Morgunblaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 29
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Sigga og Heiðurspiltar Sigríður Thorlacius með þeim Sigurði Guðmundssyni, Magnús Trygvasyni Eliassen og
Guðmundi Óskari Guðmundssyni í Hljóðrita í gær þar sem verið var að snurfusa nýju plötuna, Á Ljúflingshól.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞAÐ er leyndarmál af hverju Sig-
ríður Thorlacius, kölluð Sigga, og
hljómsveitin Heiðurspiltar ákváðu
að taka upp plötu með völdum lög-
um eftir Jón Múla og Jónas Árna-
syni. Í bili, að minnsta kosti, þar til
platan kemur út í ágúst en þessa
dagana er verið að leggja lokahönd
á hana, hljóðblanda og hanna um-
slag meðal annars. Heiðurspiltar
eru bræðurnir Guðmundur Óskar
(úr Hjaltalín) og Sigurður (úr
Hjálmum) Guðmundssynir og Daní-
el Friðrik Böðvarsson og Magnús
Trygvason Eliassen úr Moshes High
Tower.
Falleg lög, hnyttnir textar
„Þetta eru lög úr fjórum leik-
ritum eftir Jónas Árnason,“ segir
Sigga. „Þetta eru náttúrlega ótrú-
lega falleg lög, finnst mér, og text-
arnir sérlega skemmtilegir og
hnyttnir margir hverjir. Okkur
fannst líka áskorun að taka þessi
lög, reyna að taka leikhúsið úr þeim
og láta lögin standa eftir sem lög.
Þess vegna völdum við þau líka út
frá textum, sum lögin eru bara svo
ótrúlega mikið leikhús og mikið
leikrit einhvern veginn að við létum
þau eftir liggja. Völdum bara þau
lög sem okkur fannst fallegust og
mest spennandi. Heiðarleg, al-
mennileg lög,“ segir Sigga um laga-
val hennar og Heiðurspilta.
„Við gerðum það svolítið í sam-
einingu, ég og strákarnir og leynd-
ur aðili … eða aðallega bara við,“
segir hún leyndardómsfull.
En hvað heitir platan?
„Mmmm … sko, það er eitthvað
svona debatt en segjum bara, og þá
erum við búin að ákveða það, að hún
heiti Á Ljúflingshól. Þá er það bara
frá,“ segir Sigga röggsöm en titill-
inn vísar í texta við lagið „Ljúflings-
hóll“. Platan er sæt og lögin tekin
sanngjörnum tökum, engir stælar,
að sögn Siggu. Heiðarleikinn í fyr-
irrúmi.
Plötuútgáfan Borgin mun sjá um
kynningu og dreifingu á plötunni en
einnig eru væntanlegar síðsumars
nýjar plötur á hennar vegum frá
Baggalúti og Agli Sæbjörnssyni,
tónleikaplata með Megasi og Senu-
þjófunum og Hjálmum. Í kvöld
verða haldnir fyrstu tónleikar Borg-
arinnar og koma þar annars vegar
fram Sigga og Heiðurspiltar og hins
vegar hiphop-súpergrúppan Fal-
legir menn. Tónleikarnir verða
haldnir á nýjum stað, Batteríinu,
þar sem Organ var áður til húsa og
hefjast kl. 21.30. Þúsundkall inn.
Hjaltalín í stuði
Ekki má sleppa Siggu úr síman-
um án þess að ræða gæðasveitina
Hjaltalín sem hún ljær rödd sína.
Sveitin hefur verið við upptökur í
Hljóðrita og áætlað að breiðskífa
komi út með haustinu.
„Ég held að þar sé ýmislegt nýtt
en náttúrlega haldið í gamlan fíl-
ing,“ segir Sigga um þær smíðar.
„Kannski meira stuð, ég veit það
ekki,“ bætir hún við.
„Ótrúlega falleg lög“
Sigríður Thorlacius hefur nýlokið tökum á plötu með völdum lögum eftir
Jón Múla og Jónas Árnasyni Heldur tónleika í kvöld með Heiðurspiltum
Menning 29FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Útón og Iceland Express munu
halda áfram samstarfi um íslensku
tónleikaröðina Norðrið sem keyrð
hefur verið í Þýskalandi. Sjö tón-
leikaferðir verða skipulagðar vet-
urinn 2009 til 2010 og ríður Kira
Kira á vaðið í september og síðan
Gus Gus í október. Verkefnið verð-
ur rekið með breyttu sniði, þar sem
leitað hefur verið til hljómsveita og
tónlistarmanna sem eru þegar með
bókunarskrifstofur í Þýskalandi og
munu þær bera ábyrgð á fram-
kvæmd tónleikaferðanna. Iceland
Express gefur átta til tólf flugmiða
í hverjum mánuði vegna þessa og
allt að 350 kg í yfirvigt. Að þessu
sinni verður auglýst eftir upphit-
unarhljómsveitum til að fara í tón-
leikaferðirnar með viðkomandi
listamönnum.
Norðrið heldur áfram
af krafti í Þýskalandi
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ er fátt sem stöðvar útgáfuna Kima um
þessar mundir. Í kvöld verður hent í alls-
herjar sumargleði, á líkan hátt og gert var í
fyrra, en hljómsveitum, vinum og vandamönn-
um sem tengjast þessari spútnikútgáfu er
hrúgað upp í rútu og svo er spólað af stað um
sveitir landsins. Rokkvæn stopp verða svo í
Keflavík, Höfn, Seyðisfirði, Vopnafirði, Húsa-
vík, Grundarfirði, Ísafirði, Hvammstanga og
Reykjavík. Mun meira er undir nú en í fyrra
og farið verður í tveimur hollum. Í fyrri
leggnum leika Sudden Weather Change,
Reykjavík! og Swords of Chaos en í þeim síð-
ari verða FM Belfast, Sudden Weather
Change, Skakkamanage og Miri. Auk þess
verða tilfallandi upphitunarsveitir í ein-
hverjum plássum.
Baldvin Esra Einarsson, framkvæmdastjóri
Kima og sumargleðistjóri, er að sjálfsögðu
vígreifur vegna væntanlegs ferðalags og
bendir blaðamanni á að fylgjast vel með á
heimasvæði sumargleðinnar (www.kim-
irecords.net/sumargledi) þar sem er að finna
nánari upplýsingar um hljómsveitir og dag-
skrá, fría safnskífu með lögum eftir sum-
argleðisveitir og síðast en ekki síst blogg um
bráðkomandi ævintýramennsku. Styrktarað-
ilar sumargleðinnar eru tónlistarsjóðurinn
Kraumur, Eymundsson, Rás 2 og Grapevine.
Sumargleði Kima brestur á í dag
Viðtal þeirra Sölva Tryggvason-
ar og Þorbjörns Þórðarsonar við
Davíð Oddsson í þættinum Málefn-
inu á Skjá einum í fyrrakvöld vakti
mikla athygli. Svo mikið var áhorf-
ið á þáttinn á vefsíðu Skjás eins,
skjarinn.is, að vefurinn fór um tíma
á hliðina og þurftu forsvarsmenn
hans að grípa til neyðarráðstafana
og gera tímabundnar tæknilegar
breytingar til þess að anna álaginu.
Áhorf á þáttinn með gamla laginu
var einnig nokkuð gott, en um 15%
þjóðarinnar fylgdust með honum.
Athygli vakti annars að Kastljós
Sjónvarpsins var kallað úr sum-
arfríi þetta sama kvöld, og var sent
út á sama tíma og Málefnið. Að
sögn Sigríðar Margrétar Odds-
dóttur, sjónvarpsstjóra Skjás eins,
hafði hún samband við Þórhall
Gunnarsson hjá Sjónvarpinu því
henni þótti skrýtið að Kastljósið
væri kallað úr fríi einmitt þennan
dag, sérstaklega í ljósi þess að Mál-
efnið hafði mikið verið auglýst í
heila viku á undan. Þórhallur mun
þó hafa þverneitað því að Kastljós-
inu hafi verið stillt upp til höfuðs
Málefninu þetta kvöld.
Davíð Oddsson setti
Skjáinn á hliðina
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞÓ svo kreppan geri mörgum lífið
leitt þá líta aðrir fram á veginn
fullir bjartsýni. Það á a.m.k. við um
fjóra háskólanema sem ákváðu í at-
vinnuleysinu að hrinda af stað vef-
síðunni Netvarpið sem hefur að
geyma myndbandsviðtöl þeirra við
fólk sem sinnir áhugaverðum störf-
um, að þeirra mati. Allt er þetta
unnið launalaust að sögn eins fjór-
menninganna, Marinós Páls Valdi-
marssonar verkfræðinema.
„Við erum að skapa okkur eigin
atvinnu, í rauninni, síðan sjáum við
hvort tekjur koma seinna,“ segir
Marinó. Eina hugsanlega tekjulind-
in sé að selja auglýsingar á vefinn.
„Það var eitthvað fátt um at-
vinnutilboð og okkur fannst spenn-
andi að gera eitthvað sjálfir og
þetta varð úr. Við vorum búnir að
„brainstorma“ svolítið,“ segir Mar-
inó en samstarfsmenn hans þrír
eru þeir Björn Brynjúlfur Björns-
son og Hrólfur Andri Tómasson
verkfræðinemar og bókmennta-
fræðineminn Ingólfur Halldórsson.
Stefnt að sjálfbærni
Nú virðast margir viðmælendur
ykkar vinna í sprotafyrirtækjum?
„Það er svolítið verið að kynna
þau en síðan eru líka önnur viðtöl,
t.d. við Birnu (Einarsdóttur)
bankastjóra Íslandsbanka. Áhuga-
vert fólk er útgangspunkturinn hjá
okkur.“
Þið eruð greinilega að reyna að
peppa fólk upp í kreppunni?
„Já, alla vega ekki að leggja
áherslu á það neikvæða, heldur það
jákvæða,“ segir Marinó.
Er síðan komin til að vera?
„Já, við ætlum að halda þessu
áfram og reyna að gera þetta sjálf-
bærara, þannig að við verðum ekki
þeir einu sem búa til efni og svona,
þannig að þetta fljóti aðeins fram í
veturinn og vonandi lengur.“
Ætlið þið þá að auglýsa eftir
efni, myndböndum?
„Já, fólk getur komið til okkar
og sótt um að búa til efni á vefinn,“
segir Marinó en þeir fjórmenning-
arnir muni, eftir sem áður, sjá um
síðuna og taka upp myndbönd með
námi.
Fjórir háskólanemar gera út vefsíðu
með viðtölum við áhugavert fólk
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Þrír af fjórum Hrólfur, Marinó og Ingólfur. Á myndina vantar Björn.
Jákvæðir, ungir menn
Lögin á plötunni Á Ljúflingshól:
Í hjarta þér
Ljúflingshóll
Hvað er að?
Ástardúett
Kavatína Kristínar
Sjómenn íslenskir
Djákninn
Án þín
Það sem ekki má
Sérlegur sendiherra
Fröken Reykjavík
Lagalistinn