Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 30
30 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2009 SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG SUÐURLANDSBRAUT Í húsinu Suðurlandsbraut 4A eru nú til sölu eða leigu tveir eignarhlutar á 3. hæð hússins. Stærri einingin ca 313 fm, er austurhluti hæðarinnar með tvo innganga frá stigagangi og er honum skipt í tvö skristofurými í dag. Ásett verð er kr. 61 millj. og eru hagstæð lán áhvílandi. Minni eignar- hlutinn er ca 271 fm og nær hann í gegnum húsið. Ásett verð kr. 45,0 millj. eða leigutilboð. Báðar eignirnar eru glæsilega innréttaðar sem skrifstofur með útsýni í norður. Lyfta er í húsinu og bílastæði bæði fyrir framan og aftan húsið. 8395 Nánari upplýsingar gefur Ægir Breiðfjörð á skrifstofutíma. Furugerði v. Álmgerði - sími 588 2030 - fax 588 2033 Lögg. fasteignasali: Sigríður A. Gunnlaugsdóttir „UPPHAFLEGA hélt ég að ég væri að kjósa um það að við værum að gerast aðilar að sameig- inlegum markaði og hvað gæti verið betra og vinalegra, skynsamlegra og efnahagslega vit- urlegt að gera. En síðan þá, 1975, þeg- ar um þetta var kosið, hefur þetta þróast lengra en að vera bara sameiginlegur markaður. Þetta varð stuttu síðar Efnahags- bandalag, síðar Evrópusam- bandið og stefnir núna í það að verða sambandsríkið Evrópusam- bandið. Núna er búið að búa til stjórnarskrá þess sem Frakkar kalla Bandaríki Evrópu (e. Unit- ed States of Europe). En þetta er ekki það sem ég og margir aðrir kusu um árið 1975!!“* Svo mælir bresk kona (í laus- legri þýðingu höfundar) Delfine Gray-Fisk, fyrrv. flugstjóri, þeg- ar hún rifjar upp ástæðurnar fyr- ir því að hún sagði já við aðild að Efnahagsbandalaginu á sínum tíma. Hún bendir jafnframt á að engar þær væntingar sem hún hafi haft til aðildar að EB hafi staðist. Reyndar er það álit mitt að það sé einmitt það sama um þorra íbúa þeirra svæða sem tilheyra Evrópusambandinu. Andstæð- ingar ESB í Bretlandi gera margar og miklar athugasemdir við veru Bretlands í sambandinu og þá stefnu sem sambandið hef- ur tekið. Sé litið til Spánar þá er sama upp á teningnum. Við- skiptamálaráðherra Spánar hefur til dæmis sagt það opinberlega að evran sé ein helsta ástæða verð- bólgu og atvinnuleysis á Spáni. (Sjá t.d. The Independent 17. des. 2007.) Síðan Bretar gegnu í ESB ráða þeir ekki lengur sjálfir umhverf- ismálum, fiskveiðimálum, land- búnaðarmálum og utanrík- isviðskiptum. Ef Ísland gengur í ES þá mun það nákvæmlega sama gerast af því að þetta er skrifað inn í Róm- ar-sáttmálann. Af hverju ættu Bretar að sætta sig við það að Ís- land fengi að ráða þessum mála- flokkum en þeir ekki? Þegar rætt er við fólk á Íslandi sem er frekar hlynnt inngöngu í ESB þá kemur í ljós að það er oftast vegna þess að fólk hefur óljósar hugmyndir um að at- vinnuleysi verði úr sögunni, spill- ing í stjórnmálum verði úr sög- unni og stöðugleiki muni komast á í efnahagslífinu. Ekkert er fjær sanni! Í ESB er viðvarandi atvinnu- leysi vegna þess að það er Seðla- bandi ESB sem stjórnar vöxtum og allar hagfræðiskipanir og út- reikningar þar að lútandi eru miðlæg og miðast við stærstu ríki sambandsins. Það er að segja, það er tekið meðaltal. Þar af leið- ir að einstök ríki hafa engan sveigjanleika til að bregðast við atvinnuleysi. Enda þurfa ríki sem hafa evru að afhenda Seðlabanka ESB allan gullforða sinn. Hvað varðar spillingu er ESB og yfirstjórn þess svo spillt að á hverjum degi er fúlgum fjár fleygt út um gluggann í búrók- rata. Framkvæmdastjórn ESB virðist algjörlega ráða því hvern- ig þingið greiðir atkvæði. Nigel Farge þingmaður á þingi ESB segir t.d. frá því að á 80 mínútum hafi hann greitt 450 sinnum at- kvæði! Þing ESB virkar nefnilega þannig að þingmenn fá blað í hendurnar frá búrókratíi ESB og þar segir: Mál nr. 51; greiða atkvæði já. Mál nr. 52; greiða at- kvæði nei.* Margir af þeim sem þurftu að segja af sér vegna spillingarmáls í fram- kvæmdastjórninni ár- ið 1998 eru nú ann- aðhvort á þingi ESB eða í framkvæmdastjórn ESB. Þetta er meira að segja svo rotið að einn af þessum mönnum sem sögðu af sér vegna fjársvika 1998 er nú yfirmaður deildar innan ESB sem á að rannsaka fjársvik innan ESB! Endurskoðandi ESB sem nýverið kom fram op- inberlega og tjáði sig um fjársvik innan sambandsins og neitaði að skrifa upp á ársreikninga var rekinn. Þeir Íslendingar sem halda að spillingu muni verða út- hýst úr stjórnmálum á Íslandi ef við göngum í ESB eru á villigöt- um. Ítalía er í ESB. Þar er spill- ing svo mögnuð að Evrópa horfir á með forundrun. Stöðugleiki í efnahagsmálum kemst á ef við göngum í ESB? Hvað kalla menn stöðugleika? Ég er nokkuð viss um að Íslendingar kalla stöðuleika: ekkert atvinnu- leysi, verðlag helst stöðugt, mat- vara er ódýr, vísitala er afnumin af lánum og allir eiga afgang af kaupinu sínu. Ekkert af þessu er tryggt með inngöngu í ESB. Verðlag hefur hækkað í öllum þeim löndum sem tekið hafa upp evru eða tengt gjaldmiðil sinn við evru. Atvinnuleysi er lögmál í ESB. Og hvað varðar vísitöluna þá getum við afnumið hana án þess að afsala okkur fullveldinu í leiðinni. Sumir hafa sagt, þegar talað er um inngöngu í ESB að við mun- um afsala okkur fiskveiðilögsög- unni; „Skiptir engu máli, við er- um hvort eð er búin að afsala okkur henni til kvótagreifanna.“ Nei, við erum akkúrat ekki búinn að afsala okkur neinu til kvóta- greifa. Munurinn er einmitt sá að ef við göngum í ESB munum við aldrei geta breytt neinu varðandi fiskveiðistjórnun. En ef við erum utan ESB getum við einmitt breytt fiskveiðistjórnunarkerfinu á eigin forsendum. Þar liggur munurinn. Í kosningabaráttunni síðustu kom erindreki á minn vinnustað frá Samfylkingunni. Hún hafði um það mörg orð að Evrópusam- bandið væri nú alls ekki ljótt og spillt og að ESB ætlaði alls ekki gleypa auðlindir aðildarríkjanna. Þvert á móti, innan sambandsins væru fullt af sjóðum sem nemar og félagasamtök ofl. gætu kafað í (mútur). Hún lét þess getið að hún væri nú reyndar ekki í fram- boði fyrir Samfylkinguna og hennar núverandi atvinnurekandi væri ESB! *Vitnað í þáttinn The Real Face of the European Union. Helgi Helgason »Munurinn er einmitt sá að ef við göngum í ESB munum við aldrei geta breytt neinu varð- andi fiskveiðistjórnun. Höfundur er stjórnmálafræðingur og á sæti í framkvæmdastjórn Frjáls- lynda flokksins. Eftir Helga Helgason Kaus ekki um að ganga í Banda- ríki Evrópu FYRIR hartnær 20 árum hófst samdráttur í finnsku efnahagslífi sem olli því að um 20% foreldra urðu atvinnu- lausir. Í heildina fann 80% fjárhagslega fyrir þessum þrengingum og um 20% þjóðarinnar varð illa úti. Þeir sem héldu vinnunni þurftu að búa við verulega aukið vinnuálag, og 1/3 vinnandi feðra þurftu að vinna mikla yfirvinnu eða taka aukavinnu til að láta enda ná saman. Viðvarandi fjárhags- áhyggjur sköpuðust hjá foreldrum og margar fjölskyldur bjuggu við sult. Hjá sumum fjölskyldum var ástandið svo slæmt að eina máltíð barnanna var sú er þau fengu í skól- anum, en það þýddi að þau borðuðu í hádeginu á föstudegi og síðan ekki fyrr en í hádeginu á mánudegi. Af- leiðingar viðvarandi slæmrar stöðu voru í mörgum tilfellum geðræn vandamál hjá foreldrum, sér í lagi kvíði en að auki þunglyndi hjá kon- um. Karlar sýndu hins vegar æ meira framtaksleysi. Vandi milli hjóna jókst þar sem konur upplifðu aukinn fjandskap maka, meðan karl- ar töldu sig ekki fá jafn mikinn stuðning frá maka sínum og áður. Jafnhliða þessu dró úr stuðningi við börn innan veggja heimilisins, þvingun og ósamstaða í uppeldi jókst. Kvíði foreldra hafði mikil áhrif á uppeldisaðstæður barna. Afleið- ingarnar voru vel merkjanlegar í andlegri heilsu barna sem hrakaði. Þó að efnahagskreppunni hafi létt hjá Finnum þá hélt andlegri heilsu barna áfram að hraka og vilja rann- sakendur fyrst og fremst meina að þar sé um að kenna aðgerðum stjórnvalda. Strax 1993 fóru Finnar að sjá aukningu í geðrænum vanda barna sér í lagi einstaklinga á aldrinum 15- 19 ára. Árin 1996-98 fór sama þróun að sjást hjá aldurshópunum 10-14 og 5-9 ára. Þessi þróun heldur áfram löngu eft- ir að efnahagskrepp- unni lýkur. Frá 1989 til 2003 hefur orðið 300% aukning í geðrænum vandamálum ung- menna á aldrinum 15- 19 sem og í aldurs- hópnum 10-14 ára. Samhliða þessari þróun hefur kostnaður sam- félagsins vegna stuðn- ings við börn og foreldra hækkað gríðarlega, sem dæmi má nefna að kostnaður 30.000 manna sveitarfé- lags hefur hækkað úr 2,7 milljónum evra 2001 í 7,1 milljón evra 2008. Hvað veldur? Samkvæmt þeim sem rannsakað hafa kreppuna í Finnlandi og viðbrögð stjórnvalda má rekja núverandi ástand til sam- dráttar í þjónustu og stuðningi við börn. Jafnhliða því sem ástand inni á heimilunum versnaði, var verulega dregið úr þjónustu við börn í skóla- kerfinu. Bekkjardeildir voru stækk- aðar að meðaltali um 40%. Efnis- innkaup til skólastarfs var skorið niður um 90%. Viðvera eftir skóla var skorin í burtu. Álag á kennara margfaldaðist og dró þar með úr getu þeirra til að sinna börnunum. Starfsþrot kennara jukust um 50%. Áhrif stækkunar bekkjardeilda skil- uðu sér í því að verulega dró úr skil- virkni kennslu og einstaklings- bundin kennsla var óframkvæman- leg. Aukning ónæðis og hegðunar- vanda, sér í lagi hjá stúlkum. Erfið- leikar í stjórnun bekkjardeilda og aukið stress bæði hjá kennurum og nemendum. Auk þess sem að hið op- inbera dró úr þjónustu sinni við börn urðu foreldrar að draga úr útgjöld- um. Greiddar tómstundir og íþróttir barnanna voru iðulega það fyrsta sem fellt var niður í aukalegum út- gjöldum heimilisins. Fyrir börnin þýddi kreppa Finna minnkað eftirlit fullorðinna, aukna ábyrgð á ástandi heimilisins, upp- lifun mikillar vanlíðunar heima fyrir, minna aðhald í skóla, lélegri mennt- un og aukið andlegt álag. Umhverfi barna einkenndist af samskiptum við yfirkeyrt fullorðið fólk, hvort sem það var heima, í skóla eða leik- skóla. Sökum eigin vanlíðunar urðu fullorðnir einstaklingar óaðgengileg- ir þegar eitthvað bjátaði á í lífi barnanna; það sem meira er: þeir fullorðnu juku á óstöðuleika í upp- vexti og höfðu þar með neikvæð áhrif á þroskaferil barnanna. Erum við að feta í fótspor Finna? Ekki ber á öðru en að íslensk stjórn- völd og sveitarfélög séu að feta sömu slóð og Finnar. Daglega heyrir mað- ur af því að verið er að stækka bekkjardeildir, miðar berast for- eldrum þar sem óskað er eftir hrá- efni til að hægt sé að kenna skapandi handavinnu. Umræða um að ekki eigi að endurnýja ráðningu stunda- kennara eða lausráðinna. Jafnvel að leggja eigi niður tómstundaheimili skóla. Þessar aðgerðir eru ekki til neins annars fallnar en að auka þjóð- félagslegan kostnað okkar til lengri tíma litið og valda ótal börnum og foreldrum þeirra ómældum þján- ingum. Andlegt heilbrigði barna okkar verður ekki metið til fjár. Ekkert foreldri vill þurfa að feta þau þungu spor sem liggja að geðheil- brigðiskerfinu með barnið sitt sér við hönd. Ekkert skiptir meira máli en að standa vörð um þroska og geð- heilsu barna okkar. Því er það brýnt að íslensk stjórnvöld líti til reynslu Finna, læri af henni og forðist sömu mistök og þeir gerðu. Að hætta geð- heilsu barna okkar er undir öllum kringumstæðum það sama og að halda aurnum en henda krónunni. Reynsla Finna kennir okkur að það að draga úr stoðþjónustu við börnin okkar mun koma okkur í koll. Stönd- um vörð um börnin okkar og við- höldum því ágæta kerfi sem við höf- um byggt upp í kringum þau. Andleg heilbrigði er eitt það mik- ilvægasta sem nokkur einstaklingur býr við. Eftir Hannes Jónas Eðvarðsson » Fyrir börnin þýddi kreppa Finna minnkað eftirlit fullorð- inna, aukna ábyrgð á ástandi heimilisins, upp- lifun mikillar vanlíðunar heima fyrir, minna að- hald í skóla, lélegri menntun og aukið and- legt álag. Hannes Jónas Eðvarðsson Höfundur er sálfræðingur og ráðgjafi hjá Geðhjálp. Reynsla Finna – víti til að varast MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðugrein- ar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í um- ræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á for- síðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/senda- grein Ekki er lengur tekið við grein- um sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.