Morgunblaðið - 11.10.2009, Síða 18
18 Myndaalbúmið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009
Með vinkonum „Þessar stelpur koma úr
ýmsum áttum og hafa margvíslegar teng-
ingar.“ Myndin var tekin á nýársdagskvöld
fyrir nokkrum árum. „Það er alltaf mikið
stuð í kring um þennan hóp.“
Nýfæddmeðmömmu
Katrín Jakobsdóttir fæddist 1. febr. 1976 í Reykjavík.Hún er dóttir hjónanna Jakobs Ármannssonar heitins,bankamanns og kennara og Signýjar Thoroddsen
sálfræðings. Katrín lauk BA-prófi í íslensku með frönsku sem
aukagrein frá Háskóla Íslands árið 1999 og meistaraprófi
í íslenskum bókmenntum árið 2004. Hún hefur starfað sem
málfarsráðunautur, við dagskrárgerð og ritstörf. Þá hefur
hún starfað við kennslu og sinnt ritstjórnarstörfum. Katrín
hefur alla tíð verið virk í pólítík og var formaður Ungra
vinstri grænna áður en hún var kjörin varaformaður Vinstri
grænna árið 2003. Hún hefur gengt formennsku í ýmsum
nefndum á vegum borgarinnar og settist á Alþingi að loknum
kosningum 2007. Frá því í febrúar í ár hefur hún gegnt em-
bætti menntamálaráðherra.
Katrín er gift Gunnari Erni Sigvaldasyni heimspekinema
og eiga þau synina Jakob sem er þriggja ára og Illuga sem er
eins árs.
Katrín
Jakobsdóttir
Í eigin brúðkaupi
„Þarna erum við Gunnar að rökræða eins og venju-
lega. Við erum gjarnan kölluð Þöngull og Þrasi.“
Á níunda áratugnum Öll systkinin samankomin ein jólin,
Sverrir, Katrín, Bergljót Njóla sem er elst og Ármann.
Með Nóa-pillur „Ég var þekkt fyrir
að vera dugleg að sníkja sælgæti og
gat farið út í sjoppu og komið heim
án þess að hafa eytt neinum pening.
Bræður mínir voru hins vegar mjög
duglegir að fá hluta í fengnum.“
Í Fljótshlíðinni „Við vorum alltaf í bíltúrum að skoða
sögufræga staði þegar færi gafst og þegar við áttum bíl,
sem var ekki alltaf.“ Með pabba sínum og bræðrunum
Ármanni og Sverri.
Katrín með sonunum Illuga og Jakobi í sumar.
Í mömmuhlutverki
Unglingurinn
„Allar myndir frá
þessum tíma eru
frekar neyðarlegar.
Hér er ég með
grifflur og í leggings
en það besta er að
þetta var ekkert í
tísku á þessum tíma
enda vildi ég alltaf
fara mínar eigin
leiðir í fatavali.“
Um tíu áraÞvert á flokka Í ferð sem farin var á vegum Alþings þar semrússneska þingið var sótt heim. Hér er sendinefndin í Péturs-
borg. „Þetta var ógleymanleg ferð,“ segir Katrín.
Katrín er yngst fjögurra systkina en bræður hennar,
tvíburarnir Ármann og Sverrir, munu hafa lýst því yfir
þegar hún kom heim af fæðingardeildinni að hún væri allt
of lítil til að leika við.
„Ég hef sennilega gengið að flestum fossum landsins enda með
sjúklegan áhuga á fossum.“ Þetta er við foss í Laxá í Kjós.