Morgunblaðið - 07.11.2009, Page 57
Menning 57FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NÝJAR tónleikaraðir spretta upp
eins og gorkúlur í dýrtíðinni en
hvað veldur? Einni slíkri verður
hent í gang í kvöld, Duplex, og
vísar nafnið til þess að tveir tón-
leikastaðir verða lagðir undir röð-
ina, Sódóma Reykjavík og Batt-
eríið. Á þeim fyrrnefnda koma
fram Nolo, Snorri Helgason og
Retro Stefson en á þeim síð-
arnefnda DJ Musician, XXX Rott-
weiler og Sykur ásamt gestum.
Tónleikaröðin verður keyrð fyrsta
laugardagskvöld hvers mánaðar
og verður áhersla lögð á að bjóða
upp á mikið af því skemmtilegasta
sem er að gerast í íslensku tónlist-
arlífi. Miðaverð er ekki nema 1000
krónur og gildir miðinn á báða
staðina, þannig að hægt verður að
flakka á milli.
Steinþór Helgi Aðalsteinsson og
Eldar Ástþórsson eru forvíg-
ismenn raðarinnar og segir Stein-
þór að hún sé upphafið að frekara
samstarfi þeirra á milli, samstarfi
sem hófst með Innipúkanum í
sumar og var svo fram haldið í
haust á tónlistarhátíðinni Réttum.
Og Steinþór er með svar við
spurningunni sem var kastað fram
í upphafi.
„Það er dálítið merkilegt, að
það virðist rífandi gangur í tón-
leikahaldi, sem snýst um það sem
kalla mætti minni og meðalstór
bönd. Fólk flykkist á tónleika þar
sem aðgangseyrir er 500 til 1000
krónur en í ljósi ástandsins eru
500 krónur orðinn ansi lítill pen-
ingur fyrir skemmtanir af þessu
tagi.“
Erlendar sveitir fluttar inn
Steinþór segir að Hrunið hafi
óhjákvæmilega haft í för með sér
endurmat á gæðum og verðmæt-
um en auk þess sé sókn í menn-
ingarbundna viðburði og afþrey-
ingu jafnvel meiri á tímum sem
þessum.
„Mikilvægi þeirra er orðið til
muna meira, fólk vill geta slakað á
endrum og eins og sótt í eitthvað
sem felur í sér gildi sem stendur
utan við grámóskulegan hvers-
dagsleikann, sem er orðinn ansi
grámóskulegur eins og sakir
standa í dag.“
Steinþór segir mikinn hug í
honum og Eldari, þeim gangi vel
að vinna saman og þeir ætli að
glæða menningarlífið enn frekar á
næstu misserum. M.a. ætla þeir að
beita sér fyrir innflutningi á milli-
stórum erlendum sveitum sem
umtalaðar eru og „heitar“. Stein-
þór og co munu og standa að
heimkomutónleikum múm í Iðnó
þann 18. desember næstkomandi,
þar sem hún mun leika ásamt
Seabear. Sveitin hefur ekki spilað
hér á landi í tvö ár en hún hefur
undanfarið verið að fylgja síðustu
plötu sinni, Sing along to songs
you don’t know, eftir á erlendum
grundum.
Rífandi gangur í tónleikahaldi
Tónleikaröðin Duplex hefst í kvöld Tónleikahald í örum vexti segir skipuleggjandi
Sódómaður Snorri Helga ætlar að gera allt vitlaust í kvöld á Sódómu.
Miðasala fer fram á midi.is og við
hurð á Batteríinu og Sódóma.
DÚETTINN Ghostigital, sem er
skipaður þeim Einari Erni Bene-
diktssyni og Curver Thoroddsen,
mun taka þátt í Performa 09-
hátíðinni í New York í næstu viku.
Hátíðin gengur út á samþættingu
ólíkra listforma og fékk Ghostigital
beiðni um að semja verk fyrir hljóð-
færið Intonarumori; í raun óhljóð-
ahljóðfæri sem var smíðað af ítalska
fútúristanum Luigi Russolo árið
1913. Fimmtán aðrir listamenn hafa
einnig samið fyrir hljóðfærið og
munu þeir koma fram á hátíðinni,
þeirra á meðal Blixa Bargeld (Einst-
ürzende Neubauten, fyrrverandi
Bad Seeds-meðlimur), Joan La Bar-
bara, Mike Patton og Tony Conrad,
eitt mikilhæfasta nútímatónskáld
Bandaríkjanna. Flutningurinn fer
fram í Town Hall næsta fimmtudag
en með Ghostigal leika Finnbogi
Pétursson og Casper Electronics
(Pete Edwards). Ghostigital mun svo
leika á „eðlilegum“ tónleikum dag-
inn eftir á staðnum Monkey Town í
Williamsburg í Brooklyn.
Tilraunaglaðir Ghostigital.
Ghostigital
spilar með
jaðarrisum
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18
VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR
Sími: 561-4114
Frá 30. október til 22. nóvember
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M
T Ó N L I S TA R O G D V D M Y N D U M ,,