Morgunblaðið - 11.10.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.10.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009 Smurbrauð m/rækjum og kaffi 499,- einfaldlega betri kostur Komdu og njóttu góðra veitinga © IL V A Ís la n d 20 0 9 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 kaffihús: lau. 10-17 sun. 12-17 mán. - fös. 11-18 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is VEGFARENDUR höfuðborgarinnar voru vissu- lega fegnir þegar kolvitlaust veðrið gekk loks niður á föstudagskvöld en rigningin skildi eftir sig stóra polla á götum borgarinnar. Þessi Toyota klauf einn slíkan vandræðalaust og hefur eflaust komið fólkinu innanborðs á áfangastað. Þrátt fyrir ýmis foktjón sluppu flestir borgar- búar blessunarlega við meiriháttar skaða en ástandið er mun verra víða á landsbyggðinni. Næg var bleytan á götum borgarinnar eftir óveðrið Morgunblaðið/Kristinn Himnarnir grétu og skildu eftir sig vatnselg á jörðu Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÉG VISSI reyndar að það væri von á þessu. Hins vegar var búið að segja mér og Höskuldi að það væri tak- markaður tilgangur með þessu fyrir okkur því að það hefði borist beiðni frá systurflokknum, Samfylkingunni, um að menn héldu sig við það sem lagt var upp með og að þetta uppá- tæki okkar væri að setja ríkisstjórn- ina í vanda á Íslandi,“ segir Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um bréf Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Nor- egs, þar sem hugmynd að risaláni til Íslands er hafnað. „Þetta er í engu samræmi við full- yrðingar um að Jóhanna [Sigurðar- dóttir forsætisráðherra] hafi verið að biðja um lánafyrirgreiðslu. Mér nán- ast fallast hendur við að upplifa þetta því að aftur og aftur hefur mér þótt Samfylkingin vera að vinna að allt öðru en hagsmunum Íslands.“ – Ertu að gefa í skyn að bréfið sé pantað af Samfylkingu? „Já, ég er að gera það. Frétt um að Sósíalíski vinstriflokkurinn og Mið- flokkurinn hafi ekki vitað af bréfinu til Jóhönnu kemur heim og saman við það sem okkur var tjáð.“ Sigmundur og flokksbróðir hans Höskuldur Þór Þórhallsson þingmað- ur ræddu fyrir helgi við fulltrúa norsku flokkanna um möguleikann á að fá lán frá Noregi til að leysa gjald- eyrisvanda Íslendinga og um leið að gera umdeilt samstarf við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn óþarft. Helmingi lægri upphæð dugar Spurður um hvaða upphæðir sé nú rætt í þessu samhengi segir Sig- mundur lánalínu frá Noregi upp á um 1.000 milljarða króna myndu verða meira en nóg. Því þyrftu ekki að koma til 2.000 milljarðar kr. eins og talsmaður Miðflokksins í efnahags- málum hefði sagt að stæðu til boða. Höskuldur tekur undir að bréf norska forsætisráðherrans sé skrifað að beiðni Samfylkingarinnar. „Ég hef heyrt að Jóhanna hafi sent Stoltenberg tölvupóst þar sem hún hafi sagt að förin okkar væri henni mjög óþægileg og því beðið forsætis- ráðherrann um svona bréf. Ef svo er þá er það skemmdarverk gagnvart íslensku þjóðinni. Við feng- um engin önnur svör en að það þyrfti að koma formlegt boð. Það var alveg sama við hverja við töluðum. Fulltrúi Sósíalíska vinstriflokksins í fjárlaga- nefnd hefur sagt að það eigi að ræða þessi mál upp á nýtt í Noregi.“ Með þingmönnunum í för voru fjórir ráðgjafar á sviði fjármála, þar af tveir frá fjármálafyrirtækinu Boreas Capital, sem Sigmundur seg- ir hafa ferðast fyrir eigin kostnað. Pantað af Samfylkingu Formaður Framsóknarflokksins segir bréf Stoltenbergs um Íslandslán runnið undan rifjum Samfylkingar  Segir þúsund milljarða lánalínu duga Íslendingum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höskuldur Þór Þórhallsson KOSTNAÐUR við kaup og endur- bætur á nýjum sendiherrabústað Ís- lands í Danmörku nam 256 milljón- um króna. Bústaðurinn, þar sem Svavar Gestsson sendiherra býr ásamt eiginkonu sinni, er á Fugle- bakkevej á Friðriksbergi í Kaup- mannahöfn, alls 680 metrar að flat- armáli. Eldri sendiráðsbústaður í Gen- tofte, sem ríkið keypti árið 1971, var seldur á síðasta ári fyrir rúmar 653 milljónir króna. Flatarmál hans var um 800 fermetrar. Mismunurinn á kostnaði við kaup nýja hússins og sölu þess gamla er því um 400 milljónir króna og hefur verið lagður í ríkissjóð samkvæmt svörum frá utanríkisráðuneytinu við fyrirspurn Morgunblaðsins. Í svarinu segir að markmiðið með söl- unni hafi verið að kaupa minna og hagkvæmara hús með tilliti til stað- setningar og reksturs. Ráðist var í töluverðar endurbætur á nýja bú- staðnum. Helstu kostnaðarliðir voru vegna málningar og endurnýjunar eldhúss, pípulagna, baðherbergja og raflagna, auk þess sem sundlaug í bakgarði var lokað með því að leggja yfir hana gólf. bjb@mbl.is 400 milljónir fengust með sölu á sendiherrabústað Miklar breytingar á nýjum bústað á Friðriksbergi Bústaður Nýi sendiherrabústaður Íslands í Danmörku er á Fuglebakkevej 70 á Friðriksbergi. Flatarmál hússins er um 680 fermetrar. VEGNA hagræð- ingar í rekstri sveitarfélagsins Árborgar hefur 11 starfsmönnum verið sagt upp án tilboða um ný störf. Starfshlut- fall 70 starfs- manna verður lækkað og/eða breytingar gerð- ar á starfi og laun 11 yfirstjórnenda verða áfram skert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ragnheiði Hergeirsdóttur, bæjarstjóra í Ár- borg. Hafinn er undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar sveitarfé- lagsins fyrir árið 2010 og eru þess- ar breytingar liður í því. Alls eru nú um 620 starfsmenn á launaskrá í 447 stöðugildum hjá Árborg. Ekki verður ráðið í störf sem losna og dregið úr yfirvinnu og bifreiða- styrkjum, auk fleiri aðgerða. Ellefu starfs- mönnum sagt upp hjá Árborg Ragnheiður Hergeirsdóttir LÖGREGLAN á Akureyri lagði á föstudag hald á um 100 g af kanna- bisefnum við húsleit á heimili í bæn- um. Tildrög leitarinnar eru þau að grunur lék á að maður á þrítugs- aldri væri að selja fíkniefni. Við leit á manninum fundust tæp 10 g af kannabisefnum sem pakkað var niður í sölueiningar. Í kjölfarið var haldið til húsleitar á heimili mannsins og var kærasta hans handtekin þar. Maðurinn viður- kenndi að hafa ætlað hluta efnanna til sölu og telst málið upplýst. Tekinn með hundrað grömm af kannabis FISKELDISKVÍ slitnaði upp í Dýrafirði í gærmorgun og rak upp í fjöruna innan við Sveinseyrarodda, að sögn lögreglunnar á Ísafirði. Tjónið var talið töluvert en ekki var hægt að meta það fyrr en veður lægði. Þá sló rafmagn út í Árneshreppi í fárviðrinu en komst aftur á um sjö- leytið í gærmorgun. Hjá Orkubúi Vestfjarða fengust þær upplýs- ingar að sjávarselta á rafmagns- línum við Hólmavík hefði valdið út- slættinum. Nokkrar truflanir urðu á rafmagni í hreppnum eftir að það komst aftur á og sló það út í stuttan tíma í senn. Fiskeldiskví slitnaði upp í fárviðrinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.