SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Blaðsíða 20
20 24. janúar 2010
Þ
að liggur vel á Jóni Gnarr þegar
við hittumst í anddyri Grand
hótels. Hann segir blaðamanni
frá skoðanakönnun sem hann
svaraði fyrr um daginn, þar sem hann
var spurður hvað hann kysi í komandi
borgarstjórnarkosningum. „Besta flokk-
inn,“ svaraði hann. „Og hvaða flokkur er
það?“ spurði spyrillinn ráðvilltur. „Besti
flokkurinn! Hann heitir það.“
Það er nefnilega það.
Jón Gnarr ætlar að bjóða lista í næstu
borgarstjórnarkosningum. Það er ekkert
grín, þó að það sé grín. „Ég held að fólk
átti sig fyrr en ég fæ listann samþykktan
af kjörstjórn,“ segir hann alvörugefinn,
„en ég er kominn með bankanúmer,
kennitölu og skráð félag um rekstur á
stjórnmálaflokki, Besta flokknum. Það er
komið töluvert af fólki á listann, eins og
sést á heimasíðunni. Þetta er þungavigt-
arframboð og ég held að við eigum eftir
að sópa að okkur atkvæðum.“
– Þú áttar þig á því, að þú gætir náð
sæti í borgarstjórn?
„Já, já, en ég veit ekki alveg hvað ég
ætla að gera þar,“ segir hann. „Mig lang-
ar að vera borgarstjóri. En þetta er svo-
lítið utandeildar og ég er að vinna mig
upp. Síðan liggur leiðin á Alþingi. Fram-
boðið núna er eins og að spila í ut-
andeildinni og æfa sig aðeins. En mér
skilst að borgin eigi mjög flottan sum-
arbústað upp við Úlfljótsvatn, mér fynd-
ist gott að fara þangað og slaka aðeins á.
Ég vona að kommúnistarnir verði ekki
búnir að koma á einhverju gjaldi fyrir
það.“
– Þú gætir kannski orðið oddamaður?
„Það hafa furðulegri menn en ég orðið
það! Ég er ekki furðulegasti maðurinn
sem hefur verið þarna. Ég held að ég yrði
ekki slæmur borgarstjóri. Ég yrði góður
borgarstjóri, miklu skemmtilegri en
Davíð Oddsson og miklu klikkaðri en
þarna hinn, sem ég man aldrei hvað
heitir.“
Borgarstjórnin bara stökkpallur
– Hvernig valdirðu fólk á listann?
„Ég valdi fólk sem ég þekki af góðu og
treysti,“ segir hann og bleytir í tepok-
anum. „Ég reyndi að sneiða hjá öllum
vitleysingum og... Hann hikar. „Já, og
svona fólki sem er... æ, hvernig á að út-
skýra það, vitleysingar og „wannabís“;
ég valdi bara fólk sem er gáfað og vel
gert og ég treysti. Þannig að þetta er allt
besta fólk. Og besti flokkurinn.“
– Sögðu einhverjir nei?
„Já, Ragnar Bragason leikstjóri. Hann
hugsaði málið og ákvað að segja nei,
vegna þess að hann vill ekki skipta sér af
stjórnmálum.“
– Þú ert ákveðinn í að fara á þing?
„Ég stefni að því að komast á Alþingi,
borgarstjórnin er bara stökkpallur – ég
verð að hafa eitthvað að gera þangað til.
Mig langar að verða menntamálaráð-
herra og taka RÚV í gegn. Og til þess
mun ég gera Sigurjón Kjartansson að út-
varpsstjóra, þannig að Ríkissjónvarpið
fari loksins að sinna hlutverki sínu, en
ekki að éta sjálft það, sem það á að gefa
okkur – að við förum að nota þetta tæki
til að skapa heimildir um samtíma okkar
og menningu. Forsendur þessarar stofn-
unar eru þær að hún sé sameiningarvett-
vangur þjóðarinnar, íslenskrar menn-
ingar, þar sem menningin er lifandi.
Stofnunin stendur ekki undir því. Þetta
er pólitískur möppudýrakastali, sem
framleiðir lítið og lélegt leikið efni. Mér
finnst það hræðilegt. Það er hryggilegt
að þessi stofnun hafi bara fengið að vera
svona, ófagleg og prump í áratugi, og að
Frambjóðandinn Jón Gnarr í matsalnum við tónlistarhúsið sem rís á hafnarbakkanum.
Í alvöru
talað!
Jón Gnarr býður sig fram undir
merkjum Besta flokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor. Hér fer
hann yfir pólitíska sviðið, gagnrýnir
Ríkissjónvarpið og ræðir vaktirnar,
Bjarnfreðarson og nýju þættina.
Viðtalið
Texti: Pétur Blöndal
Ljósmyndir: RAX