Morgunblaðið - 15.07.2009, Síða 11
Fréttir 11ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar voru
margir hverjir gagnrýnir á ummæli Árna Þórs
Sigurðssonar, formanns utanríkismála-
nefndar, sem hann lét falla um lögfræðinga
Seðlabankans í fjölmiðlum í gær. Þingmönnum
Sjálfstæðisflokks var hvað mest niðri fyrir og
kröfðust þeir afsökunarbeiðni frá Árna Þór.
Ummælin lét Árni falla þegar til umfjöllunar
var minnisblað tveggja lögfræðinga Seðla-
bankans vegna Icesave-samninganna og tölvu-
póstur yfirlögfræðings bankans þar sem fram
kom að ekki bæri að líta á minnisblaðið sem
umsögn bankans, enda væri hún enn í vinnslu.
Árni Þór taldi lögfræðingana hafa villt á sér
heimildir þegar þeir kynntu minnisblaðið fyrir
hefði ekki ráðfært sig við lögfræðideild bank-
ans eins og honum bar lagaleg skylda til. Ef-
aðist hann um hæfi bankans í Icesave-málinu
og öðrum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagðist gáttuð á ummælum
Árna. Hann hefði vegið að starfsheiðri þessa
fólks og það væri honum til minnkunar. Auk
þess spurði hún hversu langt væri hægt að
seilast í andúðinni á einum manni. Hún krafð-
ist þess að Árni bæði starfsmennina afsökunar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokks, gekk svo langt að segja
ríkisstjórnina beita ríkisstofnanir skoðana-
kúgun. andri@mbl.is
Í minnisblaðinu var farið hörðum orðum um
Icesave-samkomulagið og sagðist Árni Þór
hafa talið sér trú um að lögfræðingarnir hefðu
talað fyrir hönd bankans. „En þetta er augljós-
lega ekki skoðun Seðlabanka Íslands.“
Vegið að starfsheiðri
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
situr í nefndinni með Árna. Hún sagði að Svein
Harald Øygard seðlabankastjóri hefði sjálfur
komið á fund nefndarinnar og minnisblaðið
hefði verið kynnt sem álit bankans.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar-
innar, sagði klúður Seðlabankans mikið enda
lægi fyrir að fulltrúi samninganefndarinnar
nefndinni og sagðist m.a. velta fyrir sér hvort
viðkomandi væru enn í vinnu hjá fyrrverandi
seðlabankastjóra, Davíð Oddssyni.
Kröfðust afsökunarbeiðni af Árna
Þingmenn stjórnarandstöðunnar afar ósáttir við ummæli formanns utanríkismálanefndar
Formaður Framsóknarflokks telur ríkisstjórnina beita stofnanir ríkisins skoðanakúgun
Morgunblaðið/Eggert
Niðurlútur Árni Þór fékk skammir í hattinn.
Eftir Andra Karl
og Helga Bjarnason
SAMKOMULAG er milli þing-
flokkanna um að ljúka í dag um-
ræðu og atkvæðagreiðslu um
þingsályktunartillögu ríkisstjórnar-
innar um aðildarumsókn að Evr-
ópusambandinu. Við upphaf um-
ræðunnar í gær voru átján
þingmenn á mælendaskrá en undir
miðnætti þegar leið að frestun
fundar voru þeir fimmtán. Tals-
menn allra flokka munu ljúka um-
ræðunni með 20 mínútna ræðum
síðdegis og síðan verða tillögur
bornar undir atkvæði.
Gert er ráð fyrir því að fimmtu-
dagur og föstudagur verði helgaðir
nefndastarfi til að ljúka umfjöllun
um frumvarp ríkisstjórnarinnar um
ríkisábyrgð vegna Icesave. Það
frumvarp verður tekið fyrir á sam-
eiginlegum fundi efnahags- og
skattanefndar og fjárlaganefndar í
dag og einnig utanríkismálanefnd-
ar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, forseti Alþingis, vonast til að
hægt verði að ljúka þingstörfum á
sumarþinginu í næstu viku.
Bætast fleiri úr
framsókn við?
Ekki var annað á Höskuldi Þór-
hallssyni, þingmanni Framsóknar-
flokks, að heyra en að hann myndi
samþykkja að fara í viðræður – án
tvöfaldrar þjóðaratkvæðagreiðslu –
væri tekið tillit til skilyrða flokks-
ins. Hann taldi þau ekki að finna í
meirihlutaálitinu, heldur í breyting-
artillögu sem Vigdís Hauksdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
hefur flutt við þingsályktun-
artillöguna.
Vigdís var spurð út í það hvort
hún myndi styðja álit meirihluta ut-
anríkismálanefndar, þar sem kveðið
er á um eina þjóðaratkvæða-
greiðslu, eða minnihlutaálit Sjálf-
stæðisflokks, en í því er gert ráð
fyrir tvöfaldri þjóðaratkvæða-
greiðslu. Vigdís sagðist fyrst og
fremst styðja sína eigin tillögu en
yrði hún ekki samþykkt, ætti hún
eftir að gera upp hug sinn. Er þar
með hugsanlega kominn þriðji
framsóknarþingmaðurinn sem styð-
ur tillögu meirihluta utanríkismála-
nefndar. Annar sem ekki hefur gef-
ið upp afstöðu sína er Birkir Jón
Jónsson, en gert er ráð fyrir að
hann geri grein fyrir afstöðu sinni í
ræðustól í dag.
Brýtur í bága við
stjórnarskrána
Vigdís Hauksdóttir kom einnig
inn á það í ræðu sinni í dag að hún
teldi að Alþingi gæti ekki sam-
þykkt tillögu meirihluta nefndar-
innar enda bryti hún í bága við
stjórnarskrána. Sagði hún að þar
sem ekki væri ákvæði um fullveld-
isafsal í stjórnarskrá, hlyti sú til-
laga að ganga til aðildarviðræða við
Evrópusambandið að fela í sér
stjórnarskrárbrot.
Er hún var spurð hvort hennar
eigin tillaga fæli ekki í sér sama
stjórnarskrárbrot og hún teldi hina
gera, svaraði Vigdís því til að til-
laga hennar væri neyðarúrræði til
að bjarga ríkisstjórninni frá stjórn-
skipulagsslysi. Í henni væri alla
vega staðinn vörður um það sem
skipti máli, s.s. auðlindir þjóðarinn-
ar.
Síðar lýsti Árni Þór Sigurðsson,
formaður utanríkismálanefndar, því
að fimm sérfræðingar í stjórnskip-
unarlögum hefðu komið á fund
nefndarinnar. Þeir hefðu ekki séð
neitt athugavert við tillöguna og
sagðist hann frekar ætla að treysta
málflutningi þeirra en Vigdísar.
Atkvæði greidd um ESB-
tillögur síðdegis í dag
Morgunblaðið/Ómar
Spjallað Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknar, fyrir miðju, ræðir við formann sinn, Sigmund
Davíð Gunnlaugsson, og Árna Þór Sigurðsson, þingmann Vinstri grænna, í sölum Alþingis í gær.
Samkomulag um lok umræðunnar Forseti stefnir að þingfrestun í næstu viku
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FORMAÐUR þingflokks sjálfstæðismanna, Illugi
Gunnarsson, segir ekki tryggt að þjóðin hafi síðasta
orðið verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um
samþykkt samnings um aðild að Evrópusamband-
inu ráðgefandi. Menntamálaráðherra segir að skoða
þurfi betur útfærslu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Illugi segir vandann við atkvæðagreiðsluna ekki
aðeins fræðilegan, heldur mjög raunverulegan.
Þingmenn séu aðeins bundnir sinni sannfæringu
samkvæmt stjórnarskrá Íslands og því geti ríkis-
stjórnin ekki talað um að niðurstaða atkvæða-
greiðslu verði móralskt bindandi.
Ásmundur Einar sem dæmi
Í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar segir:
„Verður að telja fullvíst að slík þjóðaratkvæða-
greiðsla væri þá pólitískt bindandi fyrir flesta ef
ekki alla stjórnmálaflokka og kjörna fulltrúa.“
Illugi telur að komi til þess að kosið verði um
samning í málinu, verði væntanlega mjög mjótt á
munum. Og þó svo að samningurinn yrði sam-
þykktur af 51% þjóðarinnar, þá gæti þingið samt
sem áður hafnað honum. „Því þó svo þingmenn
segist móralskt bundnir af ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu, þá eru þeir það alls ekki.“
Illugi tekur sem dæmi Ásmund Einar Daðason,
þingmann Vinstri grænna. „Hann var spurður um
þetta, þ.e. hvort hann myndi hlíta ráðgefandi niður-
stöðu þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann svaraði því
neitandi og að hann myndi að sjálfsögðu fara eftir
sannfæringu sinni.“
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra fór að-
eins yfir orðalag í meirihlutaáliti utanríkismála-
nefndar á Alþingi í gær. Hún benti á að notað væri
orðalagið „leiðbeinandi“ sem væntanlega merkir að
niðurstaðan verði leiðbeining inn í þingið. Hún
sagði þó að yrðu stjórnmálaflokkarnir ásáttir um að
binda sig pólitískt, hlyti niðurstaðan að vera bind-
andi upp að því marki.
Hún vill hins vegar að þetta verði rætt frekar og
segir raunar að afar mikilvægt sé að taka umræðu
um þennan lið og hvernig hann eigi að fara fram.
Síðasta orðið ekki tryggt þjóðinni
Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks segir þingmenn ekki geta bundið sig
„móralskt“ Þeir séu bundnir sannfæringu sinni samkvæmt stjórnarskrá
Orðrétt
á Alþingi
’ Ef gengið styrkist um meira enþrjátíu prósent þá verða nýjubankarnir gjaldþrota. Þeir sem kynntuþetta fyrir okkur höfðu ekki áhyggjuraf þessu máli sökum þess að Seðla-
bankinn hefði svo sterk tök á að halda
genginu niðri.
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
’ Seðlabankinn hefur ekki áhyggj-ur af því að krónan muni styrkjastmjög mikið. Við búum hér við gjaldeyr-ishöft og það kom fram í máli seðla-bankamanna að við gætum átt von á
því að þau yrðu að vera hér í nokkur ár
í viðbót.
LILJA MÓSESDÓTTIR
’ En það alvarlegasta er nú líklegaþað að nú er þessi ríkisstjórn far-in að beita skoðanakúgun gagnvartfólki úti í bæ. Ríkisstofnanir mega ekkitjá sig öðruvísi en með þeim hætti
sem stjórnin getur sætt sig við.
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
’ Öll efnisatriðin úr samþykktFramsóknarflokksins, öll, eru innií nefndaráliti meirihlutans. Hvert eittog einasta.
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
’ Það er alveg sama hversu hart ertekið hér til orða. Skilyrði Fram-sóknarflokksins er ekki að finna íþessu nefndaráliti.
HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON
’ Þarna er orðið sjónarmið inni enekki skilyrði. Samkvæmt venju-legri málvenju þýða þessi tvö orð ekkiþað sama.
HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON
’ Það verður sótt um aðild hvorleiðin sem farin er.PÉTUR H. BLÖNDAL
’ Þjóðin á að hafa lokaorðið íþessu máli. Ég treysti ekki ríkis-stjórn þeirri sem nú situr fyrir því aðfara að vilja þjóðarinnar.
VIGDÍS HAUKSDÓTTIR
’Æi, ég man ekki fimmta skilyrðið.Sleppum því.TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
’ Úr því að háttvirtur þingmaður,Vigdís Hauksdóttir, telur að undir-ritaður sé svo skilningssljór að hannskilji ekki þann texta sem hann hefursjálfur samið þá er það bara byrði sem
háttvirtur þingmaður, Vigdís Hauks-
dóttir, verður að bera inn í framtíðina.
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
Morgunblaðið/Ómar