Morgunblaðið - 15.07.2009, Page 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Preben
Magnús Beck
✝ Preben MagnúsBeck fæddist í
Kaupmannahöfn 15.
júlí 1927. Hann lést á
Gentofte Hospital í
Hellerup 18. apríl
2008. Preben Magnús
var einkabarn foreldra
sinna, Margrétar Magnúsdóttur og Osk-
ars Beck. Margrét móðir hans var yngst
sex systkina, fædd á Innri-Ásláksstöðum
á Vatnsleysuströnd 13. apríl 1896. For-
eldrar hennar voru Magnús og Ingibjörg.
Systkini Margrétar voru Jónína f. 1889,
Þorbjörg Vilhelmína f. 6. júlí 1890, d. 29.
október sama ár, Vilborg f. 1892, Magn-
ús f. 1894 og Guðrún f. 1899. Margrét
hélt til Kaupmannahafnar árið 1924 til
náms í saumaskap, hattagerð o.fl., þar
kynntist hún Oskari Beck, þá iðnverka-
manni í Kaupmannahöfn. Þau giftust í
Kaupmannahöfn 1926.
Eiginkona Prebens Magnúsar var Liz-
zie Larsen, f. í Flensborg í Slésvík 26.
nóvember 1925, d. 20. október 2005.
Þau giftust 23. júlí 1953 og bjuggu allan
sinn hjúskap í Kaupmannahöfn.
Preben var offsetprentari í Kaup-
mannahöfn, velmetinn í sínu fagi. Á ár-
unum 1948-1949 bjó hann á Íslandi og
vann þá hjá prentsmiðjunni Viðey. Á Ís-
landi bjó hann á Hverfisgötu 59 hjá Val-
gerði Kristinsdóttur saumakonu á
saumastofu Þjóðleikshússins, sem hann
jafnan síðan kallaði Vallý mammí. Val-
gerður var föðursystir Ólafs móðurafa
okkar, ógift og barnlaus. Hún hafði num-
ið iðn sína í Kaupmannahöfn, altalandi á
dönsku og tók Preben sem sínum einka-
syni. Preben var félagi í Litografgrupp-
ens pensionist klub, sem stofnaður var
1972. Einnig var hann félagi í Cykel- og
snedkerklubben, en reiðhjólið var hans
fararskjóti allt til síðasta dags.
Útför Prebens fór fram frá Skovl-
undekirkje í Kaupmannahöfn 25. apríl
2008.
Elsku pabbi minn,
mig langar að rifja
upp nokkrar stundir
sem eru mér svo
minnisstæðar.
Þegar ég var lítill þá
vorum við oft að tefla, við áttum líka
ferðatafl sem var með segli á svo að
taflmennirnir héldust á réttum reit-
um. Þetta var á þeim tíma sem Fisc-
her og Spassky voru á Íslandi að
tefla.
Svo þegar þú varst með bílaleig-
una þá unnum við systkinin hjá þér
við að þvo og þrífa bílana þangað til
allar Wolkswagen-bjöllurnar stóðu
glansandi í röð á bílaplaninu.
Svo þegar við Hrafnkell frændi og
vinur hans unnum hjá þér við að
hengja upp og þurrka fisk til að búa
til harðfisk.
Ég hef verið á Súlunni í allmörg ár
og það sem var mér kærast var það
hvað vel var hugsað um hana. Þegar
veiðitímanum lauk þá var hún alltaf
máluð og stóð við höfnina og leit út
eins og skemmtiferðaskip. Meira að
segja ferðamenn komu og skoðuðu
hana og mynduðu í bak og fyrir.
Þinn einlægur sonur
Magnús.
Elsku pabbi minn.
Í dag, 15. júlí, hefðir þú orðið sjö-
tugur.
Byrja ég daginn á að flagga fyrir
þér. Það kom ekkert annað til greina
hjá mér, en að kaupa og koma fyrir
flaggstöng í Stafholtinu, í minningu
um þig.
Hugur minn fer fram og til baka
með margar góðar minningar sem
ég ætla að varðveita með Jóa, Auði
Eufemíu, Leonard og langaló-afa-
strákunum þínum, þeim Jóhanni
Sverri nafna þínum og Kristófer
Smára.
Ég og þú, pabbi minn, erum bæði
með tattú, það bætist enn eitt tattúið
við sem gert verður í minningu um
þig. Þú veist hver mun fá sér það
tattú.
Ég kem til þín upp í garð í dag, tek
Hamraborgina í kvöld og skála við
við þig.
Guð geymi þig, elsku pabbi minn.
Þín
Ásthildur.
Sverrir minn, þetta er nú meira
árið, mamma í janúar og nú þú. Ég
vil minnast þín í fáum orðum.
Ég kom inn í fjölskylduna þína 7.
júlí 1984 þegar ég og Ragnhildur
byrjuðum að vera saman. Alltaf þeg-
ar ég kom til Akureyrar var vel tekið
á móti mér, Ragnhildur ekki komin
með bílpróf en þér þótti nú ekki mál-
ið að lána drengnum bílinn, sko
sparibílinn brúna, Chevroletinn.
Það var þvílíkt gaman hjá okkur í
þá daga. Veiðiferðirnar sem við fór-
um í, kannski ekki langt, en samt.
Tókum oftar en ekki með okkur einn
kaldan og þú skáldið: Jæja, Steinar
Sigurðsson, settu nú hann sjálfur áð-
ur en þú verður hálfur. Þú varst allt-
af hrikalega orðheppinn eins og þeg-
ar þú komst til okkar í Hrísrima,
ekki í þínu besta formi og sagðir ekki
orð allt kvöldið sem var nú ólíkt þér.
Þá skrifaðir þú í gestabókina: Góður
kostur er að kunna að þegja, slæmur
ef hann er sá eini. Það sem við hlóg-
um þegar við lásum þetta.
Við áttum frábærar stundir þegar
við fórum í tvígang til Mallorka,
skemmtum okkur og þið Auður slóg-
uð í gegn með ykkar frábæra dansi
við lag með Sinatra.
Ferðin í sumarbústaðinn í Skorra-
dal sem LÍÚ átti, þar var sko grillað
í Hollum og sú grilltækni var notuð
eftir það.
Þegar við Ragnhildur giftum okk-
ur 7. júlí 1990 var gaman að standa í
Sverrir Leósson
✝ Sverrir Leóssonútgerðarmaður
fæddist 15. júlí 1939.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri 25.
júní sl. og var útför
hans gerð frá Ak-
ureyrarkirkju 7. júlí.
Meira: mbl.is/minningar
þeim undirbúningi
með þér. Það varð að
passa þetta og hitt því
að þetta átti að vera
upp á hundrað, þegar
því var lokið kom setn-
ingin: Skal du ha en øl
og svo hlógum við.
Svo gleymi ég nú
aldrei þegar við sátum
öll í kaffi í Víkurás,
mamma og pabbi nán-
ast að hitta ykkur
hjónin í fyrsta skipti
og þú öskraðir upp úr
eins manns hljóði:
„Good Morning Vietnam“ svo að það
frussaðist úr öllum bollum … þetta
var sko Sverrir Le.
Þegar við sigldum með Simrad
bátnum út fjörðinn, það þótti okkur
mjög gaman. Allir sölumennirnir
sem voru að reyna að selja þér tæki
og tól í Súluna með gylliboðum á
KEA, þá hingdir þú í mig og sagðir:
Steinar, við erum að fara út í kvöld.
Svo má ekki gleyma öllum Sjalla-
ferðunum þar sem var dansað við
undirleik Ingimars Eydals.
Það var alltaf gott að vinna fyrir
þig en samt áskorun því að verkin
áttu að vinnast hratt og vel.
Ég vil segja að lokum: dugnaður,
vel rekið fyrirtæki, útsjónarsemi,
snyrtimennska, ákveðni, þetta var
Sverrir Leósson.
Sverrir minn … þegar ég hugsa til
baka um allt sem við gerðum og
brölluðum get ég ekki annað en farið
að hlæja sem er merki um góðar
minningar. að við værum ekki alltaf
sammála og snörp orðaskipti ættu
sér stað, enda báðir skapmenn mikl-
ir, náðum við alltaf sáttum sem er
mér mikilvægt í dag.
Þinn tengdasonur
Steinar.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Mig langar til að kveðja þig með
nokkrum orðum, elsku afi minn og
langaló afi litlu strákanna minna.
Stundirnar sem við áttum saman
munu alltaf lifa í hjarta mér. Ég var
svo mikið hjá ykkur ömmu þegar ég
var lítil og naut þess að vera með
ykkur. Þið sögðuð svo oft að það
væri eins og ég væri yngsta dóttir
ykkar.
Ég ferðaðist oft með ykkur og
gleymi þeim stundum aldrei, það var
nú mjög fyndið, þegar ég hélt því
fram að afi minn ætti Holliday inn og
þegar það var sagt við mig að hann
ætti það nú ekki, þá fauk í mig og ég
var fljót að segja að hann ætti þá að
minnsta kosti eitt herbergi. Það var
svo margt skemmtilegt sem við
gerðum saman og ég gleymi því
aldrei. Ég þakka svo vel fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig, elsku afi
minn. Þú varst svo hrifinn af langaf-
astrákunum þínum, þú ljómaðir í
framan þegar þeir voru nálægt, þú
lofaðir þeim að gera allt sem þeim
datt í hug að gera og þeim fannst það
ekki leiðinlegt.
Megi Guð og englarnir vera með
þér, elsku afi og langaló.
Sofðu nú rótt í Guðs hlýju,
svífðu með englunum yfir fjöll og dal,
þar til við hittumst að nýju,
í himnanna sal.
(Höf. ók.)
Þín
Auður Eufemía og Elfar
Smári og langafastrákarnir
þínir, Jóhann Sverrir og
Kristófer Smári.
Elsku afi, það er skrýtið að þurfa
að kveðjast svona fljótt. Það sem ég
sakna þó mest er hvað þú hringdir
oft í mig þegar þig vantaði aðstoð.
En okkar vegna skulum við vona
að þú sért með afruglarann á hreinu
þarna uppi. Og endilega kíktu við ef
þig vantar hjálp. Ég er alltaf tilbúinn
til að aðstoða þig við allt.
Hafðu það gott, elsku afi.
Kær kveðja, en þó ekki hin hinsta.
Þinn
Sverrir Steinarsson.
Elsku pabbi.
Þeir segja mig látna, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós
sem að mun ykkur gleðja.
(G.Ingi)
Elsku pabbi minn.
Ég þakka þér allt sem þú gerðir
fyrir mig.
Minning þín lifir í hjarta mínu.
Guð geymi þig.
Þín dóttir,
Ebba.
Elsku afi. Þetta er allt svo breytt;
við eigum eftir að sakna þín svo mik-
ið og við eigum aldrei eftir að gleyma
þér. Það var svo gaman að koma nið-
ur á skrifstofuna þín og sjá hvað þú
varst að bralla og ég minnist allra
ferðanna til Danmerkur í afmælin
þín í Tívolíinu en nú verðum við á
pallinum á 70 ára afmælinu þínu. Þú
varst alltaf svo hjálpsamur og vildir
gera allt fyrir alla. Það var svo gott
að koma til þín. Við erum mjög sátt-
ar við tímann sem við áttum með
þér. Við elskum þig. Guð geymi þig,
elsku afi.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Þínar afastelpur,
Þórhildur Ólöf og
Matthildur Eufemia.
Selhellu 3 Hafnarfirði
Sími 517 4400 • www.englasteinar.is
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir,
mágur og afi,
REYNIR HELGASON,
Álfheimum 34,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 6. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 16. júlí kl. 13.00.
Björg Gísladóttir,
Berglind Reynisdóttir, Samson Magnússon,
Sveinbjörg Jónsdóttir,
Jón Helgason, Stefanía Björnsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR,
Maddý,
Hagaflöt 9,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
8. júlí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. júlí
kl. 14.00.
Davíð Guðlaugsson,
Guðmundur Rúnar Davíðsson, Margrét Sigurðardóttir,
Sigurður Grétar Davíðsson, Hólmfríður D. Guðmundsdóttir,
Harpa Hrönn Davíðsdóttir, Búi Gíslason
og ömmubörn.
✝
Systir okkar og mágkona,
ELLEN GUÐRÚN KARLSDÓTTIR,
Hátúni 10,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
8. júlí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn
16. júlí kl. 15.00.
Trausti Rúnar Hallsteinsson, Björk Ingvarsdóttir,
Guðmundur Ebenezer Hallsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir.
✝
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, tengdasonur og
mágur,
EMILIO DE ROSSI,
Via Prudenziana 21,
22100 Como,
Ítalíu,
lést á sjúkrahúsi á Ítalíu mánudaginn 13. júlí.
Bálför verður í St. Augustino kirkju í Como í dag,
miðvikudaginn 15. júlí.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga.
Elsa Waage,
Júlía Charlotte De Rossi,
Clara G. Waage,
Vera Waage,
Snorri Waage.