Morgunblaðið - 11.10.2009, Blaðsíða 1
1 1. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
276. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
FJENDUR Í EINNI SÆNG »8 HRAKIN BURT ÚR PARADÍS»6
GLEÐI ríkti við fall Berlínarmúrsins þegar
þýska alþýðulýðveldið liðaðist í sundur
eftir 40 ár. En 20 árum síðar hefur þýska
þjóðin ekki náð fullri einingu. Mikill efna-
hagslegur munur er á austri og vestri, at-
vinnuleysi er helmingi meira austan-
megin og þörf fyrir félagslega aðstoð er
meiri. Munurinn veldur því m.a. að 49%
Austur-Þjóðverja telja að í gamla Austur-
Þýskalandi hafi fleira verið jákvætt en
neikvætt. „Óttinn við þá háttsettu hefur
vikið fyrir óttanum við að tilheyra þeim
lægst settu,“ segir Wolfgang Tiefensee
sem hefur umsjón með málefnum eystri
sambandsríkjanna.
Nostalgían vex
í Þýskalandi
NÚ sitja hinir
svörnu fjendur,
Robert Mugabe og
Morgan Tsvangirai,
saman í stjórn í
Simbabve og verk-
efnið er ærið. Slík
hefur óstjórnin ver-
ið í valdatíð Mugab-
es að landið er að
hruni komið. Mug-
abe ætlaði aldrei að
hleypa Tsvangirai að þrátt fyrir sigur
þess síðarnefnda í kosningum í fyrra en
lét undan alþjóðlegum þrýstingi.
Þar sem hjólið
snýst hægt
Umdeildur Robert
Mugabe forseti.
HÚS númer 2 við Melahvarf í Kópavogi er ekkert venjulegt einbýlishús. Það er bóndabær. Egill R. Sigurgeirsson læknir og fjölskylda halda þar hesta, bý-
flugur og landnámshænsni sem Egill fullyrðir að komin séu í beinan karllegg frá Ingólfi Arnarsyni. Kofann góða reisti bóndinn að mestu sjálfur. | 28
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afkomendur Ingólfs
BÚIST er við flóðbylgju mála í kjöl-
far bankahrunsins en á sama tíma er
héraðsdómstólunum gert að spara
50 milljónir króna á næsta ári sam-
kvæmt fyrirliggjandi fjárlögum, eða
5% að raungildi.
„Miðað við það gríðarlega álag
sem er í uppsiglingu og er þegar far-
ið að sjást er þetta algerlega ófull-
nægjandi. Í raun og veru þyrfti að
stórauka fjárheimildir í þeirri stöðu
sem dómstólarnir eru núna og þegar
höfð er í huga fyrirsjáanleg flóð-
bylgja mála á næstu misserum,“
segir Helgi I. Jónsson, dómstjóri í
Héraðsdómi Reykjavíkur og starf-
andi formaður dómstólaráðs.
Vill fjölga dómurum
Helgi skrifaði Rögnu Árnadóttur
dómsmálaráðherra bréf í vikunni
fyrir hönd dómstólaráðs þar sem
hann gerir tillögu um að héraðsdóm-
urum verði fjölgað tímabundið um
fimm vegna fyrirsjáanlegra anna og
aðstoðarmönnum dómara um þrjá
auk fjölgunar annars starfsfólks sem
leiðir af fjölgun dómara. Þá er óskað
eftir rýmkun á heimild dómara til að
kveðja sérfróða meðdómendur til
setu í dómi, þar sem ljóst þyki að um
ýmis lögfræðileg atriði verði fjallað
sem ekki hafi áður reynt á fyrir
dómi.
Fyrstu dómarnir vegna banka-
hrunsins hafa þegar verið kveðnir
upp og mörg mál í farvatninu. Þá
hafa Héraðsdómi Reykjavíkur bor-
ist á sjötta tug ágreiningsmála
vegna gjaldþrota sem orðið hafa í
kjölfar hrunsins. sisi@mbl.is | 4
Dómstól-
um gert
að spara
Búist við flóðbylgju
mála vegna hruns
Morgunblaðið/ÞÖK
Dómur Mikið annríki framundan.
ROOSEVELT
Fyrstur forseta
í flugvél
MYNDAALBÚM
KATRÍNAR
GENGISVÍSITALA
LADDA
MAGGI EIRÍKS
OG BUBBI
ÁRÚNTINUM
SUNNUDAGUR