Morgunblaðið - 15.07.2009, Qupperneq 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Halldór
Guðmundsson
✝ Halldór Guð-mundsson fædd-
ist á Akureyri 25.
mars 1939. Hann
andaðist 23. júní
2009.
Útför Halldórs fór
fram frá Akureyr-
arkirkju 3. júlí síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Inga Valborg
Einarsdóttir
✝ Inga ValborgEinarsdóttir
fæddist í Mennta-
skólanum í Reykja-
vík 29. nóvember
1928. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans í
Reykjavík 1. júlí sl.
Inga var jarðsungin frá Langholts-
kirkju 10. júlí sl.
Meira: mbl.is/minningar
Sigurður M.
Jakobsson
✝ Sigurður M. Jak-obsson var fædd-
ur á Skarði á Snæ-
fjallaströnd 18. mars
1929. Hann lést
mánudaginn 6. júlí
2009 á bráða-
móttöku Landspít-
alans Hringbraut.
Foreldrar hans voru hjónin Símonía
Sigurðardóttir og Jakob Kolbeinsson.
Hann var yngstur systkina sinna sem
voru: Bjarnveig sem er látin, María, Sig-
urborg, Ása sem lést barnung, Guð-
björg sem er látin, Guðjóna sem er látin
og Kolbeinn.
Sigurður flutti með fjölskyldunni til
Ísafjarðar ungur að árum og þaðan til
Súðavíkur. Hann gekk þar í barnaskóla
og síðar í Reykjanesskóla og fór á mót-
oristanámskeið á Ísafirði. Hann var vél-
stjóri á bátum í nokkur ár, vann hjá
Kópavogskaupstað í tæp 40 ár sem bíl-
stjóri, vélamaður, verkstjóri og síðast
sem hafnarvörður.
Sigurður kvæntist Ragnhildi Að-
alsteinsdóttur 1960 og synir þeirra eru:
Agnar, Viðar og Helgi. Fyrir hjónaband
átti Sigurður soninn Ingvar Jóhann f.
1951. Barnabörnin eru sjö og einn lang-
afastrákur.
Útför Sigurðar fór fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Meira: mbl.is/minningar
Margrét Helga
Gísladóttir
✝ Margrét HelgaGísladóttir fædd-
ist á Selnesi á Breið-
dalsvík 3. apríl 1924.
Hún lést á líknardeild
LSH á Landakoti 28.
júní síðastliðinn.
Útför Margrétar fór
fram frá Hafnarkirkju á Hornafirði 3. júlí
síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Hrafn Franklin
Friðbjörnsson
✝ Hrafn FranklinFriðbjörnsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 8. febr-
úar 1965. Hann lést
á heimili sínu,
Bylgjubyggð 61 í
Ólafsfirði, 28. júní
2009.
Útför Hrafns hefur farið fram.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Jón Páll Péturssonfrá Hafnardal í
Nauteyrarhreppi við
Ísafjarðardjúp fæddist
1.9. 1921. Hann lést á
Landspítala við Hring-
braut að kvöldi 6. júlí
síðastliðins. Foreldrar
hans voru Sigríður
Guðmundsdóttir, f.
19.11. 1892, frá Tungu
í Mosvallahreppi, V.-
Ís., d. 21.5. 1937 og
Pétur Pálsson, f. 11.2.
1886, bóndi í Vatns-
firði í Reykjafjarð-
arhreppi, síðar Hafnardal, Naut-
eyrarhreppi, d. 4.5. 1966. Systkini
Jóns voru: a) Ragna, f. 14.8. 1904, d.
21.11. 1955, b) Páll, f. 2.7. 1910, d.
8.7. 1922, c) Björg Sigríður, f. 23.7.
1912, d. 4.3. 1948, d) Arndís, f. 24.1.
1914, d. 10.10. 2002, e) Gróa Bjarn-
fríður, f. 29.8. 1917, d. 13.3. 2000, f)
Gunnar Friðrik,
f. 17.8. 1920, d. 17.11. 2003, g)
Guðmundur Garðar, f. 16.8. 1923, d.
14.5. 1927, h) Þórður, f. 25.7. 1924, i)
Fríða, 11.4. 1926, j) Gerður, 19.3.
1927, k) Garðar, f. 25.6. 1928, l)
Hannes, f. 10.12. 1931, m) Sigríður,
f. 25.1. 1939.
Kona Jóns var Ólafía Gísladóttir
frá Neskaupstað, f. 23.11. 1921, d.
8.1. 1975. Börn þeirra eru: 1) Sigríð-
ur Jónsdóttir, f. 16.5. 1952, maki
Bjarni A. Agnarsson, f. 5.8. 1952,
börn a) Agnar, maki Brynja Ár-
mannsdóttir, börn Ármann Bjarni
og Bríet Aðalbjörg. b) Ólöf, sam-
býlismaður Helgi Már Þorsteinsson.
c) Kjartan Jón. 2) Þórunn Ísfeld
Jónsdóttir, f. 12.9. 1958, maki Ragn-
ar H. Kristjánsson, f. 15.9. 1959,
börn a) Kristján Atli, maki Lilja Sig-
urðardóttir, barn:
Guðrún Elva. b) Hauk-
ur Ísfeld, unnusta
Hrönn Arnardóttir. c)
Stefán Páll.
Börn Ólafíu og fóst-
urbörn Jóns eru: 1)
Jón Viðar Arnórsson,
f. 2.5. 1945, maki Sig-
rún Briem, f. 8.4.
1945, börn a) Páll Við-
ar, maki Þorbjörg Ró-
bertsdóttir, börn Guð-
björn Viðar, Sigrún
Berglind og Róbert
Helgi. b) Ólafur Arn-
ar, maki Hildur Ingvarsdóttir, börn
Þórdís og Sigrún. c) Arnór. 2) Stein-
unn Karólína Arnórsdóttir, f. 26.11.
1946, var gift Svani Auðunssyni. Þau
skildu. Börn a) Karl Ísfeld. b) Eyrún
Björk, maki Gunnar Gylfason, börn
Glódís Björt, Marteinn Úlfur, Hug-
rún Erla og Steinunn María. c)
Ólafía Erla, maki Ólafur Jónsson,
börn Svanur Áskell og Annika.
Jón Páll ólst upp í foreldrahúsum í
Hafnardal en missti móður sína á
unglingsaldri. Hann stundaði nám
við Héraðsskólann í Reykjanesi en
fór snemma að vinna fyrir sér við
hin ýmsu verkamannastörf. Hann
fluttist til Ísafjarðar 1946 og bjó þar
lengstum til ársins 1976 er hann fór
alfarinn til Reykjavíkur. Á Ísafirði
starfaði hann m.a. sem vörubílstjóri
og afgreiðslumaður hjá ÁTVR. Eftir
komuna til Reykjavíkur starfaði
hann áfram hjá ÁTVR þar til hann
hætti störfum fyrir aldurs sakir árið
1991. Jón Páll bjó síðustu tvö æviár-
in á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Jón Páll verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, miðvikudag-
inn 15. júlí, og hefst athöfnin kl. 13.
Ég kynntist tengdaföður mínum,
Jóni Páli Péturssyni, árið 1973.
Hann og kona hans, Ólafía Gísla-
dóttir, bjuggu þá á Ísafirði, en Sig-
ríður, dóttir þeirra, var þá við nám í
Reykjavík, enda á þeim tíma enginn
menntaskóli á Ísafirði. Eftir að ég
kynntist Sigríði og við hófum sam-
búð hitti ég því fyrstu árin tengda-
foreldra mína mjög stopult.
Tengdamóðir mín lést í ársbyrjun
1975 langt um aldur fram og tók þá
við erfiður tími hjá Jóni Páli. Hann
ákvað að flytja til Reykjavíkur, þar
sem hann keypti íbúð við Njálsgöt-
una, og bjó Þórunn, yngsta systirin,
hjá honum fyrstu árin, en eldri syst-
kinin, Jón Viðar og Steinunn, voru
þá þegar flutt til Reykjavíkur. Jón
Páll var á þessum árum tíður gestur
hjá okkur í Tjarnargötunni, kom yf-
irleitt fótgangandi frá Njálsgötunni,
enda hafði hann yndi af því að
ganga um miðbæinn, einkum
Laugaveginn, og fylgjast með
mannlífinu.
Við fjölskyldan fórum til fimm ára
dvalar í Boston 1983 og minnist ég
ánægjulegrar heimsóknar Jóns Páls
til okkar þar sumarið 1985, og var
þá gaman fyrir börnin að fá að hitta
elsku afa sinn. Við fórum vítt og
breitt um Massachusetts og allt var
þetta talsverð nýlunda fyrir hann,
enda hafði hann þá aldrei áður farið
í skemmtiferð til útlanda.
Í Reykjavík fór Jón Páll að stíga
gömlu dansana og þar kynntist
hann nýjum vinum, þar á meðal
Guðmundu Gunnarsdóttur, en sam-
an fóru þau m.a. í nokkrar hópferðir
til útlanda. Mögulega hefur Boston-
ferðin kveikt í honum ferðaþrá, en
óneitanlega kom það okkur á óvart
er hann tilkynnti okkur að hann
væri á leið til Kúbu, enda Jón Páll
aldrei verið þekktur fyrir aðdáun
sína á stjórnskipulaginu þar.
Árið 1999 var Jón Páll svo óhepp-
inn að lenda í bílslysi og urðu þá
mikil umskipti í lífi hans. Hann
þurfti í kjölfarið hvað eftir annað að
liggja á sjúkrahúsi, oft mikið veikur,
en sýndi þá hvaða styrkur í honum
bjó. Eftir slysið átti hann erfitt með
gang, flutti fyrst í þjónustuíbúð við
Norðurbrún og síðan á Skjól. Hann
naut þá umhyggju barna sinna, en
jafnframt skal starfsfólki á báðum
þessum stöðum þakkað fyrir alla að-
stoðina sem þau veittu honum.
Jón Páll var ekki maður sviðs-
ljóssins, en gat verið fastur fyrir ef
því var að skipta. Hann var gegn-
heill maður og hlýr og setti mark
sitt á samfélagið með störfum sínum
og ljúfri framkomu. Blessuð sé
minning Jóns Páls Péturssonar.
Bjarni A. Agnarsson.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem.)
Þegar við kveðjum Jón Pál bróð-
ur okkar hér í dag koma upp í hug-
ann margar góðar minningar. Við
minnumst æskuáranna okkar í
Hafnardal við Ísafjarðardjúp. Þær
minningar eru bjartar og skemmti-
legar, stór systkinahópur sem ólst
þar upp við leik og störf eins og
tíðkaðist í sveitum í þá daga. Við
höfum alltaf verið í góðu sambandi
systkinin og var það ekki síst hon-
um Jóni Páli að þakka. Hann var
duglegur að hringja í okkur og vita
hvernig öllum liði. Jón Páll var með
afbrigðum ættrækinn, hann vildi
frétta af sínu fólki.
Jón Páll kynntist konunni sinni
henni Ollu, yndislegri og góðri konu.
Heimili þeirra var lengst af við
Seljalandsveg á Ísafirði. Það var
gaman og gott að heimsækja þau
enda bæði skemmtileg og gestrisin.
Jón Páll vann lengi í Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins á Ísafirði.
Eftir andlát Ollu konu sinnar flutt-
ist hann suður til Reykjavíkur þar
sem hann undi hag sínum vel, enda
voru börnin farin að heiman og
bjuggu í návígi við hann. Jón Páll
átti við heilsuleysi að stríða hin síð-
ustu ár. Það var einstakt hversu vel
börn hans og Ollu hugsuðu um hann
og hlúðu að honum. Jón Páll var
stoltur af fjölskyldu sinni og fylgdist
hann vel með afkomendum sínum.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Jóni Páli allt það sem hann var okk-
ur, við eigum eftir að sakna allra
símtalanna frá þér. Elsku Sigga,
Þórunn, Nonni og Steinunn, við
sendum ykkur og fjölskyldum ykkar
samúðarkveðjur.
Hvíl í frið, kæri bróðir.
F.h. systkinanna frá Hafnardal,
Sigríður Pétursdóttir.
Jón Páll Pétursson
✝
Okkar elskulega
MARGRÉT GUÐBRANDSDÓTTIR,
Ljósheimum,
áður Birkivöllum 3,
Selfossi,
er lést á Ljósheimum fimmtudaginn 9. júlí, verður
jarðsungin frá Selfosskirkju fimmtudaginn 16. júlí
kl. 16.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kjartan Þ. Ólafsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞURÍÐUR HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ytri-Tjörnum,
Eyjafjarðarsveit,
sem lést á Kristnesspítala fimmtudaginn 2. júlí,
verður jarðsungin frá Munkaþverárkirkju fimmtu-
daginn 16. júlí kl. 14.00.
Kristján Baldursson, Þórey Eyþórsdóttir,
Benjamín Baldursson, Hulda M. Jónsdóttir,
Guðrún Baldursdóttir, Ingvar Þóroddsson,
Snorri Baldursson,
Fanney Baldursdóttir, Björn Rögnvaldsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HREIÐAR G. VIBORG,
áður Barmahlíð 34,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju mánudaginn
20. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóna Helgadóttir,
Helgi Þór Viborg, Hildur Sveinsdóttir,
Guðmundur Viborg,
Sigríður María Hreiðarsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
STELLA STEFÁNSDÓTTIR,
Engihjalla 19,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
16. júlí kl. 15.00.
Jóna Karlsdóttir,
Stefanía Karlsdóttir, Jóhannes G. Pétursson,
Stefán Þ. Karlsson, Þóra Vilhjálmsdóttir,
Guðbjörg Edda Karlsdóttir, Gunnar Sigurðsson,
Sólveg Gyða Guðmundsdóttir, Gunnar Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR
frá Grund ll,
Borgarfirði eystri,
sem lést fimmtudaginn 9. júlí, verður jarðsungin frá Bakkagerðiskirkju
laugardaginn 18. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjálparstarf kirkjunnar,
innanlandsstarf.
Sveinlaugur Hannesson, Unnur Guðrún Davíðsdóttir,
Þórdís Hannesdóttir, Grétar Breiðfjörð Þorsteinsson,
Sigurður Hannesson,
Árni Jón Hannesson,
Oddur Hannesson, Katrín Sigurlín Markúsdóttir,
Gunnar Hannesson, Ingibjörg Kristín Jóhannesdóttir,
Eymundur Garðar Hannesson, Iðunn Kröyer,
barnabörn og barnabarnabörn.