Morgunblaðið - 15.07.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsala
Ótrúlegt úrval af yfirhöfnum
Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
M
b
l1
12
32
48
Taxfree dagar frá fimmtudegi til mánudags
Tax free
Stærsta
töskuverslun
landsins
VERÐ á bensíni lækkaði um eina
krónu á lítrann hjá N1 í gær og á
dísilolíu um tvær krónur á lítra.
Skýring þessa er lækkandi heims-
markaðsverð. Önnur olíufélög
höfðu ekki tilkynnt um breytingar
á eldsneytisverði í gærkvöldi.
N1 lækkar
eldsneytisverðið
Morgunblaðið/Frikki
Jákvætt Bensínverð að lækka.
76,3% telja það skipta miklu eða
frekar miklu máli að haldið verði
þjóðaratkvæði um aðildarumsókn
að Evrópusambandinu. Þetta kem-
ur fram í skoðanakönnun sem
Capacent Gallup vann fyrir Heims-
sýn. 17,9% töldu það skipta litlu eða
frekar litlu máli. Svarendur í könn-
uninni voru 788.
76% vilja kjósa
UMBOÐSMAÐUR
Alþingis, Róbert
Spanó, hefur kom-
ist að þeirri nið-
urstöðu að jákvæð
og bein skylda geti
hvílt á ráðherra að
taka eineltismál á
vinnustað til um-
fjöllunar.
Ýmis kvört-
unarmál hafa borist embættinu sem
tengjast einelti á vinnustað og voru
þau tilefni þess að umboðsmaður
ákvað að kanna að eigin frumkvæði
hvort og hvaða skyldur hvíldu á
ráðherra til að bregðast við slíkum
tilvikum með raunhæfum og virk-
um hætti. Í áliti sínu bendir um-
boðsmaður m.a. á að huga þurfi að
sérstöðu hins opinbera í svona mál-
um.
Ráðherrum skylt
að taka á einelti
Róbert Spanó
Í VOR stóð TM Software fyrir ár-
legri forritunarkeppni milli nem-
enda í háskólanámi. Ásgeir Bjarni
Ingvarsson hreppti fyrstu verðlaun
og fékk að launum sumarvinnu hjá
TM Software ásamt 100.000 króna
úttekt í Nýherja í Borgartúni. Ás-
geir er nemandi í Háskólanum í
Reykjavík. Í öðru sæti var Jón Ingi
Sveinbjörnsson sem hlaut 50.000
króna gjafabréf í Nýherja.
Verðlaunin afhent Ásgeir (t.v.)
ásamt forstjóra TM Software.
Ásgeir fékk sumar-
vinnu að launum
Í VIÐTALI við Xavier Rodriguez
Gallego í Morgunblaðinu 12. júlí sl.
kemur fyrir millifyrirsögnin Um-
hverfisstofnun mismunar, en í við-
talinu lýsir Xavier sinni hlið á máli
sem hann vísaði til Umboðsmanns
Alþingis.
„Þannig vill til að umboðsmaður
hefur þegar komist að niðurstöðu í
þessu máli þar sem Umhverf-
isstofnun er ekki talin hafa mis-
munað Xavier,“ segir í yfirlýsingu
frá Umhverfisstofnun.
Xavier var ekki
mismunað
STUTT
Vísur um Bjarna Har
misfórust
Mistök urðu í tölvuvinnslu blaðsins
við birtingu á tveimur vísum Krist-
jáns Runólfssonar um Bjarna Har-
aldsson, kaupmann á Sauðárkróki, í
blaðinu í gær. Um leið og beðist er
velvirðingar á mistökunum eru vís-
urnar hér birtar réttar:
Teygjur, kort og kantskerar,
klemmur, glös og farmiðar,
brjóstsykur og blýantar,
bækur, grjón og náttsloppar.
Kleinujárn og kjöthamrar,
kerti, sápa og vettlingar,
þvottaefni og þurrklútar,
þetta fæst hjá Bjarna Har.
LEIÐRÉTT
SAMNINGUR sem Elkem Ísland
og Skógrækt ríkisins hafa gert um
notkun á fersku viðarkurli úr ís-
lenskum skógum í framleiðsluna í
Járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga markar nýja tíma í íslenskri
skógrækt. Útlit er fyrir að eftirspurn
eftir íslenskum viði verði langt um-
fram mögulegt framboð og ný störf
skapast við grisjun, flutning og úr-
vinnslu grisjunarviðar.
Um 1.000 tonn af grisjunarviði
verða notuð í tilraunaverkefni í vetur
en í framhaldinu er stefnt að lang-
tímasamningi um notkun íslensks
iðnviðar á Grundartanga.
helgi@mbl.is
Skjalfest Magnús Gunnarsson vottar samninginn sem Jón Loftsson skóg-
ræktarstjóri og Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem Ísland, skrifuðu undir á
Mógilsá. Hinn votturinn er Edda Björnsdóttir, lengst til vinstri.
Viðurinn
eftirsóttur
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Sjómenn á strandveiðibátum, sem gera
út frá Þórshöfn, hafa fengið þokkalegan afla að und-
anförnu en fjórir Þórshafnarbátar eru nú á strand-
veiðum.
Fréttaritari hitti feðgana Halldór Jóhannsson og
Stefán Þorgeir á Leó þegar þeir komu að landi með
rúm 600 kíló af spriklandi þorski. Það hefði þó verið
hægt að veiða fleira en þorskinn því skammt undan
landi hefði allt verið vaðandi í makríl.
„Það var sjóðandi sjór af makríl allt um kring, að-
eins fjórar sjómílur norður af Grenjanesinu, og hef-
ur verið undanfarna daga,“ sagði Halldór, sem ekki
hefur séð slíkt áður á löngum sjómannsferli sínum.
Smábátarnir hér eru þó ekki á makrílveiðum og
síldveiðiskipin hafa ekki heimild til að veiða hann
þótt fullur hugur væri til þess. Makríllinn má aðeins
vera 10% af heildarafla skips en alltaf eru líkur á að
hann slæðist með í flottrollið.
Góður matfiskur
Full kör af glænýjum fiski eru falleg sjón og
vekja líka góða matarlyst. Nýr þorskur beint upp
úr sjó er veislumatur, einnig er makríllinn góður
matfiskur. Sjómaðurinn Halldór var ekki nema
augnablik að flaka þorsk, makríl og karfa handa
svöngum fréttaritara sem dreif sig heim, skellti ný-
metinu svo í ofn með hvítlauk, sveppum og fetaosti,
nýrra gat það ekki verið. Lífið er vissulega ljúft á
landsbyggðinni.
Sjóðandi sjór af makríl
Fjórir Þórshafnarbátar eru á strandveiðum og aflinn þokkalegur Makríll í
stórum torfum skammt frá landi en síldveiðiskipin mega ekki veiða hann
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Öruggt handbragð Fiskurinn var flakaður á staðnum og þaðan beint á diskinn, betra gerist það ekki.