sagði Har-
aldur í samtali við mbl.is.
Skoða mögulegt
svínaflensutilfelli
BETUR fór en á horfðist þegar sjúkrabifreið fór
á hliðina eftir harðan árekstur við fólksbifreið
laust fyrir klukkan hálftvö í gær. Sjúkrabíllinn,
sem var í forgangsakstri á leið í útkall, var á leið
vestur Hringbraut þegar fólksbíll á leið suður
Njarðargötu ók inn í hlið hans með þeim afleið-
ingum að hann endaði á hliðinni uppi á eyju.
Tveir sjúkraflutningamenn sem voru í sjúkra-
bílnum sluppu ómeiddir en ökumaður fólksbíls-
ins, sem var einn í bílnum, var fluttur á slysa-
deild. Meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Báðir
bílarnir eru mikið skemmdir eftir áreksturinn.
Harður árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gærdag
Ekið inn í hliðina á sjúkrabíl í forgangsakstri
Morgunblaðið/Júlíus
Tempur – 15 ár á Íslandi
Frábær afmælistilboð í júlí
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i