SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Síða 12

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Síða 12
12 24. janúar 2010 V ið töldum í fyrstu að hún væri samkynhneigð af því að hún var alltaf svo skotin í stelpum. Þegar hún var sex ára sá hún þátt í sjónvarpinu þar sem tvær konur voru að gifta sig og varð mjög upptekin af því. Hún hafði svo greinilega átt í miklum samræðum við vini sína um þennan tiltekna þátt því þegar hún kom heim úr skólanum tveimur dögum seinna sagði hún hæst- ánægð: „Mamma, þegar ég er orðin stór get ég farið í aðgerð og fengið typpi.“ Ég sagði bara: „Já, elskan mín. Við skulum ræða þetta seinna.“ Svo hugsaði ég: Æ hvað hún er mikil strákastelpa,“ segir móðir unglings sem hefur nýlega hafið ferlið að láta leiðrétta kyn. Fyrir fimmtán árum fékk ungt par frumburð sinn í fangið, undurfallegt stúlkubarn. Þau komu sér upp heimili og eignuðust á næstu árum tvö önnur börn, dreng og stúlku. Fyrir sjö árum reif fjölskyldan upp ræturnar og flutt- ist til Svíþjóðar. Elsta barnið þeirra, fallega stúlkan, er nú myndarlegur unglingsdrengur. Hann minnir einna helst á yngri útgáfu af bandaríska leik- aranum Matt Damon og ekki erfitt fyr- ir hrifnæmar unglingsstúlkur að heillast af honum. Móðirin kemur fram undir nafnleysi vegna þess að hve ný- byrjað ferlið er og hún hefur ekki enn sagt öllum frá því hver staðan er. Eins vill hún vernda barn sitt, því henni hefur fundist sú litla umfjöllun sem þessi minnihlutahópur hefur fengið vera mjög neikvæð. Þegar hún ræðir um barn sitt í fortíð talar hún um dóttur sína en þegar hún ræðir um nú- tíðina og framtíðina talar hún um son sinn. Drengurinn er transgender eða TS (sem stendur fyrir transsexual) eins og það er kallað í Svíþjóð og notar móðirin þá skammstöfun. Strákur að innan og stelpa að utan „Eftir að hún varð fimm ára hafði ég ekki lengur neitt um það að segja hvaða fötum hún klæddist og til lengdar nennir maður ekki að eiga í stríði við barn vegna klæðaburðar. Það er til ein stelpuleg mynd af henni. Þá er hún fjögurra ára með smáhár, í skotapilsi og svörtum stígvélum. Það hjálpaði síðan mikið til að hún var mikið í íþróttum þannig að ég keypti að mestu íþróttagalla sem gátu gengið fyrir sama kynið. Rauður litur hefur alltaf verið í lagi en bleikt hefur aldrei verið inni,“ segir móðirin. Þegar þau flytja til Svíþjóðar fer elsta barnið í skóla þar sem innflytjendur eru í meirihluta. Stelpurnar eru mjög kvenlegar, allar með sítt dökkt hár, klæddar kjólum. „Hún kemur inn í þennan bekk ljóshærð með stutt hár og alltaf í íþróttagalla og börnin spyrja hana í sífellu hvort hún sé stelpa eða strákur. Að lokum var hún farin að svara: „Ég er bara bæði.“ Þegar hún var búin að gera þetta ærið oft bað ég hana að hætta þessu og segja krökk- unum að hún væri stelpa en áttaði mig ekki að á því að svona leið henni. Hún Hann var dóttir mín Hann kvartaði lengi vel undan því að stelpur kynnu ekki að leika sér og töluðu bara saman. Hann vildi vera í tölvuleikjum eða úti í fótbolta. Hann hefur aldrei átt neina samleið með stelpum, enda er hann strákur fæddur í röngum líkama. Leiðrétting á kyni Texti: Signý Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Golli

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.