SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Blaðsíða 47
24. janúar 2010 47 LÁRÉTT 1. Eiturlyf fyrir flata á landsvæði. (10) 4. Vesen út af hári og pakka. (7) 7. Vera hindrun undir tilfinningalegu uppnámi. (5,5) 8. Röð atburðanna í bardaga sýnir framkomuna. (8) 9. Tek hýenu úr dýraheiminum til að gera myrkari. (7) 10. Læt aflið breytast í dýr. (8) 13. Leggstu með seinasta til að sjá mikilvægt. (8) 15. Lélegar flíkur fyrir hunda. (6) 17. 501 plóma til sendiráðsmanns. (8) 19. Ör með ögn mun flækjast fyrir þreytu. (8) 21. Marghliðaður við sjávarsíður. (8) 22. Tuð hjá snaggaralegum. (4) 23. Er lendur maður útlendingur? (8) 27. Yfirborðsþekking hjá virtri vísindastofnun. (8) 28. Einhvern veginn gref yfir og afsaki. (8) 29. Tvídrangar eru bara fyrir vitlausar. (6) 31. Eiturlyf fyrir Tryggingastofnun finnast á rana. (6) 32. Burður á leir í lélegum skáldskap. (10) 33. Kveikur heillar heyskapartól. (9) LÓÐRÉTT 1. Gen sig spegla í falli gjaldmiðils. (9) 2. Gylli samt einhvern veginn íþróttatæki. (9) 3. Eyðir skýrum. (5) 4. Notaðir hvassa. (7) 5. Augnatillit Astrid nær að hálfu að tapa lit. (9) 6. Þreytt á vegi. (4) 9. Stjórnmálamann mer í fegurðarsmyrsli. (7) 11. Fyrir orm festa af reglufestu. (9) 12. Andri vann vindblæinn einhvern veginn. (9) 14. Ljósið í því sem er afstýranlegt. (5) 16. Grey fær angur út af því að hann er með skrýtna sjón. (9) 18. Tölvurnar í bækingunum. (8) 19. Fljótur minnist á staðarheiti. (8) 20. Götin fimm geta valdið yfirliti. (6) 24. Sá sem þekkir mikið um banka veit líka um mikið átak. (8) 25. Tuða hræ yfir svipuðum. (8) 26. Drottinn með vopn birtist bikborinni. (7) 30. Dræsur í skinnum. (5) Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur að loknum fimm umferð- um á Skákþingi Reykjavíkur. Hann vann Braga Þorfinnsson í fimmtu umferð í viðureign sem hlýtur að teljast ein af úrslita- skákum mótsins. Bragi, sem hafði hvítt, var lengst af með betri stöðu en þegar fram í sótti tókst Hjörvari að snúa taflinu við og vinna sigur í endatafli. Skákþingið er fyrsta mótið í þeirri miklu skákhrinu sem nú gengur í garð og er vel skipað nokkrum þrautreyndum meist- urum auk yngri skákmanna sem hafa staðið sig vel en þar má nefna Daða Ómarsson og Patrek Maron Magnússon. Þær stöllur Tinna Kristín Finnbogadóttir og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hafa einnig hækkað duglega á stigum. Bestu endurkomuna að mati dómnefndar, sem er skipuð þeim Kristjáni Erni Elíassyni, Rúnari Berg og Róbert Lagerman, hefur átt Bjarni Hjartarson sem nú tekur þátt í opinberu móti í fyrsta skipti í langan tíma. Staða efstu manna eftir fimm umferðir: 1. Hjörvar Steinn Grétarsson 5 v. 2.-8. Bragi Þorfinnsson, Sverr- ir Örn Björnsson, Lenka Ptacni- kova, Björn Þorfinnsson, Ingvar Þór Jóhannesson, Sigurbjörn Björnsson og Júlíus Friðjónsson 4 v. 9.-12. Daði Ómarsson, Magnús Pálmi Örnólfsson, Stefán Bergs- son, Jorge Fonseca Rodriquez og Halldór G. Einarsson. 3½ v. Kraftmikill Nakamura Á einu sterkasta móti ársins í Wijk aan Zee beinast nú allra augu að Magnúsi Carlsen sem ætlar sér greinilega að blanda sér í baráttuna um efsta sætið. En það eru fleiri fiskar í sjónum. Hinn bráðskemmtilegi bar- áttujaxl Hikaru Nakamura er sennilega öflugasti stórmeistari Bandaríkjanna í dag. Hann er þekktur og vinsæll fyrir að tefla mikið á netinu, einkum þó ICC, bæði hraðskákir og það sem kall- að er bullet en þar hefur hvor keppandi eina mínútu til að ljúka skákinni. Fyrir nokkrum árum varð uppi fótur og fit þegar hann hóf taflið á sterku móti alveg eins og byrjandi og lék 1. e4 e5 2. Dh5, sem er alþekkt tilraun til heima- skítsmáts. Svo óheflaður er hann ekki lengur og skák sem hann tefldi á heimsmeistaramóti landsliða í Tyrklandi, þar sem Rússar höfðu sigur eftir mikla baráttu, á dögunum gegn einum öflugasta stórmeistara heims hefur áreiðanlega opnað augu margra fyrir hversu skemmti- legur skákmaður hann er. Fyrstu 20 leikirnir eru þekktir en síðan byggist upp mikil spenna á kóngsvængnum, 23. … Rxg2 er fyrsta sprengjan. Síðan kemur hver þrumuleikurinn á fætur öðr- um, í tvígang fórnar Nakamura drottningunni: 24. … Rxe1 og 28. … Dd3. Gelfand gat aldrei hirt drottninguna vegna máts á g2: HM landsliða 2010: Boris Gelfand (Ísrael) – Hikaru Nakamura (Bandaríkin) Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7 9. Rd2 Re8 10. b4 f5 11. c5 Rf6 12. f3 f4 13. Rc4 g5 14. a4 Rg6 15. Ba3 Hf7 16. b5 dxc5 17. Bxc5 h5 18. a5 g4 19. b6 g3 20. Kh1 Bf8 21. d6 axb6 22. Bg1 Rh4 23. He1 Rxg2 24. dxc7 Rxe1 25. Dxe1 g2+ 26. Kxg2 Hg7+ 27. Kh1 Bh3 28. Bf1 28. …Dd3 29. Rxe5 Bxf1 30. Dxf1 Dxc3 31. Hc1 Dxe5 32. c8D Hxc8 33. Hxc8 De6 – og Gelfand gafst upp. Eftir fjórar umferðir í Wijk aan Zee var Alexei Shirov efstur með fullt hús en Nakamura, Magnús Carlsen og Vasilí Ivantsjúk komu næstir með þrjá vinninga. Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Hjörvar Steinn með fullt hús á Skákþingi Reykjavíkur Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í um- slagi merktu: Krossgáta Morgun- blaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úr- lausn krossgátu 24. janúar rennur út föstudaginn 29. janúar. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 31. janúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 31. desember sl. er Ingunn Hjalta- dóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. Mál og menning gefur út. Krossgátuverðlaun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.