Morgunblaðið - 16.08.2009, Page 12

Morgunblaðið - 16.08.2009, Page 12
12 Efnahagsmál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2009 Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is Frederic S. Mishkin sagðilíkurnar á „algeru fjár-hagslegu hruni“ á Ís-landi „sáralitlar“ ískýrslu sem hann skrif- aði ásamt Tryggva Þór Herbertssyni fyrir Viðskiptaráð árið 2006. Blaða- maður náði tali af honum á Leifsstöð eftir Íslandsheimsókn og þar svaraði Mishkin meðal annars gagnrýni vegna þeirrar skýrslu. Mishkin varð síðar einn af sjö seðlabankastjórum Bandaríkjanna, en sneri sér aftur að kennslu síðast- liðið haust. Hann er prófessor við Columbia-háskóla í New York og sér- hæfir sig í bankahagfræði. Minni líkur á heimskreppu Mishkin segir líkur á alvarlegri heimskreppu minni en áður, en það eigi þó ekki við um Ísland þar sem kreppan sé þegar orðin að veruleika. „Áfallið á heimsvísu varð meira nú en á fjórða áratugnum og vandinn flókn- ari við að eiga,“ segir hann. „En sem betur fer var brugðist kröftuglega við og yfirvöld voru staðföst í afstöðu sinni. Auk þess reyndist efnahags- reikningur banka og fyrirtækja skárri en óttast var í fyrstu og svig- rúmið meira. Lehman hefur ekki endurtekið sig.“ – Eru erfiðleikarnir þá að baki? „Þetta hefur verið alvarleg niður- sveifla. En líkur eru á því að við vinnum okkur bráðlega út úr henni á heimsvísu. Það á ekki síst við um Bandaríkin. Og Bandaríkin eru auð- vitað forsenda fyrir umskiptum ann- ars staðar. Vandinn er sá að jafnvel þótt ekki hafi orðið frekara hrun í bankakerf- inu, þá er undirliggjandi fjármála- kerfi enn mjög laskað. Það er enn undirfjármagnað og ekki hefur tekist að greiða fyrir flæði fjármagns.“ – En það er langt í land á Íslandi? „Vandamálin eru fleiri hér á landi, því hér varð algjört hrun. Ég skrifaði bók um alþjóðavæðingu fjár- málakerfisins árið 2006, þar sem ég lýsti nokkrum hættum fyrir nýmark- aðslöndin og hvernig þau gætu forð- ast þær. Því miður féllu Íslendingar í sumar af þeim gildrum. Ég nefni sem dæmi það einkenni á nýmarkaðsríkjum að vera með mikl- ar skuldir í erlendri mynt. Það á al- mennt ekki við um þróaðri ríki, en Ís- land er undantekning þar á. Það voru hrikaleg mistök að leyfa þessari skuldsetningu erlendis að eiga sér stað. Ég nefni það í bókinni, að þetta sé helsta ógnin fyrir nýmarkaðsríkin. Mig óraði bara ekki fyrir því að Ís- land ætti eftir að fara þá leið, hvað þá í þeim mæli sem raunin varð. Það átti aldrei að leyfa fólki að taka erlend lán fyrir eignum á heimamarkaði. Þegar krónan féll, þá hækkuðu lánin upp úr öllu valdi, en fasteignaverð stóð í stað eða lækkaði. Þetta er hörmulegt og til framtíðar litið verður að vinda ofan af þessum vanda til þess að hjólin geti aftur farið að snúast á Íslandi. Annað sem komið hefur upp á yf- irborðið eftir hrunið eru upplýsingar um allar lánveitingarnar, sem byggð- ar voru á eignatengslum eða kunn- ingsskap. Það er nokkuð sem ég tók fram að þyrfti að varast í nýmark- aðsríkjum. Eftirlit var mun slakara á Íslandi en mig óraði fyrir og alls ekki nógu öflugt til að hindra þróunina.“ Skárra en á Ítalíu „Góðu fréttirnar eru þær að ís- lenska ríkið skuldaði ekki mikið fyrir hrunið, en vandinn er sá að skuld- irnar eru afar miklar eftir hrunið. Þið standið þrátt fyrir allt betur en Ítalía, Belgía og fleiri ríki, þar sem skuldir ykkar eru lægri í hlutfalli við lands- framleiðslu. Ástandið hefði verið enn verra, ef þið hefðuð verið óábyrg í ríkisfjármálum fyrir hrunið og rík- issjóður ekki greitt niður skuldir sín- ar. En á hinn bóginn þurfið þið nú að hreinsa til, greiðið það dýru verði og skattgreiðendur þurfa að axla þær byrðar. Því fyrr sem þið gerið hreint fyrir ykkar dyrum, því fyrr nær efna- hagslífið viðspyrnu.“ – Á það einnig við um Icesave- samningana að þínum dómi? „Ég get ekki dæmt um þann samn- ing sem liggur fyrir. Þar skipta smá- atriðin sköpum. En því fyrr sem það skýrist hversu mikið þarf að greiða, bæði erlendis og innanlands, því fyrr mun efnahagslífið komast á réttan kjöl. Ef það ríkir óvissa um það, þá veitir enginn ykkur lán. Þess vegna er lánamarkaðurinn botnfrosinn. Vondu fréttirnar eru þær að Ísland lenti í kreppunni, sem hefði getað orðið á heimsvísu. En góðu fréttirnar að ef kreppan hefði náð til allrar heimsbyggðarinnar, þá hefði ástand- ið versnað enn meira hér. Íslendingar hafa hagnast verulega á alþjóðavæð- ingunni. Þetta er fámenn þjóð, en menntunarstigið er hátt og Íslend- ingar hafa fært sér það í nyt. Útflutn- ingur mun reynast afar mikilvægur í viðreisn efnahagslífsins og þar geng- ur vel. En mikilvægt er að byggja sem fyrst upp traust á fjármálamörk- uðum, erlendis sem innanlands.“ – Þannig að við eigum að skrifa undir, sama hvað það kostar? „Nei, alls ekki. Það voru ekki mín orð. Þetta snýst alltaf um hvort sam- komulagið eigi rétt á sér. Þörfin fyrir að eitthvað gerist hratt réttlætir ekki að skrifa undir slæman samning. Og hvort þessi samningur er góður eða slæmur er nokkuð sem ég hef ekki forsendur til að dæma um.“ – Þú nefndir að lán hefðu hækkað en fasteignaverð lækkað, sem þýðir að margir sitja í súpunni. Hvaða svör á hagfræðin við því? „Dæmi eru um almenna skulda- niðurfærslu, sem er mjög vandasöm og þá er lykilatriðið að regluverkið sé skýrt og farið sé að lögum. Þetta var raunar gert í kreppunni miklu í Bandaríkjunum. Þar höfðu allir lána- samningar gullskilmála, sem fól í sér að greiða þyrfti lánið með dollurum eða samsvarandi upphæð í gulli. Þeg- ar dollarinn féll í verði gagnvart gull- inu, þá þurfti fólk að greiða fleiri doll- ara. Afleiðingarnar voru því svipaðar og af erlendum gjaldeyrislánum hér. En þar var brugðist við með því að ógilda gulltenginguna og fólk þurfti aðeins að greiða til baka í dollurum. Nú er mikil umræða um það í Bandaríkjunum að færa niður skuldir almennings og ég held að þess þurfi varðandi fasteignalán. En þetta er vandasamt. Þið yrðuð þá að rökstyðja reisnin hefjist. Það á við um bæði inn- lenda og erlenda skuldaniðurfærslu.“ Vandinn fólst í örum vexti – Þú skrifaðir skýrslu með Tryggva Þór Herbertssyni árið 2006, sem sumir kölluðu heilbrigðisvottorð fyrir íslenskt efnahagslíf... „Hún var það ekki,“ grípur Mis- hkin fram í. „Ef þú lest hana vand- lega, þá fjallar einn mikilvægasti kafli skýrslunnar um viðskiptahallann. Margir höfðu lýst áhyggjum af mikl- um halla á viðskiptum Íslendinga, en við sýndum fram á að það væri ekki helsta vandamálið og þar höfðum við rétt fyrir okkur. Vandinn fólst í örum vexti fjár- mála- og bankakerfisins. Og við tók- um ekki afstöðu til tveggja atriða. Annað var ekki orðið að veruleika, en það var öll lántakan í erlendri mynt. Við hefðum sannarlega hreyft at- hugasemdum við henni, enda bendi ég á hættuna við slíkar lántökur í bókinni minni. Ég sagði slíkar lántök- ur eina helstu hættuna fyrir nýmark- aðsríki og hvaða ríki sem er og jafn- framt að hlutverk eftirlitsaðila væri að sporna við þeim. Þetta var hins- vegar ekki stórt vandamál þegar við skrifuðum skýrsluna. Hitt atriðið var að eftirlit með fjár- málakerfinu var mun slakara en við áttuðum okkur á. Við gengum út frá því að Ísland væri þróað ríki með öfl- ugar stofnanir, en áttuðum okkur ekki á að þær höfðu ekki burði til að veita svona stóru bankakerfi aðhald. Og víst hafði vöxtur bankanna verið hraður og við lýstum áhyggjum af því, en vöxturinn hófst fyrir alvöru eftir að skýrslan kom út. Bankakerfið var 40% af því sem það var við hrunið þegar við skrifuðum skýrsluna. Þennan vöxt gátum við ekki séð fyr- ir.“ Hann brosir. „Hagfræðingar geta greint stað- reyndir á hverjum tíma, en það kann að fara framhjá þeim sem fólgið er í framtíðinni. Enginn gerði sér grein fyrir hversu alvarlegt áfallið yrði í október 2008. Það eru engin fordæmi fyrir því. Ég vann í Seðlabanka Bandaríkjanna þar til 1. september og gat þó ekki séð það fyrir. Fyrir vikið varð höggið enn meira fyrir Ís- lendinga. Ég held þó að ástandið hefði alltaf orðið alvarlegt hér.“ – Er ESB og evran lausnin? „Það kann að vera skynsamlegt til langs tíma litið fyrir Íslendinga að til- heyra Evrópusambandinu. En þá set ég varnagla við það að þið náið góð- um samningum um sjávarútveginn, þannig að fiskistofnunum sé stýrt með ábyrgum hætti. Það er ekki að- eins mikilvægt fyrir Íslendinga held- ur alla heimsbyggðina. Aftur er þetta spurning um hvort samningurinn er nógu góður og þar liggur galdurinn í smáatriðunum. En þetta er ekki mikilvægasta málið fyr- ir Íslendinga á þessum tímapunkti. Það sem skiptir máli núna er að hefja viðreisnina og ná viðspyrnu í efna- hagslífinu. Þangað eiga menn miklu fremur að beina athyglinni. Þið verð- ið að einbeita ykkur að því að byggja aftur upp fjármálakerfið, því þetta var gífurlegt hrun sem átti sér stað. Ég get nefnt sem dæmi að ég er að skrifa nýja kennslubók þessa dagana og þar verður dæmi um hrunið á Ís- landi.“ Svo bætir hann við: „Slæmu fréttirnar eru þær að bankarnir hrundu, en góðu fréttirnar að nú veit gervöll heimsbyggðin hvar Ísland er.“ Slæmu og góðu fréttirnar MISHKIN UM SKÝRSLU, KREPPU OG NIÐURFÆRSLU SKULDA Morgunblaðið/Kristinn Fordæmi Mishkin rifjar upp að lán til almennings hafi verið færð niður í kreppunni miklu. ‘‘„VIÐ GENGUM ÚT FRÁÞVÍ AÐ ÍSLAND VÆRIÞRÓAÐ RÍKI MEÐ ÖFL-UGAR STOFNANIR, EN ÁTTUÐUM OKKUR EKKI Á AÐ ÞÆR HÖFÐU EKKI BURÐI TIL AÐ VEITA SVONA STÓRU BANKA- KERFI AÐHALD.“ slíkan gjörning með því að aðstæður hefðu skapast sem ættu sér ekkert fordæmi, farið yrði að lögum og jafn- framt tryggt að slík niðurfærsla muni ekki endurtaka sig.“ – Það verður vísast bið á því að fólk taki aftur erlend gjaldeyrislán. „Margar ólíkar útfærslur eru til, en grundvallaratriðið er að þið viljið ekki verða eins og Argentína. Þar eru skuldir ítrekað færðar niður, enginn treystir því að lán verði endurgreidd og ríkisstjórnin leysir jafnvel til sín innstæður sem fólk hefur lagt inn í banka. Afleiðingin er sú að það ríkir lögleysa. Það þarf skýran laga- ramma, þannig að fólk átti sig á af hverju skuldir voru felldar niður og hvaða reglum verður fylgt til fram- tíðar. Það er líka mikilvægt að þessu ljúki um leið og skrefið hefur verið stigið. Hversu langt á að stíga eru hinsvegar margir fróðari um en ég.“ – Er einhver glæta í myrkrinu? „Ég held að það sé mikilvægt að komast að niðurstöðu sem fyrst. Rík- isstjórnin ákveði hvað þarf að gera, fólk átti sig á í hverju það felst og við-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.