Morgunblaðið - 11.10.2009, Qupperneq 40
40 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GÍSLASON,
Fjólugötu 14,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri sunnudaginn
4. október.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
13. október kl. 13.30.
Sveinn Heiðar Jónsson, Erla Oddsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Stefán G. Jónsson,
Sæbjörg Jónsdóttir, Jón Hlöðver Áskelsson,
Karl Jónsson, Helga Kristrún Þórðardóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓSKAR M. HALLGRÍMSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
4. október.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju mánudaginn
12. október kl. 13.00.
Margrét Ragna Jóhannsdóttir,
Reynir Óskarsson, Berglind Guðmundsdóttir,
Hróbjartur Æ. Óskarsson, Lilja Arnardóttir,
Kristín Óskarsdóttir, Agnar Ívar Agnarsson,
Gunnar Óskarsson, Sigurbjörg B. Ólafsdóttir,
Margrét Óskarsdóttir, Ragnar B. Bjarnarson,
Hallgrímur Óskarsson, Gyða Árný Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Frænka okkar,
VIGDÍS ÁRNADÓTTIR SHOOK,
ættuð frá Sóleyjartungu,
Akranesi,
Allentown, PA,
Bandaríkjunum,
lést mánudaginn 5. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
frænkur og frændur.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
ÁSGEIR KR. SÖRENSEN,
Háholti 16,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
5. október.
Útförin fer fram frá Landakotskirkju þriðjudaginn
13. október kl. 13.00.
Renate Scholtz.
✝
Ástkær faðir okkar,
GÍSLI BERG JÓNSSON,
Gísli frá Ási,
Silfurgötu 40,
Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítala Stykkishólmi þriðju-
daginn 6. október.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sævar Berg Gíslason,
Hafdís Berg Gísladóttir,
Ragnar Berg Gíslason,
Hlíf Berg Gísladóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓHANNES EGGERTSSON
bóndi,
Þorkelshóli,
Víðidal,
lést á heimili sínu laugardaginn 3. október.
Útförin fer fram frá Víðidalstungukirkju föstudaginn
16. október kl. 14.00.
Sigríður Sigvaldadóttir,
Sigríður Valdís Jóhannesdóttir, Marteinn Þór Arnar,
Eggert Jóhannesson, Alda Mjöll Sveinsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEINGRÍMUR JÓNASSON,
Hlynsölum 1,
Kópavogi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
í Reykjavík mánudaginn 5. október.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
15. október kl. 15.00.
Rósa Steingrímsdóttir, Stefán Hjörleifsson,
Jón Þór Steingrímsson, Sheida Keshtkar,
Bjarney Kolbrún Garðarsdóttir,
Tryggvi Garðarsson,
Rebekka Stella, Tryggvi Þór, Ástþór, Silja,
Harpa, Steingrímur Kolbeinn,
Róbert Ingi og Andri Snær.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma,
ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 8. október.
Jón Kristjánsson,
Runólfur Ómar Jónsson,
Arndís Jóna Jónsdóttir,
Þórdís María Runólfsdóttir,
Eva Rós Runólfsdóttir,
Þorleifur Stefán og Sigmundur Anton.
Hjörtur Guðmundsson
✝ Hjörtur FrímannGuðmundsson
fæddist á Þorkelshóli
Breiðabólsstað-
arsókn, V-Hún, 15. júlí
1918. Hann lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund
4. október 2009. Foreldrar hans voru
Guðmundur Jónsson, f. 28. júlí 1892, d.
6. apríl 1936 og Helga Theodóra Gísla-
dóttir, f. 1. ágúst 1875, d. 13. febrúar
1923.
Hjörtur kvæntist hinn 1. maí 1960
Ágústu Sigurðardóttur, f. 17. júní 1933.
Þau slitu samvistum. Börn Hjartar og
Ágústu eru 1) Jóna Sigrún, f. 12. maí
1959. Maki Ólafur Jónasson, f. 12. októ-
ber 1960. Börn þeirra eru a) Hulda Sig-
ríður, f. 7. september 1981. b) Arnar Már,
f. 3. apríl 1988. c) Hjördís Ósk, f. 14. júní
1994. 2) Hjörtur, f. 23. júlí 1960. Maki
Guðný Þórarinsdóttir, f. 13. október
1956. Barn þeirra er Þórarinn, f. 30.
mars 1991. Guðný átti fyrir Guðrúnu Dal-
íu, f. 8. janúar 1981. 3) Ingibjörg Halla, f.
12. október 1962. Maki Heimir Bjarna-
son, f. 7. júní 1960. Börn þeira eru a)
Hildur, f. 23. september 1988. b) Halla, f.
5. september 1997. 4) Sigurður, f. 15.
nóvember 1966. Maki Ingibjörg Gunn-
arsdóttir, f. 24. september 1967. Þau
slitu samvistum. Börn þeirra eru a)
Gunnar Sigurður, f. 31. ágúst 1987. b)
Matthías Máni, f. 31. ágúst 1991. c) Krist-
ján Freyr, f. 14. október 2002. Ágústa átti
fyrir tvö börn. 1) Guðmunda Kristjáns-
dóttir, f. 21. nóvember 1952. Börn hennar
eru a) Ágústa, f. 7. maí 1972. b) Valgeir, f.
2. desember 1980. Maki Guðmundu er
Páll Jóhann Pálsson, f. 25. nóvember
1957. Þeirra börn eru c) Páll Hreinn, f.
20. október 1983. d) Eggert Daði, f. 5.
nóvember 1985. 2) Helgi Kristjánsson, f.
4. janúar 1954. Maki Kristín Helgadóttir,
f. 24. desember 1954. Þeirra börn eru a)
Aníta Björk, f. 1. mars 1974. b) Hrafnhild-
ur, f. 29. desember 1977. c) Fjóla Kristín,
f. 25. maí 1981. Börn, barnabörn og
barnabarnabörn eru alls 33.
Fyrri hluta ævinnar starfaði Hjörtur við
almenn sveitastörf, bæði hjá öðrum og
með eigin bústofn, lengst af á Geita-
skarði í Langadal. Árið 1955 fluttist hann
suður í Garð og vann þar ýmis verka-
mannastörf. Upp úr 1960 gerðist Hjörtur
leigubifreiðastjóri, fyrst hjá Steindóri og
síðar hjá Bæjarleiðum, þar sem hann
starfaði óslitið til 75 ára aldurs. Allt fram
undir nírætt hélt Hjörtur hross og starf-
aði við gegningar fyrir aðra.
Útför Hjartar var gerð frá Fossvogs-
kapellu 7. október, í kyrrþey að ósk hins
látna.
Jarðsett var að Útskálum í Garði 8.
október.
Meira: mbl. is/minningar
Óli
Kristjánsson
✝ Óli Kristjánssonfæddist í Haga-
nesi í Mývatnssveit
16.04. 1920. Hann
lést miðvikudaginn
30. september 2009
á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga.
Foreldrar Óla voru Kristján Helgason,
bóndi í Haganesi, fæddur 5.8. 1882, d.
26.8. 1966, og kona hans Árnína Soffía,
fædd 5.11. 1881, d. 4.12. 1964, frá
Klömbrum í Aðaldal.
Bræður Óla voru Jón, f. 10.12. 1910,
d. 11.10. 1995, og Yngvi, fæddur
17.3.1916, d. 9.4. 1999. Kona Yngva var
Ingveldur Björnsdóttir frá Ósi í Skil-
mannahreppi, fædd 10.2. 1919, d. 9.1.
2005.
Óli kvæntist aldrei og eignaðist engin
börn. 10 ára gamall fluttist Óli með fjöl-
skyldu sinni frá Haganesi í Skútustaði.
Skólaganga Óla var stutt. Óli var bóndi
á Skútustöðum alla sína ævi. Hann var
dýravinur mikill og oft var leitað til hans
þegar lækna þurfti skepnur, t.d. doða-
kýr, einnig beinbrot o.fl. Löngum voru
þarfanaut sveitarinnar í fóðri í fjósi Óla.
Það vakti athygli nágranna hversu gott
lag Óli hafði á þessum stóru gripum
sem margir hræddust og ekki að
ástæðulausu. Óli var mikill áhugamaður
um alla ræktun, ræktaði ber og græn-
meti í gróðurhúsi, þekkti mikið af blóm-
um og trjárækt var mikið áhugamál. Óli
var mjög félagslyndur maður, gekk ung-
ur í ungmennafélag Mývetninga og var
þar gerður að heiðursfélaga á efri ár-
um. Hann var mjög virkur í leiklistarlífi
Mývetnings og ófáar voru þær sýningar
sem hann tók þátt í á langri ævi. Hann
var einn af stofnendum Leikfimifélags
Mývatnssveitar og var þar mjög virkur
meðan það starfaði. Óli var list-
hneigður. Kominn á efri ár fór hann að
mála myndir, aðallega af blómum og
landslagi sem í dag prýða mörg heimili.
Einnig fékkst hann nokkuð við vísna-
gerð þótt ekki færi það hátt. Kirkjan var
honum mjög kær og var hann með-
hjálpari í Skútustaðakirkju í full 40 ár.
Hann var í stjórn Lestrarfélags Mý-
vatnssveitar um árabil, einnig í stjórn
mjólkurdeildar KÞ í Mývatnssveit.
Útför Óla fór fram frá Skútustaða-
kirkju í Mývatnssveit laugardaginn 10.
október sl.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
✝
Okkar ástkæri,
GUÐJÓN MAGNÚSSON,
læknir og prófessor
Stórási 11,
Garðabæ,
sem varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn, sunnu-
daginn 4. október, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju, fimmtudaginn 15. október kl.15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Rauða kross Íslands.
Sigrún Gísladóttir,
Alma Einarsdóttir, Hjörtur Guðmundsson,
Arnar Þór Guðjónsson, Áslaug Árnadóttir,
Halldór Fannar Guðjónsson, Lára Guðrún Sigurðardóttir,
Heiðar Guðjónsson, Sigríður Sól Björnsdóttir,
og barnabörn.