Organistablaðið - 01.10.1971, Síða 36

Organistablaðið - 01.10.1971, Síða 36
LÖG NORRÆNA KIRKJUTÓNLISTARRÁÐSINS StaSfest í Stoklchólmi 17. úgúst 1966. 1. gr. Norræna Kirkjutónlistarráðið er fastanefnd, sem er samvinnuaðili fyir kirkjutónlistarsamtökin í Norðurlöndunum fimm. Ráðið er stofnað sem „Norræna Kirkjutónlistarráðið" af: Dansk Organist- og Kantorsamfund, Félagi íslenzkra organleikara, Kyrkomusikföreningen, Finland, Suomcn Kantori ■— Urkurilitto, Kyrkomusikernas Riksförbund, Sverige, Noregs Orgonistforbund. lflutverk ráðsins er að efla norræna samvinnu á sviði kirkjutónlistar með j>ví að gangast fyrir fundum og ráðstefnum, og auk þess að vera málsvari á viðtækara, alþjóðlegu kirkjutónlistarsviði. Kirkjutónlistarsamtökin geta einnig lagt fyrir ráðið önnur málefni, bæði varðandi kirkjutónlist og stéttarhagsmuni, og ráðið á rétt á því að taka frum- kvæði í öllum málefnum, er kirkjutónlist varða. Starfssemi ráðsins er annars vegar ráðgjafaeðlis, en hins vegar getur ráðið gert bindandi ályktanir um mál- efni, sem öll mcðlimaríki eru sommála um. Opinber tungumál ráðsins eru danska, norska og sænska. 2) gr. Ráðið er skipað 2 fulltrúum frá hverju aðildarríkjanna, og skal að minnsta kosti annar veru fulltrúi kirkjutónlistarsamtaka hlutaðeigandi ríkis. Kjörtímabil er frá lokum kirkjutónlistarmóts til loka næsta kirkjutónlistarmots. Verði norræni fidltrúinn í stjórnarnefnd Eccelesia Cantans kjörinn utan Norræna Kirkjuráðsins, tekur sá fulltrúi sjúlfkrafa sæti í Norræna Kirkjutón- listarráðinu. Sem forseta og ritara ráðsins skal að öðru jöfnu kjósa þá fulltrúa þess ríkis, er gengst fyrir næsta norræna kirkjutónlistarmóti. Skrifstofa og skjalasafn ráðsins færast og fylgja forsæti landfræðilega. Aðildarsamtök, sem eiga ekki persónulega fulltrúa i ráðinu, mega senda áheyrnarfulltrúa á fundi ráðsins, en þeir eiga ]>ó ekki atkva'ðisrétt. 3. gr, Ráðið kcmur saman að minnsta kosti einu sinni milli kirkjutónlistar- móta, í því ríki, er skipar forsæti. Ráðið kemur sömuleiðis saman á hverju kirkjutónlistarmóti. Kostnaður við ferðir og dvöl fulltrúa greiðist af kirkjutónlistarsamtökum iheimalandsins. Þó skal gestgjafalandið bjóða meðlimum ráðsins að vera við öll atriði kirkjutónlistarmóts án mótsgjalds eða annars kostnaðar. Hafi ákvörðun um mótsstað í för með sér til tiltekna óviðráðanlega erfið- leika fyrir fulltrúa einhvers ríkis, eða þeir farið þess á leit, að mót verði háð á öðrum stað, er hentar betur. Náist meirihluti með slíkri tillögu meðal full- trúa í ráðinu, skal breyta samkvæmt j>ví. 4. gr. Ráðið er ályktunarfa:rt, er fjögur aðildarríki hið minnsta eiga full- 36 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.