Morgunblaðið - 11.10.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.10.2009, Qupperneq 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009 Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is S ÍÐASTLIÐINN miðvikudag féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur 18 dómar í málum jafnmargra einstaklinga sem kröfðust skaðabóta vegna rýrnunar eignarhluta þeirra í peningamark- aðssjóði Landsbankans. Þetta voru með fyrstu dómum, sem upp eru kveðnir í málum sem höfðuð eru í kjölfar bankahrunsins sem varð fyrir réttu ári. Búist er við holskeflu mála í kjölfar hrunsins en á sama tíma er héraðsdómstólunum gert að spara 50 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fyrirliggjandi fjárlögum, eða 5% að raungildi. Er raunhæft að krefjast sparnaðar hjá dóm- stólunum á sama tíma og álagið mun stóraukast? „Miðað við það gríðarlega álag sem er í uppsigl- ingu og er þegar farið að sjást er þetta algerlega ófullnægjandi. Í raun og veru þyrfti að stórauka fjárheimildir í þeirri stöðu sem dómstólarnir eru núna og þegar höfð er í huga fyrirsjáanleg flóð- bylgja mála á næstu misserum,“ segir Helgi I. Jónsson, dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur og starfandi formaður dómstólaráðs. Helgi skrifaði Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra bréf í vik- unni fyrir hönd dómstólaráðs þar sem hann gerir tillögu um að héraðsdómurum verði fjölgað tíma- bundið um fimm vegna fyrirsjáanlegra anna og aðstoðarmönnum dómara um þrjá auk fjölgunar annars starfsfólks sem leiðir af fjölgun dómara. Þá er óskað eftir rýmkun á heimild dómara til að kveðja sérfróða meðdómendur til setu í dómi, þar sem ljóst þyki að um ýmis lögfræðileg atriði verði fjallað sem ekki hafi áður reynt á fyrir dómi. Helgi segir að álagið á hér- aðsdómstólana hafi nú þegar aukist verulega. Nefnir hann sem dæmi að í Héraðsdómi Reykjavíkur séu munnlega flutt einkamál orðin jafn mörg á fyrstu níu mánuðum þessa árs og þau voru allt árið, á árbilinu 2005 til 2007. Dóminum hafa borist á sjötta tug ágreiningsmála vegna gjaldþrota, sem orðið hafa í kjölfar hrunsins. Enginn viti hver málafjöldinn verði eftir öll gjald- þrotin. „Hvernig verður staðan þegar kröfulýs- ingarfrestur rennur út vegna stóru bankanna,“ spyr Helgi. Þá blasi við að mörg stórfyrirtæki hafi orðið gjaldþrota og af því leiði að mörg rift- unarmál verði rekin fyrir dómstólum. 300 greiðsluaðlögunarmál til dómstóla Hann bendir á að svokölluðum greiðsluaðlög- unarmálum hafi verið skellt á héraðsdómstólana fyrirvaralaust. Um 300 slík mál séu komin til dómstólanna nú þegar. Þessum málum fylgir mik- il vinna og dómarar þurfa að fara í gegnum marga pappíra sem þeim fylgja. Í mörgum tilvikum komi málin aftur á borð dómarans, þegar innköll- unarferlinu lýkur. Þá sé alltaf að fjölga málum frá ríkissaksóknara sem séu tafsömustu málin sem dómstólarnir fáist við. Þessi mál fara flest í svokallaða aðalmeðferð, þar sem þurfi í mörgum tilfellum að yfirheyra fjölda vitna. Auk hinna venjulegu mála segir Helgi að vitað sé um mikinn fjölda mála sem eru til meðferðar hjá sérstökum saksóknara og hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Fjár- málaeftirlitið hafi sent fjölda mála þangað. Óljóst sé hvenær þessi mál koma til kasta dómstólanna en það sé viðbúið að mörg þeirra verði mjög um- fangsmikil. Helgi segir að í því árferði sem er núna sé því miður hætta á því að ýmsum afbrotum fjölgi, t.d. ofbeldisbrotum, auðgunarbrotum og brotum gegn fíkniefnalöggjöfinni. „Þetta hefur því miður verið reynsla þeirra þjóða sem lent hafa í svona að- stæðum eins og íslenska þjóðin núna,“ segir Helgi. Hann segir að það sé fullur vilji hjá dómstólum að leita allra leiða til að spara. Það hafi verið hug- mynd dómstólaráðs að landið yrði einn dómstóll. Hins vegar þurfi að vanda vel til verka. Huga þurfi að fjölmörgum atriðum áður en af samein- ingu verði. Því miður hafi stundum illa tekist til hjá ríkinu í svona málum. Það er mat Helga að sameining dómstólanna geti skapað ákveðin sóknarfæri. Meðal annars skapist tækifæri til að beina málum frá þeim dómstólum þar sem annir eru mestar til annarra dómstóla. Helgi segir að lokum að fólk verði að hafa í huga að dómstólarnir geti ekki lokað þegar allt sé orðið yfirfullt. „Við getum ekki lokað dyrunum og sagt fólki að koma eftir 1-2 ár,“ segir hann. Því vonist hann til þess að dómstólarnir mæti skilingi hjá ríkisstjórninni og fjárlagavaldinu. „Rík- isstjórnin er búin að skilgreina hvað er grunn- þjónusta og ef réttaríkið fellur ekki þar undir þá er mér illa brugðið. Það tekur ótrúlega skamman tíma að sökkva dómstólunum á bólakaf í málaflóði en að sama skapi mun taka mörg ár að vinna upp þann málahala sem mun myndast.“ Morgunblaðið/RAX Þrengt að dómstólum  Á sama tíma og dómstólar búa sig undir holskeflu mála vegna bankahrunsins er þeim gert að spara 50 milljónir  Stórauka þarf fjárheimildir, segir formaður dómstólaráðs Dómsuppkvaðning Baugsmálið svokallaða var mikið að vöxtum og mörg umfangsmikil mál blasa við sem dómstólarnir munu fjalla um. Helgi I. Jónsson  ÞUNGI mála vegna efnahags- hrunsins lendir síðast á Hæstarétti. Þó má gera ráð fyrir því að rétt- urinn muni fá fyrstu málin til um- fjöllunar strax á næsta ári. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eru 99 milljónir ætlaðar til reksturs Hæstaréttar á næsta ári. 9% hag- ræðingarkrafa er gerð til réttarins, eða sem nemur 10 milljónum. Fram kemur í frumvarpinu að þessu á m.a. að ná með því að draga úr ým- iss konar stoðþjónustu við dómara. Málum sem berast Hæstarétti hefur farið fjölgandi. Í fyrra bárust réttinum 697 mál en til sam- anburðar bárust réttinum 497 mál árið 2003. Í fyrra fjölgaði kæru- málum af ýmsum toga um 13% en munnlega fluttum málum fækkaði um tæp 4%. Í fyrra lauk meðferð 630 mála og voru dómar 40 fleiri en árið 2007 og 138 fleiri en meðaltal áranna 2002- 2006. Hæstarétti gert að spara 10 milljónir á næsta ári  TIL embættis sérstaks saksókn- ara vegna efnahagshrunsins eru ætlaðar 315 milljónir króna á næsta ári. Hins vegar mun embætti ríkis- saksóknara fá 132,7 milljónir og dragast framlög milli ára saman um rúmar þrjár milljónir, eða 2,6% Ákæruvald er einnig í höndum efnahagsbrotadeildar ríkis- saksóknara, en fjárframlag til hennar er ekki er tiltekið sér- staklega í frumvarpinu. Fram kemur í frumvarpinu að starfsmenn sérstaks saksóknara verði 16 talsins, auk aðkeyptrar ráðgjafar. Útgjöld vegna ráðgjafar Evu Joly verða 75 milljónir. Þá var í ágúst samþykkt að ráða þrjá sjálf- stæða saksóknara til viðbótar sér- stökum saksóknara. Kostnaður vegna þeirra verður 30 milljónir. Sérstakur saksóknari fær 315 milljónir  FRAMLÖG til lögreglunnar verða 7.124 milljónir króna á næsta ári og lækka um tæpar 400 millj- ónir milli ára. Hins vegar er 150 milljóna króna sérstök fjárveiting á fjárlögum sem ætlað er að styrkja almenna lög- gæslu. Þá er sérstaklega haft í huga að forðast frekari fækkun lögreglumanna og koma í veg fyrir fyrirsjáanlegar uppsagnir um næstu áramót. Framlög til löggæslunnar bæði hækka og lækka RAGNA Árnadóttir dóms- málaráðherra lagði fram á sum- arþinginu frumvarp til breytinga á lögum um dómstóla. Þar segir að héraðsdómur sé dómstóll á fyrsta dómstigi og verði hann einn fyrir landið allt. Dómstól- aráð á að ákveða hvar héraðs- dómur hafi fastar starfsstöðvar og hvernig landinu skuli skipt í þinghár. Frumvarpið var ekki af- greitt og Ragna tjáði Morg- unblaðinu að hún myndi end- urflytja frumvarpið á haustþinginu. Alls er óljóst hve- nær Alþingi nær að afgreiða frumvarpið, enda bíða mörg mik- ilvæg mál þar afgreiðslu. Í forsendum fjárlagafrum- varpsins, þar sem gerð er tillaga um 50 milljóna króna lækkun á fjárframlögum til dómstólanna, er sameining dómstólanna sér- staklega nefnd. Þar segir: „Með frumvarpinu er stefnt að því að vinnuálag verði jafnara en nú er og dómskerfið því betur í stakk búið til þess að taka við síaukn- um málafjölda. Jafnframt felast í breytingunni margvíslegir hag- ræðingarmöguleikar, m.a. fækkun bakvakta, fækkun dómstjóra um sjö, auk þess sem ferðakostnaður lækkar í kjölfar þess að fella dómaþinghá niður.“ Helgi I. Jóns- son segir að það sé algjörlega óraunhæft að líta svo á að breyt- ing á dómsmálakerfinu leiði til umtalsverðs sparnaðar. Hann bendir á að það kosti um 950 milljónir króna að reka alla átta hérðasdómstóla landsins. Þar af sé launakostnaður 84% og húsnæðiskostnaður 10%. Fastur kostnaður sé því 94%. Rétt sé að taka fram að af 80 starfsmönnum við héraðsdómstólana séu dóm- arar 38 talsins. Þá hafi starfs- mönnum héraðsdómstólanna ekkert verið fjölgað frá stofnun þeirra árið 1992 þrátt fyrir stór- aukin verkefni. Auðvitað fáist einhver hagræð- ing af því að fækka dómstjórum og ef starfsstöðvum verði fækkað verði húsnæðiskostnaður minni. Í gildandi dómstólalögum er umdæmi hvers héraðsdómstóls ein þinghá en í frumvarpinu er lagt til að dómstólaráð taki ákvörðun um skiptingu landsins í þinghár samhliða því að mæla fyrir um hvar starfsstöðvar hér- aðsdóms yrðu. „Ég held að fólk átti sig ekki á þeim óverulegu fjármunum sem varið er til dómstóla landsins miðað við margt annað í landinu og þá miklu starfsemi sem þar fer fram,“ segir Helgi. Dómstólafrumvarpið endurflutt Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.