Morgunblaðið - 15.07.2009, Side 15
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Girnileg ný grillbók
eftir Thomas Möller,
höfund Eldaðu maður.
Frábærar uppskriftir
Rjúkandi grillráð
Gómsætir og fjölbreyttir grillréttir
Hálfdan Ármann Björnsson,góðvinur Vísnahornsins, sendi
nýverið frá sér sína aðra ljóðabók,
Rúmhendur. Sú fyrri nefndist
Fjóshendur og kom út árið 2003.
Vel er vandað til nýju bókarinnar,
sem inniheldur fjölda ljóða sem
flest hafa verið samin á síðustu 5
árum. Áhugasamir geta sent
tölvupóst á son hans á netfangið:
Benedikt@internet.is. Í Rúm-
hendum er meðal annars ljóðið Ber:
Vaxa á lyngi lítil ber,
ljúfan ávöxt þetta ber.
Margur þunga byrði ber,
af burðinum verður sinaber.
Sakir einn á annan ber,
óvininn með hnefum ber.
Fjallið hátt við himin ber.
Halur skít á túnið ber.
Ýmislegt fyrir augu ber,
sem á þó jafnan lítið ber,
einkanlega, ef til ber
að þér mæti kona ber.
Hagyrðingurinn Sigrún
Haraldsdóttir varð sér úti um
eintak og fékk það auðvitað áritað:
Fleygði sér frjálsleg í hnakkinn,
fimlega taumana strauk.
Mætti þar augunum makkinn,
molla af sjónunum rauk.
Hver var hinn frísklegi knapi?
og hver var hinn mjúkgengi jór?
Í svipinn þar allir sáu
hvar Sigrún á Pegasus fór.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Rúmhendur
og Hálfdan
KYNLÍF unglinga getur þegar vel
tekst til verið skemmtilegt.
Þetta er boðskapurinn í nýrri
herferð breskra heilbrigðisyfirvalda
sem miðar að því að breyta tóninum
í kynfræðslu fyrir ungmenni.
Í stað þurrar kynfræðslu og varn-
aðarorða um þær hættur sem felast
í kynmökum skal nú lögð áhersla á
að þau geti verið heilsusamleg og
umfram allt skemmtileg.
Gerð er grein fyrir þessari nýju
áherslu í bæklingnum „Pleasure“,
eða „Unaður“, og hefur útgáfan
valdið nokkrum deilum í Bretlandi.
Þunganir táningsstúlkna eru al-
gengar og tíðni kynsjúkdóma há og
vilja margir meina að svo opinská
skilaboð muni ýta undir lauslæti.
Aðrir halda því fram að stefnu-
breytingin sé af hinu góða þar sem
hún stuðli að fræðslu um hina
mannlegu hlið kynlífs þar sem
áherslan er fremur á mannleg sam-
skipti en þrönga, líffræðilega nálg-
un.
Fulltrúar breskra heilbrigðisyfir-
valda í Sheffield fóru fyrir útgáfunni
sem teljast verður djörf en þar er
meðal annars að finna kaflann „Ein
fullnæging á dag“, þar sem hin já-
kvæðu áhrif kynlífs og sjálfsfróunar
á líðan ungmenna eru útskýrð út frá
ýmsum hliðum.
Kynlíf getur
verið góð
skemmtun
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
GERA má ráð fyrir að um 4.500
manns ferðist um Hornstrandir á
þessu sumri. Fjöldinn í ár er svipaður
og verið hefur, en Jón Björnsson
landvörður segist þó skynja þá breyt-
ingu að gangandi fólki fjölgi. „Það eru
ferðamenn sem bera allt sitt á bakinu
og ganga úr einum stað í annan. Það
er duglegt fólk sem umgengst landið
af virðingu og skilur engin ummerki
eftir sig,“ segir Jón.
Um það bil helmingur Horn-
strandafara er fólk sem dvelst í sum-
arleyfi sínu í húsum í Fljótavík, Að-
alvík og Látravík, að sögn Jóns. Hann
segir sömuleiðis að margir fari í dags-
ferðir á Hesteyri í Jökulfjörðum og að
Hornbjargi.
Landið ber álagið
„Eins og staðan er í dag ber landið al-
veg það álag sem er á svæðinu. Aukist
það hins vegar að einhverju ráði þarf
að mæta því, til dæmis með því að
bæta aðstöðu á tjaldstæðum og fleira
slíkt,“ segir Jón. Hann segir fyrstu
ferðamennina sjást á Hornströndum
um 20. júní og vertíðin sé úti í kring-
um 15. ágúst. Á þessum ystu strönd-
um sé sumarið aðeins um sex vikur og
upp úr miðjum ágúst hafi gróður tek-
ið haustliti. Líðandi sumar er það
nítjánda sem Guðmundur Hallvarðs-
son er fararstjóri hópa Ferðafélags
Íslands á Hornströndum. „Baráttan
við björgin“ er yfirskrift ferðar sem
hann fór fyrir í síðustu viku, en þá var
gert út frá Hlöðuvík og Hornbjargs-
vita í lengri og skemmri dagsferðir.
Guðmundur fer tvær Hornstranda-
ferðir seinna á sumrinu. Í þeirri sem
næst er verður gengið frá Hlöðuvík,
þar sem Guðmundur á sumarhús, og
þaðan svo yfir í Fljótavík og á Hest-
eyri. Hin ferðin er sérstaklega ætluð
ungu fólki en á vettvangi Ferðafélags
Íslands er sérstök áhersla á að ná til
þess hóps.
Þar sem sumarið er sex vikur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hornstrandir Guðmundur Hallvarðsson hefur í 19 sumur verið fararstjóri á
Hornströndum fyrir Ferðafélag Íslands og því svæðinu vel kunnugur.