Morgunblaðið - 15.07.2009, Page 28
28 Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
HJÓNIN David Schlaffke org-
anisti frá Þýskalandi og Mar-
iya Semotyuk flautuleikari frá
Úkraínu leika á tónleikum í
Fella- og Hólakirkju annað
kvöld kl. 20. Bæði hafa þau
unnið til verðlauna fyrir tón-
listarflutning, haldið fjölda
tónleika víða um lönd og hlotið
mikið hrós fyrir vandaðan leik.
Á efnisskránni verða mest-
megnis rómantísk verk eftir
þýsk tónskáld m.a. Sigfrid Karg-Elert, August
Gottfried Ritter og Josef Gabriel Rheinberger en
einnig verða flutt verk eftir Jóhann Sebastian
Bach. Þetta eru þriðju tónleikarnir í tónleikaröð-
inni Sumartónar í Elliðaárdal.
Tónlist
Þýsk rómantík í
Elliðaárdalnum
David Schlaffke
og Mariya Semotyuk
ORGELANDAKT verður
haldin kl. 12 á hádegi í dag í
Kristskirkju í Landakoti í
Reykjavík. Þar leikur ungur og
efnilegur organisti, Eyþór
Franzson Wechner, í 30 mín-
útur á hið ágæta Frobeniusar-
orgel Kristskirkju en á undan
og eftir mun prestur lesa bæn
og fara með blessun. Áætlað er
að þessar stundir verði á há-
degi hvern miðvikudag í sumar
til ágústloka, og koma ýmsir organistar þar fram.
Í frétt frá kirkjunni segir að í andaktinni sé til-
valið að draga sig um stund úr erli dagsins og
hlýða á andlegt orð og tónlist í fögrum hljómburði
Kristskirkju. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Tónlist
Orgelandakt
í Kristskirkju
Kristskirkja
LOVÍSA Elísabet Sigrún-
ardóttir slær í eina tónleika
með stuttum fyrirvara á Café
Rósenberg í kvöld. Lovísa hef-
ur allt þetta ár verið á ferð um
heiminn við spilamennsku og
er nýkomin af Glastonbury-
hátíðinni, þar sem hún spilaði
við góðar undirtektir, að því er
fram kemur í frétt um tónleika
hennar. Síðustu tvo mánuði
hefur Lovísa komið fram erlendis sem þriðjungur
tríós með Pétri Hallgrímssyni gítarleikara og Jóni
Geir Jóhannssyni trommuleikara. Þrátt fyrir stutt
stopp á Íslandi langaði þau að halda eina litla,
sæta tríótónleika í Reykjavík áður en þau halda
aftur út í heim.
Tónlist
Lay Low á Café
Rósenberg í kvöld
Lay Low
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is
ÓÐURINN til endurskoðunarinnar er þema útgáfu 3.
tölublaðs Rafskinnu, sem kemur út í dag, en Raf-
skinna er fyrsta og eina dvd-tímaritið sem gefið er út
á Íslandi. Rafskinna er helguð sjónrænum listum í
víðasta skilningi, og þar er að finna heimildamyndir,
stuttmyndir, myndbandsverk, teiknimyndir, viðtöl,
tónlistarmyndbönd, lifandi tónlistarflutning og fleira,
bæði eftir íslenska og erlenda listamenn. Rafskinna
framleiðir mikið efni sjálf en þar er líka að finna
vandfundin og einstök verk eftir aðra. Sigurður
Finnsson er einn fjögurra ritstjóra tímaritsins.
„Fyrstu tvö eintökin voru með mjög áþreifanlegt
þema; fisk og hús, og okkur langaði til að vera á ab-
strakt nótum í þetta sinn. Við vorum byrjuð að und-
irbúa þetta tölublað þegar hrunið varð, og þá small
þetta þema, endurskoðun og endurvinnsla, enn betur
inn í umræðuna í þjóðfélaginu. Okkur langaði líka til
að fá fólk til að endurvinna og endurgera eldri verk
og hugsa eldri hugmyndir upp á nýtt. Það var út-
gangspunktur, án þess að við hengdum okkur beinlín-
is í hann.“
Myndlist, tónlistir, kvikmyndir, hönnun
Listamaður 3. tölublaðs Rafskinnu er Hrafnhildur
Arnardóttir, sem kallar sig Shoplifter, og tvö verk
eftir hana eru á diskinum, auk þess sem fjölprent eft-
ir hana fylgir með. Hrafnhildur endurskoðar gamla
handverkshefð í vinnslu sinni með mannshár. Kokkur
Rafskinnu, rapparinn Dälek, endurskoðar sömuleiðis
gamla íslenska hefð, pönnukökubaksturinn.
Kristján Loðmfjörð endurskoðar og endurklippir
Börn náttúrunnar. „Þetta er hans eigin útgáfa af
myndinni, tíu mínútna löng ný mynd.“ Sigurður segir
fleira myndefni á diskinum og nefnir dæmi. „Við er-
um með mynd eftir franska experimental kvikmynda-
gerðarkonu, Marie Losier, og íslenska heimildamynd
um fjósalykt.“ Þá er líka á diskinum myndbandsverk
eftir Finnboga Pétursson, Óður, frá árinu 1992, sem
Curver Thoroddsen og Darri Lorenzen endurskoða
hvor á sinn hátt. Í tilefni af útgáfunni verður útgáfu-
gleði á Klapparstígsreitnum milli Laugavegs og
Hverfisgötu kl. 17 í dag. Retro Stefson leikur og DJ
Árni Sveins snúðar upp á gamla slagara og spilar
eingöngu ábreiður og tvíbökur.
Hugsa hugmyndir upp á nýtt
Þriðja tölublað Rafskinnu kemur út í dag, sneisafullt af nýrri og endurskoðaðri list, myndlist,
gjörningum, viðtölum, heimildamyndum, teiknimyndum, tónlist og pönnukökum
Fjósalykt Úr heimildamynd Þóru Fjeldsted um fjósalykt og átöppun ilmsins á flöskur.
SJÓNARRÖND er heiti sýningar Guðmundar
Ármanns Sigurjónssonar sem opnuð verður í
Gallerí Turpentine á Skólavörðustíg 14 kl. 18 á
morgun. Sýningin stendur til 26. júlí.
Viðfangsefni sitt sækir Guðmundur Ármann
í náttúruna, síbreytilega birtu sem ljær land-
inu, himninum, vatninu, fjöllunum og gróðr-
inum litbrigðin sem við nemum.
„Þetta eru vatnslitamyndir og olíumálverk í
þeim dúr sem ég hef verið að vinna síðasta ára-
tug. Þetta eru abstraktverk sem byggjast á
náttúruupplifun og náttúrustemningu. Ég hef
verið að fást við lárétta litafleti sem ég hef
kallað lárétta birtu eða sjónarrönd.“
Guðmundur kveðst oft vinna myndir sínar
út frá teikningum og vatnslitamyndum sem
hann gerir útivið, – til dæmis við veiðar.
„Svo vinn ég myndirnar þannig að mótívið
hverfur að mestu og eftir standa litfletirnir.
Ég kalla þetta lagskipt, og vinn meðvitað með
ákveðna undirliti sem mynda litbotn undir það
sem ég legg hálfgegnsætt yfir. Þannig fæ ég
fram einhvers konar birtustemningu, hvort
sem undirliturinn er dökkbrúnn, svartur,
bleikur, ljósblár eða gulur. Undirliturinn ljær
myndinni þá birtu sem mér finnst ég sjá í nátt-
úrunni, hvort sem það er vorbirta eða haust-
birta. Ég er voðalega jarðbundinn,“ segir lista-
maðurinn.
Guðmundur Ármann er kennari við list-
námsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri.
Fyrsta einkasýning hans var á Mokka árið
1962, og síðan þá hefur hann sýnt víða, einn og
með öðrum. Sýningin er opin frá þriðjudegi til
föstudags kl. 12-18 og laugardaga frá 13-17.
begga@mbl.is
Undirtónar birtunnar
Guðmundur Ármann Sigurjónsson sýnir vatns-
litamyndir og olíumálverk í Gallerí Turpentine
Jarðbundinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson á vinnustofu sinni á Akureyri.
ÞAÐ var nú í lok
júní sem hljóm-
sveitarstjórinn
kunni Lorin Maa-
zel lagði frá sér
sprotann í síðasta
sinn sem aðal-
hljómsveit-
arstjóri og list-
rænn stjórnandi
Fílharm-
óníusveitarinnar í
New York, enda orðinn 79 ára.
En það var aldrei ætlun meist-
arans að hætta í tónlistinni og setj-
ast í helgan stein því nú í byrjun júlí
blés hann í fyrsta sinn í hátíðarlúðra
á heimili sínu á búgarði í Virginíuríki
í Bandaríkjunum. Þar hyggst hann
halda úti vinnubúðum fyrir unga
tónlistarmenn og sviðslistafólk og
halda árlega listahátíð, sem dregur
nafn sitt af búgarðinum, Castleton
Festival.
Var búinn að byggja leikhús
Reyndar var Maazel búinn að
undirbúa það sem koma skal, því ár-
ið 1997 vígði hann lítið leikhús á
landareign sinni, og tekur það 130
manns í sæti og skartar gryfju fyrir
20 manna hljómsveit. Hann hefur
boðið þekktum vinum sínum að
halda þar tónleika, þar á meðal
Mstislav Rostropovits, José Carre-
ras og James Galway, auk þess sem
hann hefur safnað liði til að setja þar
upp kammeróperur eftir Benjamin
Britten.
Fyrir fyrstu hátíðina, sem nú
stendur yfir, lét hann reisa risastórt
tjald sem tekur 250 manns í sæti, og
þar er allt sem til þarf til tónleika-
halds. Um 200 ungir listamenn taka
þátt í hátíðinni í ár.
Árið 1997 stofnaði Lorin Maazel
sérstaka stofnun ásamt konu sinni,
Châteauville Foundation, og var
henni ætlað að styðja við tónlistar-
menntun hvers konar. Maazel
breytti þeim áherslum, og í staðinn
býður hann ungum listamönnum til
dvalar tvær annir á ári á búgarði sín-
um, þar sem þeir njóta leiðsagnar
færustu listamanna og mentora.
Lorin Maazel
heldur hátíð
Sinnir ungdómnum
kominn á eftirlaun
Lorin Maazel
Britten Lúkretía svívirt er ein af
óperunum á hátíðinni.
Sigurður segir það ennþá basl að halda úti
listtímariti af þessu tagi. „Við vonuðumst
til að geta komið út tveimur eintökum á
ári, en þau hafa verið eitt á ári til þessa.
Samt mjakast þetta og nú erum við að fá
dreifingu á Rafskinnu á nokkrum stöðum í
Ameríku og á Norðurlöndunum. Þar er
áhugi að kvikna. Fólk hér heima hefur
kannski ekki séð svona tímarit áður og það
tekur tíma þar til það áttar sig á því hvað
þetta er. En kannski verður það alltaf
sama sagan á litla Íslandi að svona verk-
efni verða basl.
Það er í sjálfu sér ekki dýrt að gera disk-
inn, en við gerum okkur erfiðara fyrir með
því að leggja mikla áherslu á efnisþáttinn.
Þetta er líka myndarleg pakkning og ann-
að og meira en bara diskurinn. Með honum
eru fylgihlutir; prentefni, fjölfeldi og
fleira. En þannig viljum við hafa það.“
Meðal fylgihluta Rafskinnu er geisla-
diskurinn Rafsprengi sem gefinn er út í
samstarfi við Rás 1 og inniheldur fjórar
endurgerðir ungra tónskálda á verkum
fjögurra af virtustu tónskáldum þjóð-
arinnar.
Annað og meira en bara diskur
Fólk fríkaði út þegar
það sá mig leika á
það... 32
»