SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Síða 32
32 17. janúar 2010
H
vernig manngerð er Sher-
lock Holmes? Þær milljónir
lesenda sem hafa lesið bæk-
ur Sir Arthur Conan Doyle
(1859-1930) um snilldarleynilögguna,
sem er reyndar engin leynilögga heldur
enskur herramaður, hafa vísast flestir
gert sér ákveðna hugmynd um hvers
konar náungi Holmes sé. Hann hefur
líka þegar verið túlkaður í nokkrum
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
byggðum á sögunum vinsælu. Nú er það
enski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritc-
hie sem hefur spreytt sig á nýrri útgáfu
þar sem svartigaldur og hnefaleikar
blandast séntilmennskunni sem ein-
kennir Holmes og vin hans Watson sem
er læknir eins og Doyle og sögumaður
bókanna.
Á blaðamannafundi í London þar sem
myndin var kynnt heimspressunni sagði
Ritchie að hann hefði reyndar aldrei séð
neina af þessum eldri myndum. Sem
krakki hefði hann hrifist af sjálfum bók-
unum og hann hefði alltaf haft sterklega
á tilfinningunni hvernig náungi Holmes
væri. Ritchie tekur djarflega á efninu. Í
stað þess að kvikmynda einhverja bóka
Conan Doyle býr hann til sína eigin
sögu, byggða á manngerðunum Hol-
mes og Watson og söguumhverfi bók-
anna.
Viktoríutíminn, kenndur við Vikt-
oríu drottningu sem var við völd
mestalla 19. öldina leikur stjörnu-
hlutverk með spírandi tækninýj-
ungum, krám, iðandi mannlífi og
hnefaleikum. Saman við er blandað
nútímalegri tónlist sem hamrar
hraðan takt myndarinnar.
Útkoman er kvikmynd sem
breskir gagnrýnendur ýmist hafa haft
stórlega gaman af sem nýstárlegri end-
urtúlkun Holmes-sagna eða segja hið
mesta sull þar sem Ritchie viti ekki
hvort hann sé að búa til spennumynd
eða gamanmynd. En Ritchie lætur sér
líklega fátt um finnast – hann ætlaði
bara að búa til nútímalega og kröftuga
mynd. Þetta er fyrsta fjölskylduvæna
mynd hans, ekki bönnuð börnum.
Slagsmál einkenna allar myndir hans en
hér eru þau listrænni en í sígildu Ritc-
hie-myndinni „Lock, Stock and Barrel.“
Með Chaplin í bakgrunninum
Hressilegur nútímabragur birtist í val-
inu á Sherlock Holmes sem er leikinn af
Robert Downey, þekktum fyrir leik sinn
í mynd Richard Attenborough frá 1992
um Chaplin og nú síðast aðalhlutverkið í
„Iron Man.“ Holmes í túlkun Downey er
bæði ærslafullur og hnyttinn. Eftir að
hafa fylgst með frammistöðu Downey á
blaðamannafundinum vaknar sú tilfinn-
ing með manni að annaðhvort hafi hann
enn verið í Holmes-viðmótinu eða að
hann hafi mótað Holmes í eigin mynd.
Um leið og Downey gekk á sviðið
ásamt Ritchie, Jude Law, sem leikur
Watson og Kelly Reilly sem leikur Mary
konuefni Watsons, var Downey eins og
sprellikarl, spaugandi í allar áttir og
með látbragðsleik. En kannski er það
Chaplin sem hefur mótað Downey.
Downey er reyndar sláandi líkur hinum
unga Chaplin og Chaplin-myndin gerði
hann að stjörnu á sínum tíma.
Líkt og í myndinni er Jude Law jafn
rólegur og það er mikill grallaragangur í
Downey. Á blaðamannafundinum
hvorki datt af honum né draup, hann
svaraði spurningum sem var beint til
hans en andstætt Downey gerði hann
ekkert til að draga að sér athyglina.
Watson í túlkun Law er jafn jarðbund-
inn og Downey er á lofti en um leið er
hann nokkurs konar verndarengill Hol-
mes. Law er ekki maður sem maður
tæki eftir úti á næstu krá hér í London,
er reyndar einn í drjúgum hópi frægra
enskra leikara sem kjósa frekar að búa í
Bandaríkjunum en heimalandinu.
Skálkar og skúmaskot í London
Holmes-saga Ritchie er sagan um bar-
áttu góðs og ills. Vondi kallinn er ekki
prófessor Moriarty eins og í sögum Con-
an Doyles heldur Blackwood sem Mark
Strong leikur mjög leikandi. Strong er
hinn fæddi illmennaleikari, sagðist á
Ein af ráðgátum Holmes, af hverju rauði dregillinn varð grænn í London. Guy Ritchie mættur. Guy Ritchie með syni sínum Rocco á frumsýningu í New York.
Erkienglendingarnir Sherlock
Kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie spreytir sig
á erkihetjunni Sherlock Holmes í nýjustu mynd
sinni en býr til nýja sögu inn í heim Holmes.
Sunnudagsmogginn átti fulltrúa á blaðamanna-
fundi um myndina.
Sigrún Davíðsdóttir
Jude Law er ólíkur forverum sínum í hlutverki Watsons.
Reuters
Breska leik-
konan Kelly
Reilley á
frumsýningu
við Leicester-
torgið í
London.